Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1917, Blaðsíða 57
Um ræktun jarðepla.
Fyrirlestur eftir Sigmar B. Guttormsson.
Fluttur á aðalfundi Búnaðarsambandsins
29. júní 1918.
Við vitum það öll að undanfarin ár hefir geisað
dýrtíð yfir landið. Verð á útlendum vörum hefir
margfaldast, en innlendu afurðirnar hafa ekki stigið,
að sama skapi. Menn hafa því átt afar erfitt með að
takmarka útgjöld sín í samræmi við inntektirnar.
En þótt mörgum hafi eflaust tekist að halda þessum
tveimur liðum í jafnvægi, hefir annar voði vofað yfir
þjóðinni, nefnilega alger siglingateppa til og frá land-
inu. þótt þetta hafi slarkað, enn sem komið er, þá
er alls ekki ómögulegt, að slíkt geti komið fyrir enn,
á meðan þeim ógnum Ijettir ekki af, sem nú geysa
yfir heiminn.
Við getum því ekki gengið fram hjá þeim mögu-
legleika, þegar við hugsum fram i tímann og athug-
um, hvaða ráð við höfum til þess, að fleyta okkur
fram úr þeim örðugleikum, sem við eigum við að
búa.