Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1976, Blaðsíða 73
HELGI HALLGRÍMSSON:
FÁEIN ORÐ
UM GRÓÐUR Á ÞEISTAREYKJUM
Þeistareykir eru sem næst á miðjum öræfunum rnilli þriggja
byggða, Reykjahverfis, Kelduhverfis og Mývatnssveitar. Er
þarna breiður og flatbotna dalur á milli Lambafjalla að
vestan og Þeistareykjafjalla og Gæsafjalla að austan. Hér er
þó ekki um raunverulegan dal að ræða, heldur er þetta hluti
af hásléttunni, sem móbergsfjöllin afmarka á þennan hátt.
Einnig virðist landsig hafa átt drjúgan þátt í myndun dal-
kvosarinnar og sést það best á austurhlíðum Lambafjalla,
sem eru með einlægum þverskornum stykkjum. Mest áber-
andi er þar Hamrahlíðin, austan í svonefndri Skeið.
Þeistareykir eru nánar tiltekið norðan undir Bæjarfjalli,
sem er norðvestantil í þeim fjallaklasa, sem kenna má við
þennan stað.
Þarna eru víðlendar grundir, í um 350 m hæð yfir sjó,
sem afmarkast af Bæjarfjalli að sunnan, Ketilfjalli að aust-
an, en að vestan og norðan af miklum hraunbreiðum. Mikill
jarðhiti er í norður- og norðvesturhlíðum Bæjarfjallsins og
á grundunum við rætur þess. F.ru það yfirleitt gufuhverir
eða leirhverir, en vatnsrennsli úr þeim er mjög lítið, þótt
líklega sé það eitthvað misjafnt eftir árstímum og veðráítu.
75