Veðráttan - 01.10.1932, Page 1
♦
VE DRÁTTAN 1932
MÁNAÐARYFIRLIT SAMIÐ Á VEÐURSTOFUNNI
Október.
Tíðarfarið var nokkuð óstöðugt, en annars yfirleitt hagstætt, hægviðra-
samt, snjólítið og góðir hagir. Gæftir voru stopulir og afli víðast tregur.
Þ. /. dag mánaðarins var hlý vestanátt. Lægð fyrir norðan landið en
hreyfðist síðan mjög hratt suðaustur um Skotland.
Þ. 2. Hæg norðanátt og bjartviðri.
Þ. 3—5. Hæg sunnan og suðvestan-veðrátta, hlýindi og hægviðri.
Lægð yfir norðanverðu Grænlandi fyrst, en færðist síðan suðaustur fyrir
ísland.
Þ. 6.-9. Norðanátt. A Vestfjörðum tók að hvessa að kveldi hins 7. og
gerði norðaustan hvassviðri og regn um allt land næsta dag, en lygndi síðan.
Þ. 10. Hægviðri. Milt og úrkomulítið.
Þ. 11.—12. Lægð yfir Grænlandshafi. Hæg sunnanátt með hlýindum og
regni suðvestanlands.
Þ. 13.—14. Norðanátt. Lægðin komin suðaustur um Færeyjar. Rigning
norðanlands og austan, en lengst af hægviðri.
Þ. 15.—18. Lægð við Suðvesturland og hreyfðist síðan austur um Fær-
eyjar. Fyrst suðaustanátt en síðan hæg norðanátt. Hiti um 0° og gerði snjóföl
norðanlands.
Þ. 19.—24. Djúp lægð og óveður mikil til hafsins suður undan. Færðist
Iægðin norður eftir og gerði austan ofsaveður við suðurströndina, en í öðrum
landshlutum varð að eins snarpur vindur. Eyddist svo Iægðin skammt fyrir
sunnan landið og hélzt austan og norðaustanátt á meðan. Veður var milt og
úrkomulítið suðvestanlands en kalsaveður og úrkoma á Norðausturlandi.
Þ. 25.-27. Ný lægð úr suðvestri. Olli þrálátu austanhvassviðri við suð-
vesturströndina, en norðanlands var hægviðri og nokkurt frost.
Þ. 28.-30. Lægð úr norðvestri fór suðaustur yfir Reykjanes og síðan
suðaustur um Skotland. Fyrst austanátt hæg en gekk svo í norðanátt allhvassa
með snjókomu norðanlands og frosti um allt land.
Þ. 31. Lægð suðvestan úr hafi olli hvassri suðaustanátt á Suðvesturlandi.
Loftvægið var 2,0 mm fyrir neðan meðallag á öllu landinu, frá 0.5 mm
á ísaf. til 3.1 mm á Rfh. Hæst stóð loftvog í Vm. þ. 1. kl. 00, 771.0 mm,
og lægst einnig í Vm. þ. 20. kl. 12, 731.7 mm.
Hitinn var 0.6° undir meðallagi á öllu landinu, frá 1.7° undir meðallagi
á Grst. til 0.4° yfir meðallag í Höfn. Fram til þ. 13. var hitinn oftast 1—2°
yfir meðallag, aðeins þ. 2. og 7. var heldur kalt. Þ. 20.—22. var einnig fremur
hlýtt í veðri. En þ. 14.—19. og frá þ. 23. til mánaðarloka var kalt og þó einkum
3 síðustu daga mánaðarins. Hlýjasti dagurinn var sá 11., þá var hitinn 3°
yfir meðallag á öllu Iandinu, en kaldast var þ. 30., hitinn 5° fyrir neðan
meðallag. Hæstur hiti mældist 12.9° á Tgh. þ. 1., en lægstur — 17.2° á Grst.
aðfaranótt þ. 31. * '
(37)