Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1975, Blaðsíða 33
lætismál, að þegar neita þarf lánsumsóknum eins og nú hefur
gerst í tvö ár, þá sitji þeir landshlutar fyrir lánum, sem minnst
fjármagn hafa fengið úr Stofnlánadeild sl. áratug, svo sem er
um Múlasýslur, enda hljóti framkvæmdir að vera þar styst á
veg komnar.
Varðandi málefni lánastofnana landbúnaðarins vill fundur-
inn taka fram eftirfarandi: Vegna framkominna upplýsinga á
sl. vori um mjög vítaverð mistök við lánveitingar úr Veðdeild og
Stofnlánadeild Búnaðarbanka íslands til kaupa og umbóta á eyði-
jörðum krefst fundurinn þess, að reglum deildanna verði breytt
á þann veg, að öll lán þeirra ný sem gömul falli í gjalddaga,
þegar jarðir hafa verið án búrekstrar í 2 ár og séu þá þegar
boðnar upp, ef þarf vegna áhvílandi skulda við bankana. Fund-
urinn telur fulla ástæðu til, að þeir aðilar, sem ábyrgð bera á
lánveitingum til jarðakaupa til aðila, er ekki reka búskap á
jörðum sínum, sæti fullri ábyrgð. — Samþykkt samhljóða.
III. Fundurinn skorar á Stéttarsamband bænda að beita sér fyrir
leiðréttingum á hróplegum villum í verðlagsgrundvelli landbún-
aðarafurða, einkum í eftirtöldum atriðum:
1) Kostnaður við vélar og fjármagn er stórlega vantalið miðað
við raunverulegt verðlag.
2) Vinnumagn i grundvelli er vantalið, bæði vinnumagn bónda en
einkum þó húsfreyju, m.a. vegna ófullnægjandi forms í búreikn-
ingum, sem lagðir eru til grundvallar í þessu sambandi. Einnig
fær það ekki staðist, að bændur geti unnið 2080 st. í dagvinnu
árlega og mun engum öðrum stéttum takast að finna svo margar
dagvinnustundir í einu ári. — Samþykkt samhljóða.
IV. Fundurinn bendir hreppabúnaðarfélögum á, að til þess að ný-
orðnar breytingar á lögum Búnaðarfélags íslands og Stéttarsam-
bands bænda varðandi kosningarétt og kjörgengi geti að fullu
komið til framkvæmda, þarf víða að breyta lögum félaganna.
Felur fundurinn stjórn B.S.A. að koma þessu og ábendingum um
lagabreytingar til hreppabúnaðarfélaganna. — Samþykkt
samhljóða.
V. Fundurinn skorar á þingmenn kjördæmisins að snúa vörn í sókn
í sambandi við vegamál í kjördæminu. Fundurinn vítir harðlega
37