Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1975, Blaðsíða 41
Málefni R.S.A. hafa allmikið verið til meðferðar, en árangur ekki
orðið sem skyldi og þui’fa þau mál öll betri skoðun og fastari tök.
Mörg flciri mál hafa verið til meðferðar hjá stjórninni en ég tel
þau ekki upp hér sérstaklega, slík mál koma alltaf fyrir stjórn fleiri
og færri í önn dagsins.
Ég þakka stjórnarmönnum og starfsmönnum gott samstarf. Sér-
stakar þakkir skulu fluttar til Páls Sigbjörnssonar fyrir ágætt
starf hjá Sambandinu á undanförnum tuttugu og tveim árum og
honum óskað velfarnaðar í nýju starfi.
Snæþór Sigurbjörnsson.
STARFSSKÝRSLA
Páls Sigbjörnssonar, ráðunauta/r til aðalfundar B.S.A. 197<1.
Ég starfaði hjá Búnaðarsambandi Austurlands fram til aprílloka
nú í vor, þegar ég hóf störf hjá Tilraunastöðinni á Skriðuklaustri.
Þorsteinn Kristjánsson vann á móti mér eins og síðasta ár, en
starfaði þó jafnframt nokkuð hjá R.S.A. einnig vann með okkur
Þórhallur Hauksson en hann hóf hér störf á sl. vori. Við skiptum
eins og áður með okkur verkum eftir hentugleikum. Mælingum og
úrvinnslu úr þeim var skipt eftir sveitum. Ég sá um aðstoð við
sauðf járræiktarfélögin eins og áður, en kom ekki að skýrsluhaldi
nautgriparæktarfélaganna, en átti áfram sæti í kynbótanefnd B.í.
og hafði umsjón með afkvæmarannsókn holdanauta, sem hófst hér
á sl. ári. Tilraun þessari á að ljúka nú í haust og verður gripunum
þá lógað. Talað hefur verið um, að ég hafi umsjón með þessari til-
raun þar til henni lýkur, þótt ég hafi að öðru leyti hætt störfum
hjá sambandinu.
Annað starf hefi ég að vísu tekið að mér að leysa fyrir það. En
það er að rita sögu sambandsins, sem fyrirhugað er að birtist í
síðasta bindi byggðasögunnar, þ.e. ritverkinu Sveitir og jarðir í
Múlaþingi.
Síðustu 1-2 mánuðina, sem ég vann hjá sambandinu, eyddi ég
nokkru af tíma mínum í þetta verk, en er þó raunar ekkert byrjað-
ur á sögurituninni.
45