Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1924, Blaðsíða 31
33
efni og létt störf hennar. Sambandinu hefir reynst þetta
horfa til fjársparnaðar, og virðist við svobúið megi
standa fyrst um sinn.
Bréfaskriftir hafa verið heldur meiri en undanfarin ár.
Skýrsla
um fjárbúið á Egilsstööum í Vopnafirði,
gefin 21. apríl 1926.
Við Hallgrímur Þorbergsson höfum nú skoðað kyn-
bótaféð á Egilsstöðum, og er álit okkar um það á
þessa leið:
Féð er vel fóðrað, en tæplega nógu samstætt til að
vera kynbótafé; samt mun helmingur af ánum vera
hreinn stofn og það eru góðar ær, en yfirleitt eru
ærnar ekki nógu líkar til að geta verið hreinn stofn,
eins og þær ættu að geta verið eftir svona mörg ár,
sem búið hefir starfað. Meðalvigt á ánum er um 45
kg. og þykir okkur hún lág. Tvohrúta skoðuðum við,
og reyndist annar að hafa góðan samræmisvöxt, en
hefir ekki góðan haus og virðist heldur daufgerður.
Hinn hrúturinn er ekki eins vel vaxinn, en virtist
vera harðari og hraustari kind. Hallgrími leizt betur á