Takmark - Lítið fréttabréf um heilbrigðismál - 01.11.1979, Side 1

Takmark - Lítið fréttabréf um heilbrigðismál - 01.11.1979, Side 1
4ítid fréttqbréf -unv heilbriqðismól ■ ■ ■ ■ W TT^rTTwww^r* I r • rWTTwwT^B^rTwl ■ rw» 3. tbl. 4. árg. Nóvember 1979 Útgefendur: Krabbamelnstélag Reykjavfkur og Krabbameinsfélag Islands, Suðurgötu 24, 101 Reykjavfk. Rltstjórar: Þorvarður ömóltsson (ábyrgðarmaður) og Jónas Ragnarsson. Upplag: 33.000 eintök. LJós- setning og offsetprentun: ODDI hf. Aukin tíðni lungnakrabbameins á íslandi: TVÖFÖLDUN Á TÆPUM TVEIMUR ÁRATUGUM Nú er hvarvetna viðurkennt að síga- rettureykingar séu langveigamesta or- sök lungnakrabbameins. I þeim lönd- um þar sem sígarettureykingar urðu tyrst algengar er þessi sjúkdómur, sem eitt sinn var sárafágætur, orðinn svo tíður að jaðrar við landfarsótt. Sem betur fer er Island ekki í hópi þessara landa Hér færðust sígarettu- reykingar ekki verulega í vöxt fyrr en um og eftir síðari heimsstyrjöid, ára- tugum seinna en viða annars staðar. Síöan hafa þær aukist stórlega og af- leiðingarnar meðal annars komið fram í síaukinni tíöni lungnakrabbameins bæði hjá körlum og konum. Krabbameinsfélag Islands hefur frá og meö árinu 1955 haldiö skrá um alla þá sem greindir hafa verið með Vetrarstarfið hafið Fræðslustarf Krabbameins- félags Reykjavíkur í skólum landsins hófst að nýju í lok septembermánaðar. Starfið verður með svipuðu sniði og síðastliðið skólaár en þá náði það til um 15 þúsund nemenda í 94 skólum víða um land, auk þess sem Takmarki var dreift til fjögurra aldursflokka í öllum skólum landsins. I haust tók Sigurður Ragn- arsson við starfi fræðslufulltrúa hjá félaginu. Munu þeir Sigurð- ur og Þorvarður örnólfsson heimsækja skóla, ræða við nemendur og sýna þeim kvik- myndir. Auk þess mun ungur læknir, Snorri Ólafsson, vinna hjá félaginu fyrri hluta vetrar. □ krabbamein hér á landi. Er meðfylgj- andi línurit byggt á upplýsingum úr skránni. Sýnir það hvernig svonefnt nýgengi lungnakrabbameins — þ.e. fjöldi nýrra sjúkdómsgreininga árlega af hverjum 100.000 íbúum, körlum annars vegar og konum hins vegar — hefur breyst síðan þe'ssi skráning hófst. Hér er miðað við fjögur sex ára tímabil og reiknað út meöalnýgengi innan hvers þeirra. I Ijós kemur að tfönin, þannig reikn- uð, hefur hjá körlum aukist úr 11.9 í 22.5 á ári eða um 89% en hjá kon- um úr 6.2 í 14.6 eða um 135% frá fyrsta skeiðinu til þess síðasta. Fjöldi tilfella síðustu árin hefur verið um fimmtíu á ári. Því miður mun tæpast vera von til að þessi óheillaþróun sé i þann veginn aö stöðvast; við höfum víst ekki enn sopið seyðið af auknum reykingum á síðustu áratugum. En við getum þó valdið Kínverjar, mesta tóbaksræktarþjóð í heimi, eru nú loksins farnir að viður- kenna opinberlega að tóbaksreykingar séu hættulegar. Núverandi valdhafar vara eindregið við heilsuspillandi áhrifum reykinga og fyrstu skrefin hafa verið stigin í þá átt að banna reykingar á opinberum stöðum. Kurteisi Kínverja er við brugöið. Þegar Joseph Califano, þáverandi heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna og ötull baráttumaður gegn reykingum, var í heimsókn í Peking fyrir nokkru var frá því skýrt að kínverskir ráðherrar hefðu bannað að reykja ( ráðstefnu- miklu um hve langt hún kemst og stuðlað að því að lungnakrabbamein verði aftur fátiður sjúkdómur hér á landi. Takmark lætur lesendur sína um að ráða í hvernig það geti oröið. □ sölum hins opinbera meðan á heim- sókninni stóð og allir öskubakkar voru teknir burt. Sérstök áhersla virðist lögð á að sporna gegn reykingum æskufólks. Til dæmis má nefna aö dagblaö í Yunnan fylki i Suðvestur-Kína birti nýlega grein frá þremur nafnkunnum læknum þar sem skorað var á ungt fólk að hætta að reykja og á skóla að taka upp fræðslu um áhrif reykinga á heilsufar. Valdhafar kenna „fjórmenningun- um" svonefndu um það hve linlega yf- irvöld tóku áður á reykingavandamál- inu. ASH Information Bulletin. Tobaken och Vi. KINVERJAR ERU LOKS FARNIR AÐ ÁTTA SIG Á HÆTTUNNI

x

Takmark - Lítið fréttabréf um heilbrigðismál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Takmark - Lítið fréttabréf um heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/276

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.