Veðráttan

Árgangur

Veðráttan - 01.08.1947, Síða 1

Veðráttan - 01.08.1947, Síða 1
VEÐRATTAN 1947 MÁNAÐARYFIRLIT SAMIÐ Á VEÐURSTOFUNNI Ágúst. Tíðarfarið var einmuna gott á Norðurlandi og þó sérstaklega um norðaust- anvert landið og var nýting þar á heyjum afbragðs góð. Á Suður- og Vesfur- landi viðraði aftur á móti afar illa til heyskapar, svo að sums staðar var taðan óhirt í mánaðarlok. Þ. 1.—13. gengu lægðir norðaustur yfir landið eða norðan við það. Vindátt var allbreytileg, en þó oftast milli suðausturs og suðvesturs. Þ. 1. var víða hvasst (Rkhl. SW 10, Dt. NW 10). Úrkoma var nokkur um allt land, sérstaklega á Suður- og Vesturlandi. Á Suðurlandi var hitinn um meðallag, en annars staðar var fremur hlýtt. Þ. 14.—31. var háþrýstisvæði fyrir austan land, en lægðir fyrir vesfan. Vindátt var milli suðausturs og suðvesturs, og var stundum hvasst (þ. 16. Sd. veðurhæð 10; þ. 17. Sðr. SW 10; þ. 22. S3r. S 10; þ. 26. Rvk. ESE 10, Bol SSE 10). Á Suður- og Vesturlandi var mjög rigningasamt og hifi heldur yfir meðallagi, en á Norður- og Austurlandi var þurrviðrasamt og mikil hlýindi. Loftvægið var 1.2 mm yfir meðallagi á öllu landinu, frá 3.8 mm yfir því á Hólum að 2.6 mm undir því í Bol. Hæst stóð Ioftvog 772.1 mm þ. 20. kl. 23 á Kbkl., en lægst 738.8 mm þ. 9. kl. 19 í Rvk. Iiitinn var 2.6° yfir meðallagi á öllu landinu. Um norðaustanvert landið var sérlega hlýtt, hiti 4°—5° yfir meðallagi, mun þetta vera hlýjasti ágústmánuður í þessum landshluta síðan mælingar hófust, þó var nærri eins hlýtt þar 1939. Svalast var á Suðvesturlandi, hiti J/2°—1° yfir meðallagi. Alla daga mánaðarins var hitinn meiri en venjulega, frá rúmu meðallagi að 6° yfir því. Hlýjast var þ. 22. og 26., hiti 5°—6° yfir meðallagi, en svalast þ. 4.-5., hiti í rúmu meðal- lagi. Sjávarhitinn við strendur landsins var 1.4° yfir meðallagi, frá því í meðal- lagi við Rvk. og Vm., að 3.5° yfir því við Tgh. Urkoman var 70°/o umfram meðallag á öllu landinu. Langmest var úr- koman í Kvgd., fjórföld meðalúrkoma. Á Suðvesturlandi var víðast um það bil tvöföld meðalúrkoma. Minnst að tiltölu var úrkoman á Akureyri, ríflega 30% af meðaltali. Úrkomudagar voru 4—10 fleiri en venjulega um sunnan- og vest- anvert landið, en fyrir austan og norðaustan 3—7 færri en venja er til. Úr- koman á Seyðisfirði mældist 24.5 mm. Þoka var að tiltölu fátíð nema á Suður- og Suðausturlandi. Á Norðaustur- jandi var allt að 7 þokudögum færra en venja er til (Fgdl.). Á Suðausturlandi voru fjórir þokudagar umfram meðallag og í Vm. átta. Um þoku var getið alla daga mánaðarins nema þ. 29., aðallega á Suðausturlandi. Helztu þokudagar voru 3., þoka á 14 stöðvum víðsvegar um land og 2., 4. og 21.—22., þoka á 8—9 stöðvum sunnan lands og suðaustan. Vindar. Sunnan og suðvestan áttir voru að tiltölu tíðastar í mánuðinum, en norðan átt sjaldnast. Logn var sjaldnar en venjulega og meðalveðurhæð tæpu (29)

x

Veðráttan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðráttan
https://timarit.is/publication/278

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.