Takmark - Lítið fréttabréf um heilbrigðismál - 01.05.1983, Qupperneq 1
2. tbl. 8. árg.
Maí 1983
Útgefandi: Krabbameinsfélag Reykjavíkur.
Suðurgötu 24, Reykjavík, Pósthólf 523.
Ritstjórar: Þorvarður örnólfsson (ábyrgðar-
maður) og Jónas Ragnarsson.
Upplag: 30.000 emtök. Prentun: ODDI hf.
Verðlaunasamkeppni Reykingavarnanefndar:
Á ÞRIÐJA ÞÚSUND VEGGSPJÖLD
OG MYNDASÖGUR BÁRUST
Þeir sem völdu myndir til verdlauna I
myndasamkeppni Reykingavarna-
nefndar áttu úr vöndu aö ráða. Svo
margar góðar myndir bárust. Miklu fleiri
en þaer sem að endingu voru valdar
hefðu sómt sér vel i verðlaunasæti.
Alls bárust nefndinni á þriöja þúsund
myndir og myndasögur úr langflestum
grunnskólum landsins. Sums staðar
hafði farið fram forval áður en myndirnar
voru sendar og hafa þátttakendur því
eflaust verið mun fleiri en þessi mynda-
fjöldi segir til um.
Tilgangurinn með samkeþþninni var
fyrst og fremst að gefa unga fólkinu
tækifæri til að tjá sig á myndmáli um
skaðsemi reykinga og baráttuna gegn
þeim, en jafnframt var vonast til að fram
kæmu myndir sem hægt væri að nota í
þessari baráttu. Til dæmis hefur verið
rætt um að gefa út veggspjöld með ein-
hverjum myndanna.
Ákveðið var i nóvember að efna til
þessarar samkeppni en hún hófst í janú-
ar. Óskað var eftir þvi að myndmennta-
kennarar hjálpuðu til við framkvæmdina
hver í sínum skóla. Félag þeirra tilnefndi
Hrafnhildi Gunnlaugsdóttur og félag
auglýsingateiknara Önnur Þóru Árna-
dóttur til að aðstoða Reykingavarna-
nefnd við að velja myndir til verðlauna.
Veitt voru peningaverðlaun fyrir 12
veggmyndir og 6 myndasögur. Voru þau
afhent með viðhöfn í móttökuhúsnæði
ríkisstjórnarinnar við Borgartún í Reykja-
vik, að viðstöddum nær öllum verð-
launahöfunum. Fimm þeirra voru utan af
landi og var þeim boðið til Reykjavíkur á
kostnað Reykingavarnanefndar af
þessu tilefni.
Formaður nefndarinnar, Guðrún Guð-
laugsdóttir, afhenti verðlaunin. Einnig
voru á staðnum aðrir nefndarmenn, þeir
dr. Þórður Harðarson og Þorvarður Örn-
ólfsson, og fulltrúar frá heilbrigðisráðu-
neytinu og Hollustuvernd ríkisins. Auk
þess voru viðstaddir allmargir aðstand-
endur verðlaunahafanna og fréttamenn
frá dagblöðum og sjónvarpi.
Tveir bekkjarbræður í 7 ára bekk í
Fossvogsskóla skiptu með sér aðalverð-
laununum. Sjást þeir hér á forsíðunni
með verðlaunamyndiria. Inni í blaðinu
eru svo myndir af öðrum sem verðlaun
hlutu. Vísað er til texta með þessum
myndum varðandi nöfn verðlaunahafa
og skólanna sem þeir eru í.
Allir þátttakendur í samkeppninni eiga
að fá viðurkenningarskjal frá Reykinga-
varnanefnd.
Ráðgert er að halda í maímánuði
sýningu á verðlaunamyndunum og fleiri
góðum myndum úr samkeppninni. Von-
andi verður svo hægt að birta fleiri
myndir úr þessari samkeppni í Takmarki
næsta vetur. □
Þessir tveir strákar úr Fossvogsskola
i Reykjavik fengu sameiginlega aðal-
verðlaunin í samkeppni Reykinga-
varnanetndar. annar átti hugmyndina
en hinn teiknaði myndina. Vinstra
megin er Björn Garri Sigurðsson en
til hægri er Sigurður Sævar Sig-
urðsson.