Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1917, Qupperneq 1
Skýrsla
um störf Búnaðarsambands Austurlands
frá 27. júní 1917 til 29. júní 1918.
1. Starfsemi í gróðrarstöð Sambandsins lá að
mestu leyti niðri þetta ár. Stafaði það af áhrifum frá
heimsstríðinu, að þvi er kom til innkaupa, aðflutn-
inga (skipagangna) o. fl.
2. Hrútasýningar þær, haustið 1917, er um ræðir
í ársriti Sambandsins 1916—17, bls. 9, og áttu að fara
fram á öllu sambandssvæðinu, áttu við allmikla
erfiðleika að stríða. Hin afarstirða hausttíð 1917 var
svo óheppileg til sýninga, sem framast má verða,
enda varð að sleppa sýningu á stöku stað, vegna snjó-
þyngsla og ófærðar á fjailvegum, sem urðu til þess,
að fjárræktarmaður gat ekki ávalt fylgt áætlunum.
þ() fjellu ekki úr af þessum sökum, nema 3 sýningar.
petta var því fremur skaði, sem sýningar þessar voru
vel undirbúnar og fjárræktarmaður Jón H. porbergs-
son við þær flestar, til leiðbeiningar, enda þær sóttar
framar vonum,eftir tíð og kringumstæðum, á mörg-
um stöðum. Bendir það á, að árangur mundi hafa
orðið góður, ef vel hefði tekist til með tíðarfar.
Með því að stofnað var þannig til sýninga og þær