Veðráttan - 01.09.1932, Blaðsíða 1
VE DRÁTTAN 1932
MÁNAÐARYFIRLIT SAMIÐ Á VEÐURSTOFUNNI
September.
Tíðarfarið var fremur umhleypingasamt, en allbreytilegt eftir landshlut-
um. Allstaðar gátu menn hirt hey sín, en sumstaðar voru þau orðin hrakin,
en þó var nýting þeirra víðast góð. Garðávextir náðúst óskemmdir af frostum,
en allmikil brögð voru að kartöflusýki sunnanlands. Gæftir í meðallagi, en
þorskafli tregur.
Þ. 1.—3. Lægð við vesturströnd Islands, en færðist síðan austur yfir
landið. Var vindur fyrst tvíátta en gekk svo í norðrið með hvassviðri og ill-
viðri norðanlands.
Þ. 4.-8. Lægði norðanveðrið um stundarsakir og brá til austanáttar vegna
lægðar, sem fór austur fyrir sunnan landið. Veður gott, úrkomulítið og stillt.
Þ. 9.—10. Lægð yfir Grænlandshafi og hreyfðist síðan austur með suð-
urströnd íslands til Færeyja. Hvessti fyrst á suðaustan en síðan gekk vindur
»inn í« og varð austan og norðanstæður.
Þ. 11.-12. Grunn lægð yfir íslandi. Breytileg átt og víðast hægviðri
en nokkuð rigningasamt.
Þ. 13.-15. Lægð fyrir suðvestan landið og færðist norðaustur yfir
Vestfirði. Suðaustan hvassviðri og rigning um allt land fyrst, en gekk svo í
suðvestrið, og loks í norðan og vestanátt, þegar lægðin var komin norð-
austur fyrir landið.
Þ. 16.-20. Lægð úr vestri fór austur með suðurströndinni. Olli fyrst
suðaustanátt og rigningu. en síðan norðaustanátt, og kólnaði allmjög, en stillti
brátt til.
Þ. 21.—25. Grunn lægð fór á ný austur með suðurströnd landsins og
olli fyrst hægri suðaustanátt, en snerist brátt í norðaustan- og norðanátt. Var
stundum allhvasst, en hægviðrisdagar á milli.
Þ. 26.-28. Víðáttumikil Iægð kom vestan yfir Grænland. Brá þá til suð-
vestanáttar um allt land og votviðra vestanlands.
Þ. 29.-30. Að kvöldi hins 29. var lægðin komin austur fyrir landið og
gerði þá norðanátt, er stóð til mánaðarloka. Var fyrst allhvasst á Norðurlandij
en lygndi fljótlega.
Loftvægið var 0.9 mm fyrir neðan meðallag til jafnaðar á öllu landinu, frá
0.2 mm yfir meðallag á ísaf. til 1.7 mm undir meðallagi á Sf. Hæst stóð loftvog
í Sth. þ. 30. kl. 116 og á ísaf. þ. 30. kl. 11. 774.0 mm, en lægst í Grvk. þ.
1. kl. 00, 725.3 mm.
fiitinn var 0.8 undir meðallagi á öllu landinu. Kaldast var inni í land-
inu — á Grst. 1.4 ' fyrir neðan meðallag, en tiltölulega hlýrra með strönd-
um fram, og einkum vestan tii á Norðurlandi, hitinn 0.2° yfir meðallag á
Blds. Þ. 1., 8.—10., 14., 20,—21. og 26.-29. var fremur hlýtt í veðri, hlýjast
eftir hætti var þ. 27., hitinn 4° yfir meðallag. Annars var kaldara en venju-
lega, kaldast var þ. 23. og 30., hitinn 3 ° undir meðallagi. Hæstur hiti mældist
15.8° á Eið. þ. 27., og lægstur einnig á Eið.,' —7.8° aðfaranótt þ. 24.
Sjávarhitinn var 0.4° yfir meðallag frá Vm. vestur um land til Grnh.,
en austanlands frá Rfh. til Pap. 0.4 fyrir neðan meðallag.
Jarðvegshitinn á Rafm. var í 1 m dýpi 10.1 0 og 2 m dýpi 9.1 °. Á Smst,
varð jarðvegshitinn 8.7° í 1 m. dýpi.
Úrkoman var í meðallagi, 99 °/o úr meðalúrkomu á öllu landinu. Hún
var tiltölulega minnst austanlands, aðeins 40°/o úr meðalúrkomu á Tgh., en
(33)