Takmark - Lítið fréttabréf um heilbrigðismál - 01.11.1979, Blaðsíða 4
UTANUR
HEIMI
• Norður-lrland hefur nú bæst í hóp
þeirra landa þar sem bannað er að
selja bornum og unglingum sígarettur
og annan tóbaksvarning Ákvæðið
tekur til einstaklinga undir 16 ára aldri.
Er það sama aldursmark og gildir í
Noregi, Finnlandi og víðar. Brot gegn
banninu varðar allt að 50 sterlings-
punda (40 þús. kr.) sektum. ashnsws
GETRAUN TAKMARKS:
• Fyrir nokkru varð stórbruni í einni af
verslunum Woolworths í Manchester í
Englandi. Eftir það bannaði fyrirtækið
reykingar í öllum verslunum sínum í
Bretlandi og á Irlandi, en þær eru um
eitt þÚSUnd að tÖIU. ASH Intorm Bulletin
• Á síðustu tíu árum hefur reykinga-
mönnum í kennarastétt í Bandaríkjun-
um fækkað um rúman þriðjung. Nú
reykja 21% kennara en að meðaltali
reykja 34% Bandaríkjamanna. ustan
• Ættingjar tveggja manna sem dóu
úr lungnakrabba hafa höfðað skaða-
bótamál gegn tóbaksframleiðendum í
Bandaríkjunum. Málið er rekið fyrir
dómstóli í San Francisco. ash n«ws
• Þriggja ára rannsókn í Bandaríkjun-
um leiddi í Ijós að gáleysi við reykingar
olli meira en helmingi eldsvoða í ibúð-
arhúsnæði þar í landi. Sérstaklega var
það talið hættulegt þegar saman færu
reykingar og áfengisneysla.
The Practioner
theimktlUi
iókéhumt
Nýlega kom tíðindamaður Takmarks
í Engidalsskóla, hinn nýja og fallega
skóla Hafnfirðinga. Athygli vakti að þar
var hvergi öskubakka að sjá, hvorki á
kennarastofu, vinnuherbergjum kenn-
ara né skrifstofuherbergjum. Skýringin
er sú að starfslið skólans fylgir þeirri
reglu að reykja ekki í skólanum.
Reyndar á það við um langflesta kenn-
arana að þeir reykja alls ekki, en þeir
fáu sem reykja sýna þá lofsverðu til-
litssemi við samkennara og nemendur
að menga ekki loftið í skólanum með
tóbaksreyk. □
Minnt á holla lífshætti
Nú í haust eru liðin þrjú ár síðan
Takmark hóf göngu sína og af því
tilefni kynnum við hér fjórðu verð-
launagetraun blaðsins. Eins og fyrr
er reynt að hafa getraunina viðráð-
anlega fyrir sem flesta og væntum
við því mikillar þátttöku. Heildar-
andviröi þeirra verðlauna sem eru í
boði er um 250 þúsund krónur, eða
svipað og sú upphæð sem fólk
sparar á einu ári með því að reykja
ekki, borið saman við að reykja einn
sígarettupakka á dag Er þá miðað
við núverandi pakkaverð, 680
krónur.
Getraunin er fólgin í því að finna
orðin sem vantar í línur númer 1 — 6
(í einu tilviki er það aðeins fyrri hluti
orðs) og eftir það lausnarorðið. f
hverri línu eru reitir fyrir viðkom-
andi orð, jafnmargir og stafirnir í
orðinu. Fyrir aftan línuna eru allir
þessir sömu stafir, en í stafrófsröð.
Þegar orð er fundið er það fært inn
á reitina, einn stafur í hvern reit.
Ellefu reitir eru merktir með töl-
um. Stafirnir, sem í þeim lenda,
mynda í réttri töluröð sjálft lausn-
arorðið. Skal það fært í neðstu lín-
una á lausnarseðlinum. Seðilinn
þarf þó að fylla allan út og senda til
Takmarks, Pósthólf 523, 121
Reykjavík fyrir 15. janúar 1980 og
úrslitin verða birt í febrúarblaðinu.
Úr réttum lausnum verður dregið
um tíu vinninga sem eru þessir:
1. Dvöl á unglinganámskeiöi
næsta sumar í Skíöaskólanum í
Kerlingarfjöllum.
2. Philips AS 180 útvarpsklukka frá
Heimilistækjum hf.
3. Tólf bækur í safni Alfræöa
Menningarsjóös.
4 Casio Melodical 80 vasatölva
meö spilverki frá Stáltækjum sf.
5. —10. Hljómplata aö eigin vali frá
Steinum hf.
Vinningarnir eru gefnir að miklu
eða öllu leyti og skal það þakkað
hér með.
Um leið og aðstandendur Tak-
marks hvetja lesendur til þátttöku í
getrauninni er þess einnig óskað
að lesendurnir hugleiði þær lífs-
venjur sem hér er vakin athygli á.Q
1 3 LOFTí LUNGUN
REGLULEGIR 4 5tímar
6 MATUR OG DRYKKUR
HÆFILEG HREYFING OG 7 5
9 10 OG RÉTTUR KLÆÐNAÐUR
NÆGUR SVEFN OG 11
EHINRT
AÁLMMST
HLLORU
AEIRTÚV
EHIILNRTÆ
DHÍLV
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10