Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1975, Blaðsíða 27
Snæþór skýrði frá því, hvernig austfirðingar voru strikaðir út
af áætlun um byggingu slíkrar verksmiðju.
Fleiri kvöddu sér ekki hljóðs um skýrslu formanns og reikningana
og voru þeir síðan samþykktir samhljóða.
A. Skipað í fastanefndir.
Eftir kaffihlé var skipað í fastanefndir og var eftirfarandi skipan
samþykkt:
Fjárhagsnefnd: Brynjólfur Bergsteinsson, Aðalsteinn Aðalsteins-
son, Rögnvaldur Erlingsson, Jón Þorgeirsson og Eyjólfur Guðjóns-
son.
Jarðræktarnefnd: Þór Þorbergsson, Pétur Guðvarðarson, Jón
Björnsson, Friðrik Steinsson, Halldór Björnsson og Sigurður Gutt-
ormsson.
Búfjárræktarnefnd: Ingimar Jónsson, Hannes Árnason, Bene-
dikt Sigfússon, Bjöm Þorsteinsson, Vilhjálmur Þ. Snædal og Elís
Hrafnkelsson.
Allsherjarnefnd: Þórður Pálsson, Jón Bergsson, Ingvar Friðriks-
son, Geir Pétursson, Guðjón Hermannsson og Gísli Björgvinsson.
5. Starfsskýrslur ráðunauta.
Páll Sigbjörnsson gei-ði fyrst grein fyrir starfi sínu í alllöngu
og ýtarlegu máli. Lauk hann máli sínu með því að þakka samstarfs-
mönnum, stjórn sambandsins og bændafólki á Austurlandi fyrir
gott samstarf og kynni. Páll hefur nú hætt störfum hjá B.S.A. og
kvaðst hann vona, að í gegnum sitt nýja starf á Skriðuklaustri geti
hann unnið austfirskum landbúnaði nokkurt gagn.
Þórhallur Hauksson flutti því næst skýrslu sína en hann kom til
starfa hjá B.S.A. 10. júní 1975 og hefur nú verið ráðinn til áfram-
haldandi starfs. Gerði hann grein fyrir jarðræktar- og bygginga-
framkvæmdum á s.l. ári og þróun þeirra mála frá 1964. Samkvæmt
því yfirliti hefur dregið úr þeim framkvæmdum á s.l. ári. Þá kom
einnig fram, að á s.l. ári fækkaði nautgripum og sauðfé en hross-
um fjölgaði. Þórhallur gerði ennfremur grein fyrir átgetutilraun-
um á kúm, er þeir Páll framkvæmdu s.l. vetur.
31