Veðráttan - 02.12.1975, Blaðsíða 1
VEÐRÁTTAN 1975
ÁltSYFIKLIT SAMII) Á VEÐURSTOFUIVNI
Tíðarfarsyfirlit
Tíöarfariö var fremur óhagstætt nema sumarið á norðan og austanverðu landinu, og
einnig var haustið hagstætt um allt land.
Loftvœgi var 0.3 mb yfir meðallagi frá 0.8 mb yfir meðallagi í Vestmannaeyjum að
0.3 undir því á Dalatanga. Hæst stóð loftvog, 1042.8 mb á Keflavíkurflugvelli 27. meií
kl. 21, en lægst 942.4 mb í Vestmannaeyjum 22. janúar kl. 13.
Hiti var 0.7° undir meðallagi. Kaldast var við norðurströndina hiti um 1° undir meðal-
lagi, en mildast sunnanlands og í innsveitum norðvestanlands, þar sem hiti var víða frá
meðallagi að %° undir því. Árssveifla hitans var víðast 17°—19° í innsveitum norðanlands
og austan, en 13 °—16° á Vesturlandi og í innsveitum á Suðurlandi. Við suður- og norður-
ströndina var árssveiflan yfirleitt 11 °—13° en 9°—10° á ystu nesjum austan lands og í
Vestmannaeyjum.
Sjávarliiti var rösklega % ° undir meðallagi samkvæmt mælingum 6 stöðva.
Úrkoma var 5% umfram meðallag. Hún var innan við meðallag austanlands, en ann-
ars víðast meiri en venja er til, mest 40—50% umfram meðallag. Mest var ársúrkoma á
Kvískerjum 4141 mm, og er það mesta ársúrkoma sem mælst hefur á íslenskri veður-
stöð. Minnst var úrkoma á Grimsstöðum 324 mm. Mesta sólarhringsúrkoma var 185.5
mm á Skaftafelli 8. nóvember. Sólarhringsúrkoma fór alls 5 sinnum yfir 100 mm og í
73 skipti var hún milli 50 og 100 mm.
Sólskin. 1 Reykjavík voru sólskinsstundir 1156 eða 93 færri en í meðalári. Á Akureyri
mældust 1257 stundir en það eru 295 stundir umfram meðallag og þar hefur ekkert ár
verið jafn sólríkt frá upphafi mælinga 1928. Skrá um sólskinsstundir er á bls. 117.
Veturinn (desember 1974—mars 1975) var óhagstæður einkum framan af. Hiti var 1.1°
undir meðallagi. Kaldast var norðan og austantil á landinu, þar var hiti 1°—2° undir
meðallagi. Sunnanlands var víða um %° kaldara en í meðalári. 1 31 dag var hiti 5°—11°
undir meðallagi og í 48 daga frá meðallagi að 4° undir því. 1 42 daga var 1°— 6° hlýrra
en í meðalári. Úrkoma var 93% af meðalúrkomu. Hún var meiri en í meðalári um
meginhluta Norðurlands, víða um 50% umfram meðallag. 1 öðrum landshlutum var úr-
koma víðast innan við meðallag, yfirleitt 70—90% af meðalúrkomu.
Vorið (apríl—mai) var fremur óhagstætt. Hiti var 0.5° undir meðallagi. Kaldast var
að tiltölu á sunnanverðum Austfjörðum en þar var rösklega 1° kaldara en í meðalári.
Mildast var um miðbik Suðurlands og sums staðar í innsveitum á Norður og Austur-
landi, en þar var hiti viðast frá meðallagi að %° undir því. 1 11 daga var hiti 5°—10°
undir meðallagi og 22 daga var hann frá meðallagi að 4° undir því. 1 28 daga var 1°—6°
hlýrra en í meðalári. Úrkoma var 5% innan við meðallag. Hún var meiri en í meðalári
á flestum stöðvum frá Suðvesturlandi til Vestf jarða, en víðast undir meðallagi í öðrum
landshlutum. Úrkoma var allvíða 40—70% af meðalúrkomu, en fór óvíða meira en 30%
umfram meðallag.
Sumarlð (júní—september) var óhagstætt sunnanlands og vestan nema í september en
norðanlands og austan var mjög góð tið í júlí og ágúst. Hiti var 1.3° undir meðallagi.
Á öllum stöðvum var kaldara en í meðalári, þrátt fyrir hlýindi norðanlands og austan
í júlí og ágúst. Á örfáum stöðvum var vik hitans frá meðallagi innan við 1°, en viðast
var 1°—1%° kaldara en í meðalári og kaldast var 2° undir meðallagi. I 16 daga var
5°—7° kaldara en i meðalári og i 70 daga var hiti frá meðallagi að 4° undir þvi. 1 36
daga var 1°—5° hlýrra en í meðalári. Úrkoma var 11% umfram meðallag. Frá Vestfjörð-
um um Norðurland að sunnanverðum Austfjörðum var úrkoma yfirleitt minni en í
meðalári nema í innsveitum á vestanverðu Norðurlandi. Víðast á þessu svæði var úr-
koman 70-90% af meðalúrkomu. Á Suður- og Vesturlandi var úrkoman víðast frá
meðallagi að 40% umfram meðallag. I Reykjavik skein sól 74 stundum skemur en í
meðalári en á Akureyri voru sólskinsstundir 142 umfram meðallag.
Haustið (október-nóvember) var hagstætt. Hiti var 0.3° yfir meðallagi. Á Vestfjörðum
og sums staðar með ströndum fram i öðrum landshlutum var hiti lítið eitt undir meðal-
lagi, en víðast var á landinu var hann frá meðallagi að %° yfir því. I innsveitum á
vestanverðu landinu var þó yfirleitt %°—1° hlýrra en í meðalári. Hiti var frá meðallagi
að 6° undir þvi í 34 daga, en í 27 daga var 1°— 8° hlýrra en í meðalári. Úrkoma var 10%
umfram meðallag. Hún var yfirleitt minni en í meðalári á Vestfjörðum, frá Skagafirði
og austur yfir Eyjafjörð og ennfremur norðantil á Austfjörðum. Annars staðar var víðast
meiri úrkoma en i meðalári.
(97)