Veðráttan

Ukioqatigiit

Veðráttan - 01.11.1949, Qupperneq 1

Veðráttan - 01.11.1949, Qupperneq 1
VEÐRATTAN 1949 MÁNAÐARYFIRLIT SAMIÐ Á VEÐURSTOFUNNI Nóvember Tíðarfarið var lengst af hagstætt. Snjólétt var um allt land og samgöngur greiðar. Gæftir voru þó stundum tregar. Nokkur síldveiði var við Reykjanes, en annars staðar mun bátaafli hafa verið fremur tregur. Um miðjan mánuðinn var góður afli hjá togurum á Halamiðum. Þ. 1.—4. var freinur lilýtt, liiti á öllu landinu að meðaltali 0°—3° liærri en í meðalárfcrði. Vindátt var breytileg, en þó aldrei norðlæg. Þ. 1. og 2. var víða livasst á Suður- og Vesturlandi. Á fáeinum stöðvum norðan lands var snjókoma eða slydda, en víða á Suðurlandi var allstórfelld rigning. Lægðir komu suðvestan úr hafi og fóru til norðausturs yfir landið eða norðvestanvert við það. Þ. 5.—14. var lengst af tiltölulega kalt, hiti 0°—4° undir ineðallagi. Þ. 13. var kaldasti dagur mánaðarins. Þá var 3°—7° kaldara en í meðalári á þeim stöðvum, sem dagsmeðaltöl hafa, að undanskilduin Vestmannaeyjum, cn þar var hiti 1° undir meðallagi. Lengst af var nokkur snjólcoma um norðanvert landið, en þurrt syðra. Þ. 5.—8. var norðanátt ríkjandi og lægð milli íslands og Noregs. Þ. 9. var hæðar- hryggur yfir landinu, og þ. 10.—14. voru lægðir sunnan við land. Þ. 5. og 6. var víða hvasst, en annars var vindur yfirleitt fremur hægur. Þ. 15.—29. var liiti lengst af 3°—5° yfir meðallagi. Tiltölulega hlýjasti dagur mánaðarins var þ. 27. Þá var liiti á þeim stöðvum, sem dagsmeðaltöl hafa, 4°—7° yfir meðallagi. Þ. 15. nálgaðist djúp lægð landið úr suðvestri, og fylgdi henni hlýtt loft og mikil úrkoma víða um land. Síðau voru lægðir sunnan við land til þ. 24. Vindur var þá yfirleitt austlægur og stundum hvass (þ. 15. Lmbv. E 10; þ. 17. Hmd. SE 10, Vm. E 10, SE 10 og ESE 11; þ. 18. Vm. SSW 10). Fremur þurrt var um vesturhluta lands- ins, en flesta dagana var töluverð úrkoma um austanvert landið og stórrigning á Austfjörðum þ. 22.—23. Þ. 24.—27. var hæð norðan við land, loftþrýstingur allhár og viudur breytilegur, en tvo síðustu dagana fóru lægðir norður Grænlandsliaf, og suerist þá vindur til suðurs og vesturs (þ. 28. Gr. WNW 11). Flesta dagana var nokkur úrkoma. Þ. 30. var lægð milli íslands og Noregs. Vindur varð norðlægur, og nokkuð kólnaði í veðri. Loftvœgið var 5.9 mb undir meðallagi á öllu landinu, frá 4.8 mb í Bolungarvík að 7.1 mb á líeykjanesi. Hæst stóð loftvog 1026.1 mb á Dalatanga þ. 27. kl. 20, en lægst 967.8 mb í Stykkishólmi þ. 3. kl. 10. Hitinn var yfir meðallagi á öllu landinu, að meðaltali 1.8°. Hlýjast var að tiltölu á Suðausturlandi. Sjávarhitinn var 0.6° yfir meðallagi, frá 0.8° undir meðallagi við Kjörvog að 1.6° yfir því við Fagradal. Að tiltölu var hlýjast í sjó við norðaustur- og austurströndina. Við vesturströndina var sjávarhiti um meðallag. Úrhoman var tiltölulega lítil á öllum stöðvum, sem meðaltöl liafa, nema Vest- mannaeyjum, en þar var úrkoman tæplega x/0 meiri en í meðalári. Víða á Austfjörðum mældist þó mikil úrkoma, en meðaltöl til samanburðar eru ekki til frá þeim stöðvum. (41)

x

Veðráttan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðráttan
https://timarit.is/publication/278

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.