Veðráttan - 01.07.1955, Page 1
VEÐRATTAN 1955
MÁNAÐARYFIRLIT SAMIÐ Á VEÐURSTOFUNNI
Júlí
Tíðarfariö var mjög óhagstætt á Suður- og Vesturlandi, en að sama skapi hagstætt
á Norður- og Austurlandi. Um sunnan- og vestanvert landið var með afbrigðum óþurrka-
samt, og víða náðist ekkert hey inn í hlöður nema vothey. Á Norðausturlandi og Aust-
fjörðum gekk heyskapur mjög eftir óskum, en á vestanverðu Norðurlandi var heldur
óþurrkasamt. Gæftir voru góðar á miðunum við Norðurland, en afli lítill.
Þrjá fyrstu daga mánaðarins var norðaustlæg og austlæg átt hér á landi. Fyrir suð-
austan land var lægð, sem hreyfðist austur á bóginn, en hæð fyrir norðaustan og síðan
austan land. Um austanvert landið var lítils háttar rigning þessa daga, og þ. 1. gerði
siðdegisskúrir á Suðvesturlandi. Hitinn var frá meðallagi að 1° yfir því.
Að morgni þ. 4. var komin suðvestlæg átt hér á landi vegna lægðar á Grænlandshafl.
Þ. 5. fór lægðin norður með vesturströndinni, og var hvöss sunnan- og suðvestanátt þann
dag og daginn eftir (þ. 5. Gltv. SW 10). Þurrt veður var að mestu um austanvert landið,
frá Eyjafirði til Austfjarða, en í öðrum landshlutum var rigning. Þessa þrjá daga var
hiti frá meðallagi að 1° yfir því.
Sama veðurlag hélzt dagana 7.—14., nema hvað vindur var yfirleitt hægari, þó var
hvassviðri talið á 4—5 stöðvum þ. 8. og 14. Lægðir voru á hreyfingu norður Grænlands-
haf og norðaustur fyrir land. Úrkoma var dag hvern á Suður- og Vesturlandi, einkum
rigndi þar mikið 7.—8. og 12.—13. Þ. 11. var að mestu þurrt á Suðausturlandi. Á Norð-
austur- og Austurlandi var yfirleitt þurrt og bjart, þó náði úrkoman til Austfjarða sunn-
anverðra síðustu tvo dagana. Á Norðurlandi var einnig þurrt að mestu nema tvo síðustu
dagana. Hiti á öllu landinu var frá meðallagi að 2° yfir því.
Dagana 15.—18. var úrkoma um allt land. Þ. 15. og 16. voru lægðir norðan og norð-
austan við landið, en síðari tvo dagana voru lægðir á Grænlandshafi. Þ. 15. og 16. var
hiti á öllu landinu 1° undir meðaliagi, og voru það köldustu dagar mánaðarins að til-
tölu, ásamt þ. 30. Á Austfjörðum var þó hlýrra en í meðalári þessa daga, eins og flesta
daga mánaðarins. Þ. 17. og 18. var hiti í meðallagi.
Aftur brá til bjartviðris á Norðaustur- og Austurlandi dagana 19.—20., en rigningar
héldust í öðrum landshlutum. Mest var úrkoman á sunnanverðum Vestfjörðum. Vindátt
var yfirleitt suðlæg og suðvestlæg og víða allhvasst þ. 19. (Mðrd. WSW 10). Þ. 21. fór
lægð austur með norðurströndinni, og þann dag rigndi töluvert um allt land, einkum á
Suðausturlandi. Víða var hvasst (Hlh. SSE 10). Þessa þrjá daga var hiti 1°—2° yfir
meðallagi.
Dagana 22.—30. var vindur stöðugt milli suðausturs og suðvesturs, og stundum var
hvasst (þ. 30. Ghg. WSW 10 og S 10). Lægðir voru á Grænlandshafi. Rigningar héldust
áfram á Suður- og Vesturlandi, en norðan lands og austan var yfirleitt þurrt og oft
bjart nema þ. 27. og 28. Þ. 24. var 4° hlýrra en í meðalári, og var það heitasti dagur
mánaðarins. Aðra daga þessa timabils var hitinn frá 1° undir meðallagi að 2° yfir því.
Síðasta dag mánaðarins var hægviðri og úrkomulaust um allt land að heita mátti.
Hiti var í meðallagi.
Loftvœgið var 2.0 mb undir meðallagi, frá 0.2 mb yfir meðallagi á Hólum að 4.8 mb
undir því á Galtarvita. Hæst stóð loftvog á Hólum þ. 24. kl. 20—24, 1022.3 mb, en lægst
á Raufarhöfn þ. 13. kl. 22, 986.5 mb.
Hitinn var til jafnaðar 0.9° yfir meðallagi. Vik hitans frá meðallagi var mjög breyti-
legt eftir landshlutum. Hlýjast var að tiltölu um norðaustanvert landið, en þar var víð-
ast 2°—3%° hlýrra en venja er til. Kaldast var eftir hætti um suðvestanvert landið, hiti
frá meðallagi að 1° undir því.
Sjávarhitinn við strendur landsins var 0.8° yfir meðallagi. Við norðan og norðaustan-
vert landið var mun hlýrra en venja er til, en annars staðar var sjávarhiti minni en í
meðalári eða nálægt meðallagi. Hlýjast var að tiltölu í sjó við Grímsey, 2.7° yfir meðal-
lagi, en kaldast við Reykjavík, 1.1° undir meðallagi. Sjávarhiti við Gróttu mældist 11.6°
og við Grindavík 11.2°.
Úrkoman á öllu landinu var % umfram meðallag. Á Suður- og Vesturlandi var úr-
koman til jafnaðar 130% umfram meðallag, en á Norður- og Austurlandi var hún um