Veðráttan - 01.04.1975, Page 2
Apríl
VEÐRÁTTAN
1975
hiti yfirleitt meira en 1° fyrir neðan meðallag og við norðurströndina var hann sums
staðar um eða rúmlega 2° lægri en í meðalári.
Úrkoma var 17% neðan við meðallag. Hún var meiri en í meðallagi sums staðar á
austanverðu Norðurlandi og um miðbik Austurlands, nærri tvöföld meðalúrkoma þar sem
hún var mest að tiltölu. Á Snæfellsnesi og vestast á Vestfjörðum var einnig tiltölulega
mikil úrkoma. Minnst að tiltölu, eða um %—% af meðalúrkomu var hún við suðaustur-
ströndina og við Húnaflóa, norðan til á Vestfjörðum og einnig austast á Breiðafirði. Úr-
komudagar voru fleiri en venjulega á austanverðu Norðurlandi, Austur- og Suðaustur-
landi. Á suðvestan- og vestanverðu landinu var úrkomudagafjöldi viðast nálægt meðal-
lagi, en á fáeinum stöðum þó 2—3 færri en venjulega.
Þoka var víðast nokkuð tiðari en í meðalári. Um þoku var getið 28 daga í mánuð-
inum. Þ. 4. var þoka á 36 stöðvum, þ. 3. á 27, þ. 21. á 26, þ. 20. á 24, þ. 19. á 23 og
þ. 5. og 18. á 21. Þ. 2., 17. og 22. telja 12—14 stöðvar þoku og 8 stöðvar þ. 1. og 24. Sextán
daga var þoka á 1—4 stöðvum hvem dag.
Vindar. Austanátt var tíðust að tiltölu í mánuðinum, en norðan- og vestan vindar
voru einnig fremur tiðir. Hinsvegar voru vindar milli suðausturs og suðvesturs sjald-
gæfari en venjulega. Logn var frekar sjaldan.
Snjólag var 44%. Það var yfirleitt meira en í meðallagi á austanverðu Norðurlandi,
Austur- og Suðausturlandi, en nálægt meðallagi og allvíða lítið eitt fyrir neðan meðal-
lag í öðrum landshlutum.
Snjódýpt var mæld á 57 stöðvum þá daga sem jörð var talin alhvít. Mest meðalsnjó-
dýpt 110 cm mældist á Hveravöllum þar var alhvítt alla daga mánaðarins. 1 Sandbúðum
var meðalsnjódýpt 108 cm, og mest snjódýpt í mánuðinum mældist þar 132 cm þ. 14.,
einnig þar var alhvítt allan mánuðinn. Á Dratthalastöðum var meðalsnjódýpt 102 cm og
á Vöglum 61 cm. Á Sandhaugum var meðalsnjódýpt 29 cm, í Vík í Mýrdal 24 cm og í
Garði 21 cm. 10 stöðvar telja meðalsnjódýpt 10—17 cm, en á 40 stöðvum var meðalsnjó-
dýpt innan við 10 cm.
SkaÖar. Þ. 25. fórst trilla með 2 mönnum við Kjalarnes. 1 hvassviðri þ. 29. og 30.
fauk flutningagámur á bifreið í Vestmannaeyjum, og skemmdist hún mikið. Skemmdir
urðu einnig talsverðar á rúðum og lakki bíla. Jeppi fauk út af veginum við Seljaland
undir Eyjafjöllum. Farþegar meiddust eitthvað, og jeppinn skemmdist mikið.
Hafís. Fram að miðjum mánuði bárust margar hafisfréttir. Israndir sáust djúpt
vestur af Vestfjörðum þ. 1. og 8., og einnig nær landi norðvestur eða vestur af Vestfjörð-
Framhald á bls. S2.
Stormar
VEDURHÆÐ
9 VINDSTIG
EDA MEIRA
VEÐURHÆÐ 10 VINDSTIG
EDA MEIRA
VEDURHÆD
9 VINDSTIG
EÐA MEIRA
VEÐURHÆÐ 10 VINDSTIG
EÐA MEIRA
o 3 > rr K> Si? Wind force ^ 10 tð Q _ n 2 > 3 j§ ^ S? «í # Wind force ^ 10
1. 1 23. í
2. 1 24. 3 Hbv. S 10.
3. 3 Hbv. SW 10. 25. 5 Sdbd. SW 10.
4. 2 Hbv. SW 11. 26. 1
5. 1 Hbv. SW 11. 28. 6 Hól. N 11, Vm. N 11.
6. 3 29. 6 Tgh. N 12, Höfn NNE-N 10, Hól.
7. 4 Vm. NNE 11. N-NNW 11, Vm. N-NNE 11.
8. 3 Vik N 10, Vm. N 10. 30. 24 Hmd. NE-NNE 10, Kvgd. NNE-
9. 1 Vm. ESE-E 11. NE 10, Æð. NNE-NE 11, Sdbd.
10. 1 Vm. E 10. NNE-NE 10, Tgh. N-ENE 11,
12. 2 Fghm. ENE 10, Vm. ESE-E 10. Höfn NNE-E 10, Hól. NNW-E 11,
13. 1 Vm. E 10. Fghm. ENE 12, Lfts. ENE 10,
16. 1 Vm. N 10.
17. 3 Fghm. ENE 11, Lfts. ESE-ENE 10, Vm. ESE-E 11.
*) Number of stations with wind force ^ 9.
(26)