Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1980, Blaðsíða 96
Ýmis störf
Stjórn Ræktunarfélags Norðurlands var þannig skipuð síð-
astliðið ár:
Egill Bjarnason, formaður.
Helgi Jónasson, ritari.
Bjarni E. Guðleifsson, meðstjórnandi.
A árinu voru haldnir þrír stjórnarfundir. Meðal mála
þeirra sem þar voru til umræðu og ákvörðunar voru úthlutun
úr Styrktarsjóði Rf. Nl., skipting framlaga búnaðarsam-
bandanna, gerð samþykkta fyrir pöntunarfélag, flutningur í
nýtt húsnæði í húsi BSE, sem hafin er bygging á, á Glerár-
eyrum, samþykkt um átak í áróðri og leiðbeiningum um
bætta heyverkun m.a. með því að halda fundi og veita við-
urkenningu fyrir gott hey til hvatningar og uppörvunar bæði
fyrir þá er hljóta en einnig og ekki síður fyrir þá sem ekki hafa
náð eins góðum árangri. Unnið hefur verið að því að fram-
fylgja ofannefndum sem og öðrum stjórnarákvörðunum eftir
bestu getu. Allmikill tími fer í bókhald og fjárreiður Rf. allar.
Þá verður að segja eins og er að allmikill tími fer í ýmiskonar
félagsstörf, sem mörg hver eru þó í þágu bænda og ég tel
eðlilegan þátt í störfum mínum, en önnur eru meira fjarskyld.
Starfsfólk.
Allt árið voru fastráðin sem fyrr Jóhannes Sigvaldason, Þór-
arinn Lárusson og Matthildur Egilsdóttir. Matthildur í hálfu
starfi. Anna Sæmundsdóttir vann fulla vinnu frá f5. sept.
1978 til ársloka. Gunnfríður Hreiðarsdóttir vann frá 1. sept.
1978 og til ársloka einnig fulla vinnu. Sigurlaug Arngríms-
dóttir sá um sem fyrr hreingerningu á stofu allt árið og Eyþór
Jóhannsson viðurgerning á sauðum þar til þeim var lógað á
vordögum 1979. Öllu starfsfólki vil ég fyrir hönd Rf. Nl.
þakka góð störf og gott samstarf á liðnu ári, svo og vil ég þakka
samskipti og samstarf við ráðunauta og bændur á svæði Rf.
98
N