Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1975, Blaðsíða 120
I töflu IV eru sýndar helstu niðurstöður úr skýrslum fjárræktar-
félaganna fyrir starfsárið 1976-1977. Þetta ár skiluðu 10 félög'
skýrslqm, tveimur fleira en árið áður en það eru Sf. Breiðdæla og
Sf. Fellahrepps sem bætst hafa við. Félagsmönnum hefur fjölgað
úr 61 á fyrra ári í 68 nú og skýrslufærðum ám hefur fjölgað úr
7.801 í 9.771 nú. Skýrslufærðar ær eru því að meðaltali tæplega 144
á hvern félagsmann og hefur fjölgað um tæplega 15 frá fyrra ári.
Afurðir hafa heldur minnkað frá fyrra ári. Þetta ár skilaði ærin
22,7 kg kjöti en 23,1 kg kjöti árið áður. Fjöldi lamba til nytja er
mjög svipaður milli ára, var þetta ár 149 lömb eftir 10.0 ær á móti
148 lömbum árið áður. Flokkunin er nokkuð lakari nú en árið áður.
Þá fóru 92% í I. flokk en þetta árið 88 prósent. Sem fyrr er
Sf. Vopnaf.iarðar afurðahæst einstakra félaga með 30,4 kg kjöt
eftir á.
Tafla IV. Niðurstöður úr skýrslum sauðfjárræktarfélaganna 1976-
1977.
Félag Tala Tala Reiknað Gæðamat Lömb e. 100 ær
félags- áa kjöt % í I Fædd Til
manna eftir á flokk nytja
Sf. Vopnafjarðar 13 684 30,4 98 178 168
Sf. Jökull, Jökuldal 8 1632 24,6 98 167 153
Sf. Hlíðarhrepps 9 1527 20,0 93 162 142
Sf. Tunguhrepps 4 534 19,2 90 147 133
Sf. Fellahrepps 8 1597 22,2 81 161 148
Sf. Hjalti, Hjaltasthr. 4 690 20,5 83 162 152
Sf. Borgarfjarðar 11 1340 24,6 87 173 158
Sf. Skriðdæla 5 868 21,9 91 158 146
Sf. Breiðdæla 2 166 23,1 87 161 148
Sf. Geithellnahrepps 4 733 19,3 85 149 130
í töflu V eru sýnd nöfn þeirra félagsmanna sem hafa mestar af-
urðir og eru með 100 skýrslufærðar ær eða minna. Efstur þeirra er
Sigurjón Friðriksson, Ytri-Hlíð, Vopnafirði. 1 töflu VI eru hins
vegar sýnd nöfn þeirra félagsmanna sem hafa mestar afurðir og
124