Veðráttan - 01.07.1932, Page 1
VE DRÁTTAN 1932
MÁNAÐARYFIRLIT SAMIÐ Á VEÐURSTOFUNNI
Júlí.
Tíðarfarið var hagstætt fyrir heyskap á Suður- og Vesturlandi, hlýtt og
nægilegir þurkar, svo að töður náðust með góðri hirðingu. Norðanlands og
austan var fremur kalt í veðri og votviðrasamt, og hey hröktust nokkuð sum-
staðar. Spretta er talin góð, einkum á túnum; töðufengur var því mikill. Gæftir
og afli var sæmilegur. Þó vantaði oft beitu á Norðurlandi.
Þ. 1.—6. Austan og norðaustan átt. Djúp lægð við Suðureyjar hreyfðist
norðvestur eftir og nam síaðar við suðurströnd íslands. Varð vindur hvass af
norðaustri fyrst í stað, einkum á Vestfjörðum.
Þ. 7.—11. Breytileg átt og hægviðri. Oftast norðanátt og þokusælt á
Norðurlandi. Skúrir sunnanlands. Grunnar lægðir yfir landinu eða sunnan og
austan við það.
Þ. 12.—14. Lægð fyrir suðvestan landið á hreyfingu norðaustur eftir.
Olli hún fyrst suðaustan átt og regni vestanlands. Síðan nattt lægðin staðar
yfir miðju Iandi, svo vindstaða varð breytileg.
Þ. 15.—16. Norðaustan hægviðri. Lægð fyrir suðaustan ísland.
Þ. 17.—21. Lægð yfir Grænlandshafi olli sunnanátt og regni um allt
land í fyrstu, en síðan færðist lægðin austur yfir landið og brá til norðvestan-
og norðanáttar.
Þ. 22.-23. Nýjar lægðir vestan yfir Grænland ollu á ný sunnanátt og
nokkurri rigningu. Brátt færðist þó aðallægðin suður fyrir ísland og varð vind-
ur hvass austan við suðurströndina (h. 23.).
Þ. 24. —31. Lægðin komin suðaustur fyrir landið. Ðrá til austan og norð-
austan áttar, sem^ hélzt því nær óslitin til mánaðarloka.
Loftvægið var 1.6 mm fyrir neðan meðallag á öllu landinu, frá 0.9 mm
á Rfh. til 2.0 mm í Rvk. og Vm. Hæst stóð loftvog á Rfh. þ. 16. kl. 22 og
á Tgh. þ. 17. kl. 6, 768.7 mm, en lægst í Vm. þ. 2. kl. 14, 734.1 mm.
fiitinn var 0.2 ° yfir meðallag á öllu landinu. Tiltölulega hlýjast var sunn-
anlands. Þar var hitinn rúmlega 1° yfir meðallag (mest 1.6° á Eyraib). A
Vestur- og Suðausturlandi var hitinn víðast í góðu meðallagi, en norðan til á
Vestfjörðum og á Norður- og Norðausturlandi var kaldara en venjulega í þess-
um mánuði, — kaldast var á ísaf., hitinn 1.0° undir meðallagi. Fyrstu 10 daga
mánaðarins var hitinn í kringum meðallag, kaldast var þ. 2. og 9.—10., hitinn
1 ° fyrir neðan meðallag. Frá þ. 11. var heldur hlýrra en venjulega, þó var
hitinn aðeins 3 daga (þ. 11.—12. og 28) 2° yfir meðallag. Hæstur hiti mæld-
ist 22.0° á Hrn. þ. 16.,- en lægstur — 0.9° á Eið. þ. 30.
Sjávarhitinn við strendur landsins var 0.10 fyrir neðan meðallag, frá
1.3° fyrir ofan það við Vm. til 1.7° fyrir neðan við Tgh.
Jarðvegshitinn á Rafm. var 10 6° í 1 m dýpi og 7.8° í 2 m dýpi. A
Smst. var hann 7.9 í 1 m dýpi.
(25)