Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1980, Blaðsíða 58
hb), en í tólf tilraunum hafði Silona yfirburði. Að meðaltali
voru yfirburðir Silona 9,8 hestburðir.
Fræeftirlitið gefur sínar fyrstu leiðbeiningar út fyrir vorið
1972, en þá liggja þessar upplýsingar fyrir. Stofnarnir
tveir,Silona og Rape Kale fá engu að síður samskonar með-
mæli það ár, og er svo enn þegar síðasta leiðbeiningaritið var
gefið út fyrir árið 1978.
I leiðbeiningunum fyrir 1972 fær risarepja (English Giant)
mun lakari umsögn en Silona og Rape Kale. 1978 stendur
sama umsögn, en undir samheitinu eru stofnar frá Sharpes og
Hurst taldir vænlegir. Þá höfðu þessir tveir stofnar verið
bornir við Silona í 5 tilraunum, og ýmist gefið álíka eða betri
uppskeru, og að meðaltali 7,4 hb (Sharpes) og 6,4 (Hurst) yfir
Silona.
Mergkál kemur afar illa út í þessum samanburði, að ekki sé
meira sagt. Á því árabili sem leiðbeiningar Fræeftirlitsins ná
yfir hefur þó verið ráðlagður innflutningur á bilinu 1000--
2600 kg á ári. Leiðbeiningaþjónustan hefur þó verið mjög
varkár með að ráðleggja notkun mergkáls nema á allra bestu
stöðum. T.d. telur Óttar Geirsson (1979) að síðasti sáðtími
sem til greina komi sé 20. maí, sem takmarkar ræktunina
óneitanlega við örfáar sveitir landsins.
Hafratilraunirnar eru allar tiltölulega ungar, og reynsla
stofnanna þvi ekki byggð á mörgum árum, nema þá Sólhafra.
En þeir hafa verið nefndir fyrstir allra sumarhafrastofna í
leiðbeiningum um stofnaval, og verða væntanleg enn um
stund. En full ástæða er til að fylgjast vel með Selmu og
Flamo, sem hvorttveggja eru fljótsprottnari en Sól II, og
einnig Pentland sem kemur mjög vel út.
Hvað varðar vetrarhafrana er ástæða til að kanna betur
hve seinþroska þeir eru, og hvers á að óska í þeim efnum. Það
hefur komið fram, að seinum þroska fylgir sá böggull, að
hættara er við legu. Því er ástæða til að kanna betur hve
seinþroska þeir eiga að vera fyrir okkar notkun.
Á ári hverju er nú ræktað grænfóður á um 4000 hekturum
lands. Sé miðað við innflutning 1979 og sáðmagn á hektara 7
kg af fóðurkálsfræi, en 200 kg af höfrum, stendur kál á 2000 ha
60