Takmark - Lítið fréttabréf um heilbrigðismál - 01.03.1983, Page 1
FRUMVARP TIL LAGA
UM TÓBAKSVARNIR
LAGT FRAM Á ALÞINGI
Ef Alþingl samþykklr frumvarp tll
laga um reykingavarnir sem nú hefur
verið lagt fram í efri deild, stigur það
mikilvægt skref í mengunarvörnum
því að frumvarpið felur i sér nokkuð
víðtækar takmarkanir á tobaksreyk-
ingum, algengasta mengunarvaldin-
um i þjóðfélagi okkar.
Þetta er stjórnarfrumvarp en heilbrigð-
ismálaráðherra hafði forgöngu um að
það var samið. Til þess skipaði hann
sérstaka nefnd (Reykingavarnanefnd
hina fyrri) sem var einnig falið að sinna
reykingavörnum almennt og tók að því
leyti við af Samstarfsnefnd um reykinga-
varnir (sjá Takmark nr. 17).
Hið nýja lagafrumvarp er mjög í anda
þeirra tilmaela sem Alþjóða heilbrigðis-
stofnunin hefur sent aðildarríkjum sínum
varðandi löggjöf um tóbaksmál og að
ýmsu leyti var höfð hliðsjón af erlendum
Fnimvarp til laga
um tobuksvarnir.
(Lagt fynr Alþinyi á 105 logg>afarþmgi 1W2—83.)
I KAFLI
Martaúft. pldéMvið o« Xfora.
I gr
II. Markmið laga þessara er að draga úr tóhaksncvslu og þar með þvi heihut)óni icm hun
veldur og vernda fölk fynr áhnfum tóbaksneyslu
2.1. Með lóbaki er í lögum þessum átt við tohakv)urtir (mcotiana) og allan varnmg unntnn
ur þeim ttl neyslu, svo sem ugarettur, vmdU. reyktóbak. neftóbak og munntóbak
2.2. Log þessi taka einnig til vamings. sem ctlaður er Ul neyslu með sama hattti og tóbak,
þótt hann inmhaldi ekki tóbak, enda gildi ekki um hann onnur log
2.3. Log þessi gikla ekki um lóbak. sem notað er scm lyf skv lyf)alogum nr 49/1978 eða
sem eiturefni skv logum nr 85/1968. um etlurefni og hcttuleg efni.
3 I Með revkfarmm er i logum þessum átl við ahold og útbunað. lengdan tóbaksreykmg-
um. svo sem sigarcttupappir. reykjarpipur. Urki til að vefja stgarettur svo og annan
slikan vaming
4 gr
4 I Yfirst)óm mála skv ktgum þessum er i hondum heilbrigðts- og tryggmgamaU
ráðherra.
5 gr
3.1. Ráðherra skipar lóbaksvamaráð til ffogurra ára i senn f ráðtnu eiga scti 3 menn.
og skulu amk tveir vera sérfroðir um skaðsemi tóbaks eða tóbaksvamir V aramenn
skulu skipaðir á sama hátt Ráðherra skipar einn ráðsmann formann
3.2. Hlutverk tnbaksvamaráðs er fyrst og fremst:
1. Að vera nkisst|om. heilbngðismalaráðhcrra. hcilbngðisncfndum. Hollustuvernd
rikisms og oðrum opinberum aðilum lil ráðuneytis um allt er að lóbaksvómum
lýtur
2. Að gera tillogur lil st)órnvalda um ráðstafanir til þcss að vinna gegn neyslu tóbaks t
samrarmi við kvg þesu
3 Að hvetia aðra aðtla lil álaks i rcykingavornum og lcitast við að samrcma siorf
þeirra
4 Að veita aðstoð og leiðbcmmgar varðandi tobaksvamir m a með þvi að gefa ut
og útvega frcðsiunt ng onnur frzðslugogn
3 Að fylgiast með tóbaksneyslu i landmu
b. Að nyta reynslu og þckkmgu annarra þjóða a sviði lóbaksvama
tóbakslögum, einkum hinum finnsku frá
árinu 1977.
Líklega munu ákvæði 3. kafla um tak-
mörkun á tóbaksreykingum vekja einna
mesta athygli enda stigið stórt skref í
mengunarvörnum verði þau að lögum.
Þá verður t. d. óleyfilegt að reykja í af-
greiðslum verslana (þar með taldar
sjoppur), banka, póst- og símstöðva og
annarra stofnana og fyrirlækja, einnig
biðstofum fyrir almenning og göngum og
lyftum sem almenningur þarf að nota á
leið sinni á slíka staði. Einnig verða reyk-
ingar þá alveg bannaðar i áætlunarbif-
reiðum og flugvélum í innanlandsflugi.
Sama er að segja um grunnskóla, dag-
vistir barna (dagheimili, leikskóla), fé-
lags- og tómstundastöðvar fyrir börn og
unglinga og heilsugæslustöðvar, nema
hvað ætla má starfsfólki sérstakt „reyk-
pláss", sé þess kostur án þess að baga
þá sem reykja ekki. Bann við reykingum
á þessum stöðum var talið mikilvægt
bæði sem fordæmi og mengunarvörn en
ekki þótti fært að gera ítrustu kröfu til
starfsfólksins að þessu leyti.
Vafalaust er að mikill meirihluti þjóðar-
innar mun fagna þessum reglum, þar á
meðal börnin í landinu og allt það fólk
sem verður af fremsta megni að forðast
tóbaksreyk, t. d. vegna ofnæmis, astma
eða annarra lungnasjúkdóma. Sumum
mun jafnvel ekki þykja nógu langt geng-
ið. Ótrulegt er annað en flestir reykinga-
menn sætti sig við reglurnar þegar þar
að kemur, a. m. k. sé þeim Ijóst hvílíkri
skapraun, óþægindum, vanlíðan og
heilsuspjöllum tóbaksreykur getur valdið
fólki sem reykir ekki.
Ýmis önnur nýmæli eru í lagafrum-
varpinu. Er sérstök ástæða til að geta
um eitt þeirra hér i Takmarki, bann við
að selja tóbak börnum og unglingum 15
ára og yngri. Segir í athugasemdum
með frumvarpinu að það sé i samræmi
við tilmæli Alþjóða heilbrigðisstofnunar-
innar. Sams konar bann er í lögum t. d. í
VERÐLAUNA-
SAMKEPPNI
Það ætti ekki að hafa farið
fram hjá neinum að Reykinga-
varnanefnd hefur efnt til verð-
launasamkeppni meðal grunn-
skólanemenda. Viðfangsefnið er
veggspjöld og myndasögur sem
varða reykingavandamálið.
Myndir þarf að senda til nefndar-
innar fyrir 20. mars, sbr. auglýs-
ingu sem send var öllum skólum.
Þær tíu myndir sem verðlaun
hljóta verða væntanlega birtar i
Takmarki.
HAFNAR ALLRI
EITURNEYSLU
„Alltof mikið er af því, að ungt fólk sé
farið að nota vímuefni," segir fulltrúi
ungu kynslóðarinnar 1982, Kolbrún
Anna Jónsdóttir í viðtali við Tiskublaðið
Líf fyrir nokkru. í viðtalinu kemur fram að
sjálf notar hún hvorki tóbak, áfengi né
önnur vímuefni og er algjörlega á móti
eiturlyfjaneyslu. □
Noregi og Finnlandi, og þykir þar ómiss-
andi þó að erfitt sé að framkvæma það
til fulls.
Ef ekki þyrfti að taka mið af öðru en
skaðsemi tóbaksneyslu, lægi beint við
að banna sölu tóbaks að fullu og öllu.
(Sjá greinina Skákin við tóbakspúkan í
Takmarki nr. 20 og viðtal við landlækm í
Takmarki nr. 23.) Svo einfalt er málið
víst ekki, því miður, og getur hver maður
litið I sinn eigin barm, hvort strandar á
honum. En það er ekkert, alls ekkert,
sem getur varið að við látum pranga
þessari vöru inn á börnin í landinu og
gerum þannig hverja kynslóðina af ann-
arri háða hættulegu ávana- og fíkniefni.
Eða hvað mun alþingismönnum okkar
finnast?
Þ. Ö.