Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1976, Blaðsíða 21
Það er athyglisvert að nálormar og önnur „ormdýr“ fylgja
» yfirleitt ekki þessum öru sveiflum liðdýranna, en hafa aðeins
tvö greinileg hámörk, hið fyrra í júní, um svipað leyti og
liðdýrin, en hið síðara í ágúst, þegar liðdýrin eru í öðru
lágmarki sínu. Hámörk nálormanna virðast þó koma síðar
eða vara mun lengur. Þar sem mörg „ormdýrin“ eru hræ-
eða bakteríuætur, er þetta víxlgengi skiljanlegt.
Athyglisverður mismunur er á milli áranna 1970 og 1973
hvað snertir samanburð vor- og hausthámarka liðdýranna.
Fyrra árið er hausthámarkið langtum stærst, en síðara sum-
arið er vorhámarkið mun stærra. Skýringin á þessu gæti
verið sú, að 1973 var úrkoma óvenju mikil í júní (27,3 mm),
en sumarið annars þurrt, þar til í október.
Ef litið er á einstakar ættir mordýra og maura (tafla 3)
1 sumarið 1973 kemur í ljós að þær fylgja í stórum dráttum
heildartölunni hjá þessum flokkum. Þó er fjöldi pottmors-
ins (Onichyuridae) mestur við fyrstu sýnistöku að vorinu,
og fjöldi stökkmors (Isotomidae) yfirgnæfandi mestur í júní,
og í síðasta sýninu (3. nóv.) er það næstum einrátt. Þess má
23