Veðráttan

Volume

Veðráttan - 01.02.1975, Page 1

Veðráttan - 01.02.1975, Page 1
VEÐRÁTTAN 1975 mAnasaryfiulit samib A VEMURSTOFITNNI Febrúar Tíðarfariö var milt, en nokkuð umhleypingasamt og úrkomusamt sunnanlands og vestan. Á Norður- og Austurlandi var góð tið, þó voru hagar lélegir vegna mikils harðfennis og svellaloga. Færð á vegum var lengst af góð. t>. 1. var vaxandl suðaustan og austan átt og stormur eöa rok á vestanverðu landlnu. Regn- svæði íór noröaustur yflr landlð, og því fylgdi suðlæg átt og hlýlndi. Hiti var 2V£° yfir meðallagi, en þ. 2. var 6° hlýrra en i meðallagi, og var sá dagur ásamt þ. 6., 24. og 25. hlýjastur að tiltölu i mánuöinum. t>. 2. varð vindur suðaustlægur í bili og nýtt regnsvæði fór norður yfir landlð. Vindur varð aftur suðlægur, og aðfaranótt þ. 3. gerði sunnan og suðvestan storm með rigningu. Lægð fór þá norður yfir Vesturland. Aðfaranött þ. 4. snerlst vindur aftur til suðlægrar áttar á vestanverðu landinu, og enn eitt úrkomusvæði fór norðaustur yfir landið. Á eftir varð suðlæg og suðvestlæg átt, en vlndur snerist til suðausturs með rlgningu þ. 5. Dagana 3. og 4. var hlti 5° yfir meðallagl, en 3° fyrir ofan það þ. 5. Þ. 6. var vindur sunnan- og suðaustanstæður og hitl 6” yfir meðaliagi. Næstu 3 daga var yfirleitt fremur hæg suðaustlæg og austlæg átt á Suður- og Suðvestur- landi en hægvlðri í öðrum landshlutum. Úrkoma var lítil sem engin. Þ. 10. fór að rlgna með aust- lægri átt og hélst sú átt einnig þ. 11., en þá \ arð vindur norðaustlægarl og snjóaði norðanlands og austan. Hiti fór lækkandi, var 3%° yfir meðallagi þ. 7., 2V4° yíir þvi þ. 8., 2° hærri en i meðallagl þ. 9. og 10., en 1° yflr því þ. 11. Alla þessa daga voru Iægðir fyrir suðvestan eða sunnan land. Þ. 11. og næstu daga var hæð á Norður-Grænlandi. Vindur var austlægur og norðaustlægur og kólnaði i veðri. Hiti var 1° undir meðallagi þ. 12., en 4° fyrir neðan það þ. 13. og 14., og voru þesslr tvelr dagar kaldastir í mánuðinum. Dálítiö snjóaði með köflum þessa daga en vindur var yflrleltt mjög hægur. Þ. 15. hlýnaði mjög, hiti var þá 3° yfir meðailagi en 4° yfir því þ. 16. Fyrri daginn var lægð suðvestur af landinu. Hvessti þá á suðaustan og regnsvæðl fór norðaustur yflr landið. Þ. 16. lygndi í bili, en kröpp lægð fór norðaustur yfir landið. Vindur snerist tll vestan- og norðvestan- áttar með úrkomu víða um land og varð hvasst allvíða og sumsstaðar stormur. Um kvöldið var lægðin komin norður fyrir land og fór þá aö lægja. Þ. 17. var suðvestlæg átt um allt land og smá- skúrir eöa él á sunnan- og vestanverðu landinu, en þ. 18. snerist vindur meira tll suðurs með éljum og skúrum sunnanlands og vestan. Varö hvasst siðarihluta dags. Úrkomusvæði fór noröaustur yflr land þ. 19., og varð hvöss sunnan og suðvestanátt á vestanverðu landinu. Þessa 3 daga var hitl 2°—3Vá° fyrir ofan meðallag, en næstu 4 daga var hann 1° yílr þvi. Suðvestanáttln hélst þ. 20. en siöarihluta dags þ. 21. var hægviðrl eða hæg austiæg átt og allviða rlgning eða snjókoma um kvöldiö og nóttina. Lægð fór norður eða norðaustur yfir landið þ. 22. og olli breytilegri átt og snjókomu. Um hádegi var hún komin norður fyrir land en lægðardrag lá frá henni suðvestur yfir Breiðafjörð. Var þá norðaustan átt á Vestfjörðum en suðvestlæg víðast i öðrum landshlutum. Lægðardraglð þokaðist suður og um kvöldið var komin norðlæg átt víða á Norður- og Austurlandl. Þ. 23. lá hæðarhryggur yíir landinu frá norðri til suðurs. Vindur var hægur suðlægur vestan við hann en norðvestlægur á austanveröu landinu. Siöarihluta dagslns varð suðlæg átt um allt land og viða úrkoma en þá var lægð suðvestur i hafi á noröurleið. Þ. 24. gerði suðaustan storm eöa rok með rlgningu víða um land, hitl varð 6° yfir meðallagi þann dag og þ. 25. Um nóttina lægðl og þ. 25. var fremur hæg suðlæg átt og sums staðar nokkur rigning. Þ. 26. og 27. var hægur vindur og vlða rigning, en 28. var suðaustlæg átt með rignlngu suðvestanlands, en hægviðri í öðrum landshlutum og allviða úrkorna. Hlti var 4°—5° fyrlr ofan meðallag þessa þrjá daga. Loftvægiö var 1.7 mb undir meðailagi, frá 1.8 mb fyrir ofan meðallag á Höfn að 4.0 mb neöan við það á Galtarvila og Hornbjargsvita. Hæst stóð loftvog 1030.7 mb á Höfn þ. 6. ki. 21—24, en lægst 956.1 mb í Grimsey þ. 16. kl. 21. Hiti var 2.9° íyrir ofan meðallag. Svalast var við strendur norðanlands og norðaustan. Þar var hiti nálægt 2° fyrlr oían meðallag og á stöku staö aöeins 1.5° yfir meðallagi. Sums staðar suð- vestanlands og í innsveitum á vestanveröu landinu var um og rúmlega 4° hlýrra en 1 meðalári. Úrkoma var 32% umfram meðallag. Á Suður og Vesturlandi og vestan til á Norðurlandi var tiltölulega mikll úrkoma. Mest um tvöföld meðalúrkoma sums staðar á Suövestur- og Suöaustur- landi. Á norðaustanverðu iandinu, frá Skagafirði að Héraði var úrkoman yfirleitt minni en venju- lega og minnst að tiltölu um þriðjung meðalúrkomu. Úrkomudagar voru allt að 8 fleiri en venjulega á sunnanverðu landinú, en á norðanveröum Vestfjörðum, Norður- og Norðausturlandl og norðan til á Austfjörðum voru þeir viðast færri en i meðalári. Þoka var fremur fátið suðvestanlands og einnig á Austfjörðum, en annars staðar voru þoku- dagar flelri en venjulega, einkum þó sums staðar s.vðst á landlnu (Vestmannaeyjar og Kirkjubæjar- klaustur). Um þoku var getið 24 daga í múnuðinum. Þ. 28. telja 28 stöðvar þoku, 18 stöövar þ. 10.. 15 stöðvar þ. 26. og 27., 14 stöðvar þ. 25. og 10 stöðvar þ. 9. Þ. 6., 11. og 24. var þoka á 7—8 stöðvum, en 15 daga á 1—4 stöðvum hvern dag. Þrumur. Þ. 1. voru þrumur á Hólmi, Mosfelli, Meðalfelli, Siðumúla, HjarðarfeUí, Arnarstapa, Stykklshólml, Hamraendum, Búöardal, Máskeldu og Reykhólum, en rosaljós sáust á Þverholti og Þórustöðum. Þ. 2. heyrðust þrumur í Straumsvik, á Rjúpnahæð, i Vestmonnaeyjum, á Hæli og Kefla- víkurflugvelll. Þ. 4. voru þrumur á Gufuskálum. Eyrarbakka, Vegatungu, Austurey og Keflavikur- flugvelll. Þ. 6. lieyrðust þrumur i Búð, og þ. 15. i Austurey. Þ. 16. sáust rosaljós á Skðgum og Leirubakka. Þ. 17. heyrðust þrumur á Skógum og 1 Vestmannaeyjum og rosaljós sáust á Lelru- bakka. Þ. 18. voru þrumur á Skógum og þ. 19. á Rjúpnahæð, Hjarðarfelll og Gufuskálum, en rosaljós sáust þann dag á Hamraendum og Leirubakka. Þ. 20. heyrðust þrumur á RJúpnahæó, Hvanneyri, HJaröarfelli, Gufuskálum, Hólum í Homafirði og Fagurhólsmýrl, en rosaljós sáust á Hamraendum og Telgarhorni. Þ. 21. heyrðust þrumur á Hvanneyrt og Hólum i Homaflrði og þ. (9)

x

Veðráttan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veðráttan
https://timarit.is/publication/278

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.