Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1980, Blaðsíða 113
Frá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar:
Guðmundur Þórisson, Hléskógum
Sveinn Jónsson, Kálfsskinni
Stefán Halldórsson, Hlöðum.
Frá Búnaðarsambandi Suður-Þingeyinga:
Ari Teitsson, Hrísum
Teitur Björnsson, Brún.
Frá Ævifélagsdeildinni Akureyri:
Björn Þórðarson
Þorsteinn Davíðsson.
I fundarbyrjun voru engir fulltrúar mættir frá Búnað-
arsambandi N.-Þing. Þá voru auk framantaldra fulltrúa
mættir stjórnarmennirnir Helgi Jónasson og Bjarni Guð-
leifsson, starfsmenn félagsins Jóhannes Sigvaldason og
Þórarinn Lárusson, ráðunautarnir Guðbjartur Guð-
mundsson, Ragnar Eiríksson, Ævarr Hjartarson, Olafur
G. Vagnsson, Guðmundur Helgi Gunnarsson og Guð-
mundur Steindórsson. Auk þessara sátu fundinn: Jóhann-
es Torfason, Matthías Eggertsson, Tryggvi Stefánsson og
Kristján Gunnþórsson.
4. Skýrslur ráðunauta og reikningar.
Þórarinn Lárusson og Jóhannes Sigvaldason fluttu sínar
starfsskýrslur og lágu þær fyrir fundinum fjölritaðar.
Verður ekki nánar gerð grein fyrir þeim í fundargerð en
vísað til fjölrita. Jóhannes Sigvaldason las upp reikninga
félagsins og skýrði þá. Lágu þeir fyrir fjölritaðir. Bjarni
Guðleifsson, tilraunastjóri á Möðruvöllum sagði frá starf-
semi tilraunastöðvarinnar. Hann skýrði frá niðurstöðum
nokkurra grasræktartilrauna þar sem athugað er þol og
uppskera grastegunda. í Ærlækjarseli í Öxarfirði gaf Holt
vallarsveifgras mesta uppskeru, en næst komu þrír stofnar
af vallarfoxgrasi en beringspuntur reyndist verr. Þá eru í
gangi nokkrar grænfóðurtilraunir og kartöflutilraunir svo
og athugun á berjarunnum. Tilraunir í nautgripa- og
sauðfjárrækt voru ekki umfangsmiklar. Þó var gerð
115