Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1975, Blaðsíða 45
um efnum, en hafa ber í huga mikilvægi þess, að fá sem fyrst ör-
uggan dóm á naut, sem tekin eru inn á sæðingastöðvarnar. Og svo
framarlega sem einhverjar kynbætur eiga sér stað, eru ungu naut-
in vissulega betri en þau eldri, að meðaltali.
Á’ftur á móti er ég þeirrar skoðunar, að margir gangi helst til
langt í notkun holdanautasæðis, og spilli með því möguleikum á
ásetningi kvígna undan góðum og reyndum kúin. Jafnvel eru þess
dæmi hér, að úrvalskýr, sem töldust hugsanlegar nautsmæður, mið-
að við afurðaeinkunn, hefðu verið sæddar með holdanautasæði.
Fundahöld.
I febrúar sat ég hinn árlega ráðunautafund, sem Búnaðarfélag
Íslands og Rannsóknastofnun landbúnaðarins gangast fyrir. Að
þessu sinni var dagskrá fundarins óvenju fjölþætt, en fróðleg að
vanda.
Einnig sótti ég í september námskeið í sauðfjárdómum á vegum
B.í. að Hesti í Borgarfirði. Ailmargir ráðunautar voru mættir þar,
og var megin tilgangur námskeiðsins að samræma dóma á sauð-
fjártsýningum.
Þá mætti ég á allmörgum aðalfundum búnaðarfélaga, ýmist einn
eða ásamt öðrum.
Skrifstofustörf.
Þeim var líkt háttað og áður, en þau helstu voru sem hér fer á
eftir.
Unnið var að samantekt talna vegna II. og III. bindis „Sveitir
og jarðir í Múlaþingi”, og er enn eftir dálítil vinna við III. bindið.
Bændur voru að venju aðstoðaðir vegna lánsumsókna til Stofn-
lánadeildar, og umsagnir gefnar þar að lútandi. Heldur leiðinleg
vinnubrögð eru nú viðhöfð hjá Stofnlánadeild, að draga svar fram
á sumar, og neita öllum um lán í byrjun, en gefa síðan kost á endur-
tekinni umsögn ráðunauts, vegna þeirra sem ekki telja sig geta
frestað framkvæmdum.
Dálítil vinna var fólgin í undirbúningi að móttöku bændafarar
49