Veðráttan

Volume

Veðráttan - 01.11.1955, Page 1

Veðráttan - 01.11.1955, Page 1
VEÐRÁTTAN 1955 MÁNAÐARYFIRLIT SAMIÐ Á VEÐURSTOFUNNI Nóvember Tíöarfariö var hagstastt. Mánuðurinn var óvenju hlýr. Snjór var lítill, hagar góðir og samgöngur greiðar. Sauðfé gekk víðast sjálfala. Afli var yfirleitt góður, en nokkuð misjafn. Gæftir voru fremur stirðar lengst af. Fyrstu 10 daga mánaðarins var stöðug austan- og norðaustanátt. Suður í hafi var djúpt lægðasvæði, sem hreyfðist hægt norðaustur á bóginn austur fyrir landið. Fyrstu fjóra dagana var hvassviðri, en síðan lægði, (þ. 1. Arn. NE 10, Hsd. NE 10, Rh. NE 10, NNE 10, Lmbv. vh. 10, Kvgd. ENE 10, Vm. E 14, Smst. E 10, NE 12; þ. 2. Hsd. NE 10, ENE 12, Rh. NE 11, Lmbv. NE 11, Kvgd. ENE 10, Hbv. ENE 10, Krv. E 12, Sg. ENE 10, NE 10, Rfh. ENE 10, Fghm. ENE 10, Vm. E 12, Smst. NE 10, Hæll ENE 10; þ. 3. Hsd. ENE 10, Rh. NE 11; þ. 4. Vm. E 10; þ. 8. Rh. NE 10). Suðvestan lands var yfirleitt þurrt, en annars staðar var rigning eða snjókoma dag hvern. Þ. 4. gerði stórrigningu á Austfjörðum. Hitinn var 1° undir meðallagi þ. 1., en hina dagana var hann frá meðal- lagi að 3° yfir því. Þ. 11. og 12. var norðan hvassviðri (þ. 11. Gr. N 10, Rfh. NW 10; þ. 12. Sg. NW 10, Rfh. NW 12, Skv. WNW 10, Ghg. vh. 10) og snjókoma nyrðra. Þ. 11. varð 5° kaldara en í meðalári, og var sá dagur ásamt þ. 27. kaldasti dagur mánaðarins, miðað við meðal- lag. Þ. 12. var 3° kaldara en í meðalári. Þ. 13. hófst hlýindatíð, sem stóð til þ. 25. Hitinn var 3°—8° yfir meðallagi nema þ. 20., en þá var 9° hlýrra en í meðalári, og var það hlýjasti dagur mánaðarins miðað við meðallag. Yfir Skotlandi var háþrýstisvæði, sem hreyfðist hægt vestur á bóginn, en lægðir voru á hreyfingu norður Grænlandshaf. Vindátt var milli suðausturs og vesturs og talsverð rigning sunnan lands og vestan. (Þ. 16. Sðkr. WSW 11; þ. 17. Sg. WSW 10, Gr. NW 10, Sd. W 10, Rfh. W 10, Ggh. vh. 10; þ. 21. Sðr. vh. 10, Krv. WSW 10, Sg. W 10; þ. 22. Rfh. W 11, WNW 10, Skrk. SSW 11, Vm. W 10; þ. 24. Ghg. vh. 10; þ. 25. Sg. WSW 10). Dagana 26.—29. var austan- og norðaustanátt rikjandi hér á landi (þ. 26. Skrk. vh. 10; þ. 28. Vm. E 10). Fyrir norðan land var háþrýstisvæði, en lægð fyrir suðvestan land, sem þokaðist upp að landinu og fór austur yfir það þ. 30. Var komin norðanátt að kvöldi þ. 30. Alla þessa daga var snjókoma nyrðra, en nokkur rigning sunnan lands. Þó var þurrt suðvestan lands þ. 26. og 27. Hitinn var 4°—5° undir meðallagi þ. 27. og 28., en aðra daga var hann frá 1° undir meðallagi að 1° yfir þvi. Loftvœgiö var 8.4 mb yfir meðallagi, frá 7.6 mb á Hólum og Dalatanga að 9.1 mb á Galtarvita. Hæst stóð loftvog á Kirkjubæjarklaustri þ. 23. kl. 22 og í Reykjavík þ. 19. kl. 24, 1032.2 mb, en lægst í Vestmannaeyjum þ. 1. kl. 16, 980.0 mb. Hitinn var 2.6° yfir meðallagi. Hlýjast var að tiltölu á Suðurlandi og sunnanverðu Vesturlandi, einkum þó í innsveitum. 1 innsveitum á Norðausturlandi var einnig óvenju milt. 1 öllum þessum héruðum var hiti meira en 3° yfir meðallagi. Kaldast var að til- tölu á Vestfjörðum, en þar var 1°—2° hlýrra en í meðalári. Sjávarliitinn var 0.2° yfir meðallagi, frá 0.2° undir meðallagi við Kjörvog að 1.2° yfir því við Fagradal. Sjávarhiti við Gróttu mældist 4.0° og við Grindavík 6.7°. ÚrJcoman á öllu landinu var %0 af meðalúrkomu. Á Norðausturlandi og Vestfjörðum mældist meiri úrkoma en i meðalári, en í öðrum landshlutum var úrkomumagnið innan við meðallag. 1 Fagradal mældist þreföld meðalúrkoma, og var úrkoma hvergi jafn- mikil. Minnst var úrkoman eftir hætti á Rafmagnsstöðinni við Elliðaár, % af meðal- úrkomu. Úrkomudagar voru færri en í meðalári um suðvestanvert landið, en annars staðar á landinu voru þeir yfirleitt heldur fleiri en í meðalári. Flestir voru þeir að til- tölu á Norðausturlandi. tJrkoman á Eyrarbakka mældist 87.0 mm og í Grindavík 74.9 mm. Þoka var víðast talin heldur tíðari en venja er til. Um þoku var getið 23 daga. Þ. 7.—8. og 23. var þoka á 12—14 stöðvum, þ. 9.—10., 14., 16.—17., 19.—20., 24.—25. og 30. á 5—8 stöðvum, og 10 daga var þoka talin á 1—4 stöðvum. Vindar. Suðaustan- og sunnanátt var fátíðari en í meðalári, en vindar milli norðausturs og austurs, ennfremur milli vesturs og norðvesturs, voru heldur tíðari en venja er til. Logn var sjaldnar en í meðalári og veðurhæð % stigi yfir meðallagi. Stormdagar yoru (41)

x

Veðráttan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veðráttan
https://timarit.is/publication/278

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.