Veðráttan - 01.04.1975, Side 1
VEÐRÁTTAN 1975
MAXAUARVFIHLIT SAMIl) A VEIICRSTOI'IJSÍAI
Apríl
TÍÖarfariO var Iremur óstöðugt og stormasamt og kalt með köflum. Gróður var
skammt á veg kominn í lok mánaðarins og talsverður snjór norðanlands. Færð var lengst
af góð.
Þ. 1. þokaðist lægðardrag austur yfir landið. Vindur var vestlægur með rigningu
sunnanlands og vestan. Á norðan- og austanverðu landinu var austlæg átt og snjókoma,
en snerlst brátt til vestlægrar áttar. Var vestlæg og norðvestlæg átt og nokkur úrkoma
2 næstu daga, en þá var háþrýstisvæði fyrir sunnan land. Hiti var nálægt meðallagi þ. 1.
og 2. en 6° yfir þvi þ. 3., og var sá dagur hlýjastur að tiltölu í mánuðinum. Þ. 4. var hæg
norðlæg eða austlæg átt á austan- og sunnanverðu landinu, en vestlæg og suðvestlæg átt
vestanlands og víða rigning og þoka. Næsta dag þokaðist lægðardrag suður yfir landið
og vindur varð austlægur með snjókomu nyrðra. Hiti var 3°—4° yfir meðallagi þessa tvo
daga. Næstu 8 daga var kalt í veðri, hiti 3° undir meðallagi þ. 6. og 13., 6° undir því þ. 9.
og 10., 7° fyrir neðan það þ. 8., og 8° undir þvi þ. 7. og 12. Þ. 11. var 9% ° kaldara en í
meðalári, og var sá dagur ásamt þ. 29. kaldastur að tiltölu í mánuðinum. Þ. 6. var grunn
lægð yfir landinu, og var þá austan og norðaustan strekkingur með snjókomu á norðan
og austanverðu landinu, en vestlæg átt syðra. Lægðin fór suðaustur og síðdegis varð
vindur norðlægur og norðaustlægur um allt land. Hélst þessi átt til þ. 8., en vindur var
lengst af fremur hægur, einkum um vestanvert landið, þó var hvasst við suðurströndina.
Þ. 8. þokaðist hæðarhryggur austur yfir landið. Varð fremur hæg austlæg og suðaust-
læg átt og snjóaði allvíða. Þ. 9. fór lægð austur skammt suður af landinu. Hvessti þá
sunnanlands og víða snjóaði. Næstu 2 daga var fremur hægur vindur, áttin milli norðurs
og austurs og viða éljagangur einkum norðanlands og austan. Þ. 12. gerði hvassviðri á
austan sunnanlands og viða var nokkur snjókoma á Suður- og Vesturlandi. Við Vest-
mannaeyjar var einnig hvasst þ. 13. Næstu daga voru lægðir suðvestur eða suður og
suðaustur i hafi og var vindur þá austlægur og yfirleitt hægur, þó var rok við suður-
ströndina þ. 17. Rigning eða skúrir voru með köflum, einkum sunnanlands og austan og
stundum var þoka við austur- og norðurströndina. Hiti var í meðallagi þ. 14., 1% ° fyrir
ofan það þ. 15., en 3° hærri en i meðallagi þ. 16.—21. Þ. 20. og 21. var hægviðri um allt
land og víða úrkomulaust, en þoka með köflum norðanlands og austan. Um kvöldið þ. 21.
var komin suðaustlæg átt með rigningu sunnanlands og vestan og næstu daga fór lægð
norðaustur fyrir vestan land. Vindur varð suðlægur og suðvestlægur þ. 22. og rigndi víða,
en siðdegis var skúraveður. Suðvestan og vestanátt og skúrir héldust þ. 23., en þ. 24. sner-
ist vindur til suðausturs. Þá fór lægð norðaustur meðfram austurströnd Grænlands, og
regnsvæði fór norðaustur yfir landið. Vindur varð suðvestlægur síðdegis og þ. 25. var suð-
vestlæg og vestlæg átt um allt land og allviða éljaveður. Um kvöldið fór annað úrkomu-
svæði austur yfir landið. Hiti var 4°—4%° fyrir ofan meðallag þ. 22. og 24., 3° yfir þvi
þ. 23., 2° fyrir ofan það þ. 25. Þ. 26. var hann kominn niður fyrir meðallag á Suður- og
Vesturlandi, en á Norður- og Austurlandi var hann dálitið ofan við meðallag. Þann dag
var hæg breytileg átt, en snerist i hæga norðlæga átt með snjókomu um kvöldið. Þ. 27.—
29. var lægðardrag fyrir sunnan eða suðaustan land og austlæg eða norðaustlæg átt um
allt land með éljaveðri á norðan- og austanverðu landinu. Sunnanlands og austan var
hvasst þ. 28. Þ. 29. og 30. var stormur og hríðarveður um allt land, en þ. 30. snerist vindur
meira til austurs. Þá var lægð suður af landinu. Síðari hluta dagsins lægði sunnanlands
en við norðurströndina var enn norðaustan eða norðan strekkingur og snjókoma. Hiti
var 2%°—3° undir meðallagi þ. 27. og 30. og 7° undir því þ. 28. Þ. 29. var 9%° kaldara en
venjulega.
Loftvægi var 3.8 mb yfir meðallagi, frá 2.8 mb á Höfn í Hornafirði að 4.9 mb á
Stykkishólmi. Hsest stóð loftvog 1034.3 mb á Galtarvita þ. 7. kl. 15, en lægst 983.0 mb á
Höfn þ. 30. kl. 06.
Hiti var 1.0° undir meðallagi. Mildast að tiltölu var sunnanlands og sums staðar á
Vesturlandi og vestanverðu Norðurlandi. Þar var hiti yfirleitt lítið eitt undir meðallagi
og á stöku stað aðeins ofan við það. Á Norður- og Austurlandi var tiltölulega kaldast,
(25)