Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1975, Blaðsíða 95
nú er. Honum leist vel á, að sambandið hupaði að byggingu eigin
húsnæðis. Þá varpaði hann fram þeirri huffmynd, að við hugsanlegan
fjölbrautarskóla á Eiðum verði komið upp búnaðarbraut.
Kl. var nú orðin nær 3.00 að nóttu og var fundi frestað til næsta
dag-s.
Eftir nákvæmlega 12 klst. var fundi fram haldið. Höfðu nefndir
þá lokið störfum og skiluðu nú áliti.
12. Álit allsherjamefndar.
Bragi Vagnsson flutti eftirfarandi tillögur og mælti fyrir þeim.
I. „Aðalfundur B.S.A. á Eiðum beinir þeirri hugmynd til yfirstjórn-
ar menntamála, að þegar ákveðin verður verkaskipting milli Eiða-
skóla og Menntaskólans á Egilsstöðum verði stofnuð búnaðarbraut
við Eiðaskóla”. — Samþykkt samhljóða.
II. „Fundurinn skorar á stjórnina að vinna ötullega að því, að mál-
um byggðasafns á Austurlandi verði komið í viðunandi horf.”
— Samþykkt samhljóða.
III. „Fundurinn beinir því til stjórnarinnar, að hún kanni,
hvernig Lífeyrissjóður bænda sinnir því hlutverki sínu, að stuðla
að auknu mennigarlífi í sveitum og ýti undir þann þátt í starfsemi
lífeyrissjóðsins”.
Jón Sigurðsson, Snæþór Sigurbjörnsson, Benedilt Sigfússon og
Ingvar Friðriksson, tóku til máls um þessa tillögu en hún síðan
samþykkt samhijóða.
IV. „Fundurinn fer þess á leit við stjórnina, að hún geri það, sem
hægt er, til að fá samþykki fyrir ráðningu fleiri ráðunauta eða
annarra starfskrafta helst allt árið, en að öðrum kosti á mesta
annatíma til að hægt sé að sinna betur beinum leiðbeinangarstörf-
um”. — Samþykkt samhljóða.
V. Þórður Pálsson flutti eftirfarandi tillögu og mælti fyrir henni:
„Aðalfundur B.S.A. 13. - 14. júní 1978, á Eiðum lýsir yfir ein-
dregnum stuðningi við framkomnar tillögur Suður - Þingeyinga
frá 24. apr. sl. í framleiðslu og verðlagsmálum”. — Samþykkt
samhljóða.
99