Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1975, Blaðsíða 118
ÞÓRHALLUE HAUKSSÓN:
Sauðfjárræktarfélögin
Nokkrar helstu niðurstöður úr skýrslum sauðfjárræktarfélaganna
fyrir starfsárið 1975 - 1976 eiu sýndar í töflu I. Ails skiluðu 8 fé-
lög skýrslum eða jafn mörg og árið áður. Sú breyting hefur þó orð-
ið að sauðfjárræktarfélag Breiðdæla skilar ekki skýrslum nú, en
sauðfjárræktarfélag Tunguhrepps bætist við. Frá síðasta ári hefur
félagsmönnum fjölgað um 7, eru nú 61 með 7.801 á, eða tæplega
128 ær á hvern félagsmann og hefur ám á hvern félagsmann þá
fjölgað um tæpar 10 frá síðasta ári.
Að meðaltali hafa afurðir eftir hverja skýrslufærða á aukist um
0,5 kg af kjöti frá fyrra ári. Þetta ár skilaði ærin 23,1 kg kjöti en
22,6 kg árið áður. Fjöldi lamba til nytja hefur lítið breyst og sama
er að segja um gæðamatið. Þetta ár komu 148 lömb til nytja eftir
100 ær og fóru 92% í I. flokk, en árið áður komu 147 lömb til nytja
eftir 100 ær og þá fóru 91% í I. flokk. Mestar afurðir í einstöku
félagi eru í sauðfjárræktarfélagi Vopnafjarðar, 29,4 kg kjöt eftir á.
Tafla I. Niðurxtöður úr skýrslum sauðf járræktarf élaganna 1975-’7ti.
Félag Tala Tala Reiknað Gæðamat Lömb e. 100 ær
félags- áa kjöt % í I Fædd Til
manna eftir á flokk nytja
Sf. Vopnafjarðar 19 1028 29,4 97 177 165
Sf. Jökull, Jökuldal 3 1035 25,1 97 160 150
Sf. Hlíðarhrepps 10 1659 21,4 95 163 149
Sf. Tunguhrepps 4 417 19,1 88 144 131
Sf. Hjalti, Hjaltast.hr. 4 643 20,4 98 154 146
Sf. Borgarfjarðarhr. 11 1203 26,0 91 176 164
Sf. Skriðdæla 4 738 21,9 97 155 142
Sf. Geithellnahrepps 6 1078 18,7 81 146 125
Öll félögin 61 7801 23,1 92 162 148
122