Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1975, Blaðsíða 73
Nú var fundi frestað til næsta dags.
Kl. 15.00 næsta dag, 14. júní kom fundur saman að nýju eftir að
nefndir höfðu lokið störfum. Voru nú teknar fyrir tillögur nefnda.
9. Álit fjárhagsnefndar.
Aðalsteinn Aðalsteinsson hafði orð fyrir nefndinni og flutti eftir-
farandi tillögur:
I. Aðalfundur B.S.A. haldinn að Eiðum 13. - 14. júní 1977 samþykkir
að búnaðarsambandið greiði þann akstur fulltrúa á aðalfund, sem
er fram yfir 100 km samtals heiman og heim. Greiða skal eftir
taxta opinberra starfsmanna, eins og hann er á hverjum tíma.
— Samþykkt samhljóða.
II. Vegna beiðni Veiðifél. Fljótsdalsh. í bréfi dags. 4. 5. ’77, um styrk
til rannsókna á vatnasvæði félagsins, samþ. aðalf. B.S.A. haldinn á
Eiðum 13. og 14. júní 1977 að veita til þessa verkefnis allt að kr.
40.000. Þá heimilar fundurinn stjóminni að verja allt að kr. 35.000
til annarra veiðifélaga á sambandssvæðinu til samskonar verk-
efna ef óskað verður. — Samþykkt samihljóða.
III. Nefndin lagði fram óbreytta tillögu félagsstjórnar svohljóðandi
að -
Fjárhagsáætlun
fyrir Búnaðarsamband Austurlands árið 1977.
TEKJUR:
1. Eftirstöðvar frá fyrra ári .................. kr. 7.296.000,-
2. Starfsfé frá B.í............................. — 1.150.000,-
3. Frá B.í. vegna vinnul. ráðun................... — 6.300.000,-
4. Frá félagsdeildum ............................. — 2.900.000,-
5. Frá Múlasýslum ................................ — 200.000,-
6. Frá félagsmálnráðuneytinu ..................... — 1.200,-
7. Úr Búnaðarmálasjóði ......................... — 2.000.000,-
8. Frá B.I. vegna skurðmælinga .................. — 50.000,-
9. Frá B.í. vegna launaskatts ................... — 180.000,-
10. Frá B.Í. vegna jarðræktar ................... — 950.000,-
11. Frá B.Í. vegna búfjárræktar ................. — 900.000,-
12. Frá B.I. vegna ferðakostnaðar ............... — 500.000,-
77