Veðráttan - 01.11.1932, Blaðsíða 1
VEÐRATTAN 1932
MÁNAÐARYFIRLIT SAMIÐ Á VEÐURSTOFUNNI
Nóvember.
Tíðarfarið var hlýtt, en víða mjög úrkomusamt framan af. Um þ. 20.
brá til norðanáttar með frosti og snjókomu og stóð til mánaðarloka. Gæftir
stopular, og afli misjafn.
Þ. 1—2. Suðaustan og austanveðrátta. Milt og stormasamt einkum sunn-
anlands. Lægð fyrir sunnan landið á hreyfingu austur eftir.
Þ. 3. Hæg norðaustanátt og góðviðri á milli lægða.
Þ. 4.—13. Hlýindakafli. Hver lægðin eftir aðra fór norður eftir Græn-
landshafi og skiftust á hvassir sunnanvindar með miklu regni og fremur hæg
útsynningsveðrátta. Mæddi það einkum á vestanverðu landinu, en nyrðra og
eystra voru margir blíðviðrisdagar.
Þ. 14.—16. Hægviðriskafli. Þessa daga var háþrýstisvæði yfir landinu
eða sunnan við það og stillt og milt veður eins og að vorlagi.
Þ. 17.-18. Sunnan og suðvestanveðrátta á ný. Fór hver lægðin eftir
aðra norðaustur eftir Grænlandshafi.
Þ. 19.-20. Norðanátt. Að morgni þ. 19. var lægðarmiðja skammt út
af Reykjanesi og hreyfðist síðan beint norðaustur yfir landið. Gerði fyrst
hvassan norðangarð með bleytuhríð nyrðra, en lygndi brátt aftur.
Þ. 21.-26. Lægð yfir Grænlandshafi olli aftur sunnanátt og úrkomu
vestanlands. Síðan færðist lægðin norðaustur yfir og gekk til norðanáttar með
stórhríð og allmiklu frosti norðanlands. Hríðin stóð þó ekki lengi og hélzt
síðan fremur hæg norðanátt.
Þ. 27.—30. Ný Iægð fór norður eftir Grænlandshafi og olli illviðri hér
á landi. Fyrst var sunnan stormur og rigning, en snérist að morgni þ. 28.
í vestrið með snörpum hríðaréljum. Loks gekk svo í norðanátt með hríðar-
veðri og talsverðu frosti norðanlands.
Loftvægið á öllu landinu var 2.3 mm fyrir neðan meðallag, frá 1.3 mm
á Hól. til 3 1 mm á Ak. og Rfh. Hæst stóð loftvog 775.7 mm í Vm. þ. 15.
kl. 1, en lægst einnig í Vm. 713.7 mm þ. 22. kl. 3.
fiitinn var til jafnaðar 1.5° yfir meðallag á öllu landinu, frá 2.9° á Hrn.
til 0.6° á Kvgd. og Nbst. Fram til þ. 19. voru hlýindi nema þ. 3., þá var hit-
inn í tæpu meðallagi. Hlýjast var þ. 11. —12., hitinn 8° yfir meðallag. Frá þ.
20. til mánaðarloka var yfirleitt kalt, að eins hlýnaði snöggvast þ. 28. (2° yfir
meðallag). Kaldast var þ. 25., þá var hitinn 6 undir meðallagi. Hæstur hiti
mældist 15.0° á Hrn. þ. 11., en lægstur —19.7° á Grst. þ. 27.
Sjávarhitinn umhverfis landið var 0.4° yfir meðallag, frá 1.1° fyrir ofan
það við Grvk. til 0.2° fyrir neðan við Rfh.
Jarðvegshitinn á Rafm. var 5.5° í 1 m dýpi, en 8.5° í 2 m dýpi. Á
Smst. yar hann 4.7° í 1 m dýpi.
Úrkoman var allmikil, 42 °/o umfram meðallag á öllu landinu. Mest eftir
hætti var hún á Hvn., 175 °/o umfram meðallag eða 2 3/4 sinnum meðalúrkoma.
Sumstaðar var þó minni úrkoman en venjulega, og tiltölulega langminnst í
Höfn, aðeins 8.6 mm, 17 o/o úr meðalúrkomu. Úrkomudagar voru 4 fram yfir
meðallag sunnanlands og vestan, frá Tgh. til Sðr., en frá Grnh. norðanlands
og austan til Pap. voru þeir 1 færri en venjulega. Mest mánaðarúrkoma
var í Hveradölum 427.3 mm. Þar var einnig mest sólarhringsúrkoma, 72.6
mm þ. 7. Á Arnarstapa var mánaðarúrkoman 241.0 mm, á Öndverðarnesi
99.5 mm og á Ulfljótsvatni 228 2 mm. Laust fyrir miðjan mánuðinn féllu
margar skriður úr Kolbeinsstaðafjalli vegna stórrigninga og skemmdu engjar.
(41)