Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1975, Blaðsíða 67
Þórhallur Hauksson flutti næst sína starfsskýrslu. Hann sagði
sín störf svipuð og sl. ár. Vatnsveitur og skurðgröftur voru í há-
marki. Pétur Hjálmsson ráðun. B.í. kom verulega inn í fyrirmæl-
ingar þeirra mannvirkja. Jarðrækt hefur heldur aukist en bygginga-
framkvæmdir hafa dregist saman. Heldur minna var tekið af hey-
sýnum heldur en sl. ár, 155 sýni móti 200.
Þórhallur sýndi tölur um lánsumsóknir vegna bygginga haustið
1976, m.a. var sótt um lán til 19 nýrra íbúðarhúsa og til endurbóta
á 6 eldri húsum. Þórhallur kvaðst hafa mætt á fundum búnaðar-
félaga eftir því sem hann hefði komið við. Hann gat einnig um
ráðunautaráðstefnu í febr. og störf við hrossaræktarmál nú í vor.
Þórhallur þakkaði í lokin, eins og Þorsteinn hafði gert, stjórn og
samstarfsmönnum samvinnuna á sl. ári.
Páll Sigbjörnsson gerði grein fyrir tilraun með kálfaeldi, sem lauk
á sl. hausti. Taldi hann árangur allgóðan, en niðurstöður liggja
ekki fyrir enn. Fram kom verulegur munur milli kálfa og afkvæma-
hópa. Kálfamir undan holdanautinu Viska sköruðu fram úr, en
kálfar undan íslenskum nautum ráku lestina.
Páll kvað austfirðinga sýna mestan áhuga fyrir rannsóknum á
holdanautum og kálfaeldi. Væntanlega mætti fá í gang aðra tilraun
svipaða, ef vilji væri nægur.
Pétur Guðvarðarson þakkaði Páli skýrslu hans. Taldi hann að
aðeins ætti að bjóða holdanautasæði úr bestu bolunum og lýsti hann
áhuga sínum á, að tilraunum með kálfauppeldi og afkvæmahópa
verði haldið áfram.
Sigurjón Friðriksson þakkaði framkomnar skýrslur. Lýsti hann
ánægju með fyrrnefnda kálfatilraun og vænti þess að þar gæti orðið
framhald á. Hann ræddi einnig jarðræktina og brýndi fyrir mönnum
að leggja alúð við ræktun og heyverkun, því að nóg fóður og gott
væri undirstaða farsæls búskapar.
Sveinn Guðmundsson harmaði, hvað almenn ráðunautaþjónusta
hefur dregist saman. Reyndar ekki að undra þegar föst og lögboðin
störf aukast, en starfskraftar dragast saman eins og á sl. ári.
Sveinn sagði frá ráðstefnu á Hvanneyri er hann sat sl. haust
ásamt ráðunautum o.fl. og fjallaði um ráðunautaþjónustuna.
71