Takmark - Lítið fréttabréf um heilbrigðismál - 01.11.1979, Qupperneq 3
Sókn er besta vörnin:
GÓÐ REYNSLA AF TÓBAKSLÖG
GJÖF I NÁGRANNALÖNDUNUM
(slendingar voru þriðja Norður-
landaþjóðin sem lagði blátt bann við
öllum tóbaksauglýsingum. Gerðist það
þegar lögin um ráðstafanir til að draga
úr tóbaksreykingum tóku gildi, 1. júní
1977. (Sjá Takmark nr. 4). Skömmu
áður höfðu Norðmenn og Finnar stigið
þetta skref með víðtækri tóbakslöggjöf,
sem tók gildi í Noregi 1. júlí 1975 og í
Finnlandi 1. mars 1977. Höfðu Finnar
greinilega tekið norsku lögin sér til fyr-
irmyndar en gengu þó að ýmsu leyti
enn lengra. Bæði í norsku lögunum og
þeim finnsku eru ákvæði sem eru ekki í
okkar tóbakslögum Til dæmis kveða
þau á um skyldu til að merkja umbúðir
tóbaksvarnings með aðvörun um þá
hættu sem heilsu manna stafar af tó-
baksneyslu og bannaö er að selja
börnum yngri en 16 ára tóbaksvarning.
[ finnsku lögunum eru auk þess
ákvæði um reykingabann á ýmsum
opinberum stöðum og í almennings-
farartækjum.
Áhrif tóbakslöggjafarinnar í Noregi
og Finnlandi hafa þegar reynst greini-
lega hagstæð, einkum hafa reykingar
barna og unglinga minnkað stórlega í
Finnlandi en þar var jafnframt beitt
verulegri hækkun á sígarettuverði.
Ennþá er tóbakslöggjöf í Sviþjóð
ekki líkt því eins yfirgripsmikil og í Nor-
egi og Finnlandi. Sænsku lögin um að-
varanir á tóbaksvarningi og um lýsingu
innihalds, hvað snertir nikótín, tjöru og
kolsýrling, eru að vísu til fyrirmyndar og
sérstök „tóbaksnefnd" á vegum
sænsku ríkisstjórnarinnar hefur undir-
búiö lagafrumvarp um reyklausa staði
sem verður til mikilla framfara ef það
nær fram að ganga. Þar er mörkuð
sú meginstefna að ekki megi mót vilja
nokkurs manns baka honum óþægindi
eða hættu á heilsutjóni af tóbaksreyk á
almenningsstöðum (þar með teljast
einnig almenningsfarartæki). Takmark
mun síðar segja nánar frá þessu frum-
varpi að svo miklu leyti sem það kann
aðverðaað lögum.
Hlutverk sænsku tóbaksnefndarinn-
ar er siður en svo lokið. Henni var falið
að leggja á ráðin um samræmdar að-
gerðir til að draga úr tóbaksneyslu í
Svíþjóð og þetta er einungis fyrsti
hlutinn af áliti nefndarinnar.
Það er orðið meira en tímabært að
ríkisstjórn og Alþingi Islendinga blási til
allsherjar atlögu gegn reykingum í
þessu landi. Við þurfum, eins og Svíar,
að gera áætlun um sókn á öllum víg-
stöðvum og í því sambandi hljótum við
að þarfnast miklu víðtækari tóbakslög-
gjafar. Frumkvæðið verður að koma frá
okkur sjálfum þó að við getum sótt
ýmsar fyrirmyndir til annarra. Þ.ö.
REYKLAUSIR
BEKKIR
[ lok október voru skólastjórum
grunnskóla um allt land send eyðublöð
fyrir umsóknir um viðurkenningu sem
Krabbameinsfélag Reykjavíkur veitir
reyklausum bekkjum (6.-9. bk ).
Sækja má um slíka viðurkenningu
hvenær sem er í vetur en skilyrði er það
að sjálfsögðu að enginn í bekknum
reyki.
Á síðasta skólaári voru send 274
viðurkenningaskjöl til reyklausra
bekkja í grunnskólum. Vonandi verða
þeir ekki færri í vetur — helst fleiri. □
Uísnaþáttur
Hlynur Hendriksson orti eftir-
farandi erindi í fyrra vetur í
sambandi við hópvinnu um áhrif
og afleiðingar reykinga. Hann
var þá í 6. bekk Hólabrekku-
skóla.
EK1 slnn var maður sem reyktl
í penlngunum hann kveiktl.
Vindlana tók hann að sjúga
eins og gamalt bjúga.
Svo hætti hann að labba
vegna lungnakrabba.
Með sírenuvæll fluttur hann var
á sjúkrahúsið þar.
Þá andaðist hann.
I kistunni fann
hann kistunaglann
og tók að totta hann.
Katrín Sigurðardóttir sem var
I Æfinga- og tilraunaskóla
Kennaraháskólans síðast liðinn
vetur (þá í 6. A) samdi þessa
vísu og sendi okkur:
Hún er slæm, já ansl slæm.
Já það er sígarettan.
Af tóbaki og tjöru og reyk
hún gerir þig vel mettan.
Og el þú hættir ekkl strax
að púa þennan fjanda
þá máttu jafnvel búast vlð
að hætta brátt að anda.
Hinn landskunni hagyrðingur
Auðunn Bragi Sveinsson,
kennari í Þykkvabæ I Rangár-
vallasýslu, sendi okkur með-
fylgjandi brag til birtingar í Tak-
marki. Hann segir að notast
megi við lagið „Yfir dali, höf og
heiðar".
Ef þú metur líf þltt mlkils
skaltu' ei menga lungu þín.
Þú skalt hætta þeirri helmsku
fyrr en heilsan alveg dvín.
Ef þú svæflr sígarettur,
það er svei mér ekkert grín,
verður húðin hrukkótt snemma
og jjér hóstl veldur pín.
Þú sem ungur telst að árum,
vlltu aðeins hlýða’ á mlg:
Þú skalt forðast reykinn ramma,
svo þú ratlr ævistig.
Ef þú sýgur sígarettur
þig mun svíða reykurlnn
og þú styttir líf þitt stórum,
það er staðreynd vlnur minn.