Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1924, Blaðsíða 39
Um húsmæðramentun kvenna.
Erindi flutt á aðalfundi Búnaðarsambands Austurlands
á Egilsstöðum 18. júní 1926.
Skrifað eftir minni.
Áður en ég byrja að tala um húsmæðramentun
kvenna, vil ég taka það fram, að skoðun mín á ment-
un kvenna yfirleitt, almennri mentun þeirra og sér-
mentun, á rætur að rekja til ákveðinnar grundvallar-
skoðunar um eðli þeirra og afstöðu til þjóðfélagsins.
Mjög hafa verið skiftar skoðanir manna um það.
Halda sumir því fram, að andlegir eiginleikar karla og
kvenna séu hinir sömu frá náttúrunnar hendi, en ólíkt
uppeldi og starfssvið hafi skapað þann eðlismun, er f
fljótu bragði virðist vera á körlum og konum. Þessi
skoðun liggur til grundvallar fyrir hinni svo kölluðu
kvenfrelsishreyfingu 19. aldar.
Hún er sprottin upp úr sama andlega jarðvegi og
kenningin um hina frjálsu samkepni, er mótuð að ein-
staklings- og efnishyggju. Á þeim grundvelli reis kraf-
an um jafnan rétt karla og kvenna til þroska og starfs.
Alt var miðað við hagsmuni einstaklingsins.
Aftur á móti líta aðrir svo á, að eðli og eiginleikar