Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1975, Síða 1

Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1975, Síða 1
Formáli Um nokkurt árabil hefur útgáfa ársrits B.S.A. fallið niður. Fundargerðir aðalfunda, reikningar og ýmsar skýrslur, sem í ársritinu hafa birtst, hafa þvi ekki komið út þetta tímabil. Nú er áætlað að taka upp þráðinn, þar sem frá var horfið, og hef.ja útgáfu ársritsins á ný og útgáfa ársritsins 1979 er nú í undir- búningi. Eðlilegt þótti að prenta efni það, sem safnast hefur fyrir frá árunum 1975 - 1978, í sérstakt hefti en það er sá bæklingur, sem hér birtist, er út úr því kom. Ársrit 1979 tekur svo við af því og verður það með hefðbundnu sniði. Þetta hefti inniheldur fundargerðir aðalfunda þessi 4 ár, skýrslur, sem þar voru fluttar ásamt ársreikningum B.S.A. og R.S.A., einnig ýmsar skýrslur, sem safnað er í sambandi við starfsemi búnaðar- sambandsins. Þótt efni þetta sé orðið gamalt, var álitið að æskilegt væri að þeir, sem ársritinu halda saman, fái þannig samfellda heim- ild um það efni, sem ársritin hafa fjallað um. Efni þetta var líka ýmist fullbúið til prentunar eða næstum því það og því um litla undirbúningsvinnu að ræða. I von um að bændur á svæðinu meti það að fá þetta bókarefni í aðgengilegu formi þótt seint sé hafa stjórn og starfsmenn sam- bandsins hrynt þessari útgáfu í framkvæmd. 3

x

Búnaðarsamband Austurlands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Búnaðarsamband Austurlands
https://timarit.is/publication/273

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.