Takmark - Lítið fréttabréf um heilbrigðismál - 01.03.1979, Síða 1
lítiý fréttobréf -uítv heilbriqðismól
■ ■ ■ ■ w ■ ■ VTTwwT^rT V r » rVTTlrTt>ywTw1 ■ rwT
1. tbl. 4. árg.
Mars 1979
Utgefendur: Krabbamelnsfélag Reykjavíkur
og Krabbamelnsfélag Islands. Suðurgötu
24. 101 Reykjavík. Samstarfsnefnd um
reyklngavarnir styrklr útgáfu blaðsins.
Ritstjórar: Þorvarður Ornólfsson (ábm.) og
Jónas Ragnarsson Upplag: 32.000 eintök.
Ljóssetning og offsetprentun: ODDI hf.
HEIMSÓKNIR í SJÖTÍU
SKÓLA í VETUR
LÁTIÐ í
YKKURHEYRA
Vlljið þið koma á framfæri
skoðunum ykkar á reykinga-
málum? Þá er tilvalið tækifæri
til þess núna, á barnaárinu.
Ræðið þessi mál í bekknum. á
fulltrúafundum bekkjanna eða í
skólafélaginu og gerið um þau
ályktanir.
Dæmi um umræðu- og álykt-
unarefni: Veldur tóbaksreykur
ykkur óþægindum eða jafnvel
vanliðan og hvenær helst? Haf-
ið þið nokkrar almennar eða
sérstakar tillögur fram að færa
varðandi reglur um reyklausa
staði eða farartæki? Ætti að
banna að selja börnum (og
unglingum) tóbak, fækka sölu-
stöðum, setja aðvaranir og
upplýsingar á sígarettupakka
og aðrar tóbaksumbúðir? Þarf
að efla baráttuna gegn reyking-
um og þá hvernig? Eru fjölmiðl-
arnir nógu virkir i þeirri baráttu?
Sumar tillógur ykkar og álykt-
anir kynnu að eiga fyrst og
fremst erindi til tiltekinna aðila
Þá getið þið sjálf komið þeim á
framfæri með bréfi eða sendi-
boðum til þeirra sem í hlut eiga.
Aðrar kynnu að vera almenns
eðlis og eiga frekast erindi í
fjölmiðla. Ef þið óskið eftir get-
um við birt þær í Takmarki. □
Fræðslustarf Krabbameinsfélagsins
í grunnskólum hefur enn verið aukið á
þessu skólaári og er nú víðtækara en
nokkru sinni fyrr. Má raunar segja að
það beinist með einhverjum hætti að
nær öllum bekkjum grunnskólanna, frá
2. bekk (8 ára) upp í 8. bekk (14 ára).
Átta og níu ára nemendur um allt land
hafa fengið send tvö litabókarblöð sem
eru sérútgáfa af Takmarki (sbr. 9. blað)
og Takmark er í vetur sent öllum nem-
endum 11 ára til 14 ára.
Veigamesti þátturinn í fræðslustarfi
Krabbameinsfélagsins eru þó heim-
sóknir starfsmanna félagsins í grunn-
skólana Nú i haust réð félagið nýjan
starfsmann, Birgi Finnbogason kenn-
ara, sem var um árabil markvörður
landsliðs okkar í handbolta Um miðjan
marsmánuð höfðu hann og Þorvarður
Örnólfsson framkvæmdastjóri félags-
ins heimsótt, annar hvor eða báðir, all-
an 6 bekk, allan 7. bekk og nær allan 8
bekk í höfuðborginni, 12 kaupstöðum
öðrum og 18 stöðum utan kaupstað-
anna, víðsvegar um landið. Heimsókn-
irnar hafa sums staðar einnig náð til
annarra bekkja, bæði eldri og yngri, og
samanlagt til meira en 11 þúsund
nemenda í rúmlega sjötíu skólum.
í langflestum skólunum á höfuð-
borgarsvæðinu og allvíða utan þess
hafa 6 bekkingar auk þess unnið eða
munu vinna að hópverkefnum um áhrif
og afleiðingar reykinga Krabbameins-
félagið hefur gefið út myndskreytt
fræðsluefni í fjórum aðalþáttum (76
bls.) sem lagt er til grundvallar hóp-
vinnunni og útvegar skólunum það aó
kostnaðarlausu
Félagið leggur sem fyrr mikla áherslu
á sýningu vandaðra kvikmynda í skól-
unum og eru þær flestar með íslensku
tali Eru að jafnaði sýndar mismunandi
kvikmyndir eftir því hvaða aldursflokk-
ar eiga í hlut
í öllum bekkjum sem heimsóttir eru
fá nemendurnir plaköt eða límmiða
sem Samstarfsnefnd um reykinga-
varnir hefur lagt til starfsins. □