Veðráttan - 01.05.1979, Page 1
VEÐ RÁTTAN 1979
MÁNAUARYFIKLIl SAMIII Á VEIHJKSTOFUJVNI
Maí
Tíðarfarið var mjög kalt og óhagstætt. Lítil úrkoma var og hélst færð á vegum góð,
enda frost í jörðu lengst framan af. Sauðburður var á húsum víðast hvar og gekk vel.
Gróður var mun seinni en venja er og var aðeins farið að grænka á Suðurlandi í lok
mánaðarins. Gæftir voru sæmilegar á Vestfjörðum, en slæmar á Norðurlandi og Norð-
austurlandi.
Þ. 1.-8. var kyrrstætt háþrýstisvæði yfir Grænlandi og djúp kyrrstæð lægð milli Jan
Mayen og Noregs. Vindur var norð- og norðaustlægur með snjókomu og éljagangi á
Norður- og Norðausturlandi, en þurrt að mestu i öðrum landshlutum. Þ. 1., 4. og 6.
mynduðust smálægðir á Grænlandshafi með breytilegri átt og snjókomu á miðum og
annesjum Vesturlands og Vestfjarða, en þurrt var að mestu annars staðar, nema þ. 6.
snjóaði einnig talsvert á Suðvesturlandi. Hitinn var 8° undir meðallagi þ. 1. og 2.,
7° þ. 3.-6. og 6%° þ. 7.-9.
Þ. 9. hafði lægðin við Noreg grynnkað mjög og vindur var orðinn norð- og norðaustan
gola. Smálægð myndaðist á Suðurlandi og olli talsverðri úrkomu austan Mýrdalsjökuls
þ. 9. Úrkomulítið var þ. 10. og 11., nema á annesjum Austurlands. Hitinn var 5%° undir
meðallagi þ. 10. og 5° þ. 11. og 12.
Þ. 12. hvessti með austan átt og olli því lægð i hafi, sem fór að hreyfast i norður
og dýpka. Olli lægðin slæmu hreti um allt land með snjókomu norðantil en slyddu
sunnantil. Hitinn var 5%° undir meðallagi þ. 13. og 14. Lægðin hreyfðist hægt austur
og vindur gekk í norðnorðaustan átt og hægðist. Mjög kalt var. Hiti var undir meðal-
lagi, 6° þ. 15., 6% ° þ. 16., 7%° þ. 17. og 19. og 8%° þ. 18., sem var mesta frávik frá
sólarhringsmeðalhita þennan mánuð. Úrkomulítið var viðast hvar nema á Norðaustur-
landi.
Þ. 19. nálgaðist lægð landið að suðvestan og þokaðist siðan austur fyrir sunnan land.
Háþrýstisvæði var yfir landinu. Vindur var austlægur og hlýnaði nokkuð. Þ. 20. var
hitinn 5%° undir meðallagi og 4%° þ. 21. Þ. 21. dýpkaði lægðin suðaustur af landinu
og hægði mjög á sér. Vindur varð aftur norðnorðaustlægur og þokuðust skil yfir landið
að austan, þ. 22., með mikilli slyddu og rigningu þ. 22., 23. og 24. Hitinn var 5%° undir
meðallagi þ. 22. og 4° þ. 23.
Þ. 24.-29. var fyrst í stað norðan gola og síðar hæg breytileg átt með dálítilli úrkomu
víða, og var hitinn 3%°-4%° undir meðallagi.
Þ. 30. nálgaðist lægð landið að suðvestan, og hægði á sér á Grænlandshafi, með suð-
austan kalda og hlýnaði þá mjög snögglega. Hitinn var 2% ° undir meðallagi þ. 30. og
% ° yfir meðallagi þ. 31., og var þetta hlýjasti dagur mánaðarins.
Loftvægi á öllu landinu var 0.9 mb fyrir ofan meðallag, frá 3.2 mb yfir meðallagi á
Hornbjargsvita, að 1.7 mb undir meðallagi á Höfn í Hornafirði. Hæst stóð loftvog 1032.9
mb á Galtarvita þ. 4. kl. 18, og lægst 988.8 mb á Höfn í Hornafirði þ. 22. kl. 6 og Vest-
mannaeyjum þ. 13. kl. 17.
Hiti var 5.4° undir meðallagi. Miðað við meðalár var einna kaldast á Möðrudals-
öræfum, allt að 7%° undir meðallagi, en mjög kalt var á öllu Norðausturlandi. Minnst
var hitavikið 3.8° undir meðallagi í Vestmannaeyjum. Þessi maímánuður var einn sá
kaldasti, síðan reglulegar mælingar hófust, og var hitinn víða l°-2° lægri en í þeim
köldustu til þessa. 1 Reykjavík var meðalhitinn 1° lægri en í maí 1888, þeim kaldasta
hingað til. 1 Stykkishólmi var meðalhitinn %° lægri en í þeim köldustu til þessa, árun-
um 1866 og 1906. Á Akureyri var meðalhitinn 1.8° lægri en þeim kaldasta hingað til,
árinu 1906. Á Teigarhorni var meðalhiti maímánaðar árin 1888 og 1892, 0.7° og 1.3°
hærri en nú, en þessir tveir voru þeir köldustu þar til þessa.
ÚrJcoma var um 57% af meðalúrkomumagni landsins. Úrkoma var minnst, undir
10% af meðalúrkomu, að tiltölu á Vesturlandi og Vestfjörðum sunnanverðum. Fjöldi
úrkomudaga var 12 færri á Lambavatni en venja er til og víða á Suður- og Vestur-
landi 5-10 dögum færri. Á Norðausturlandi var úrkoma mun meiri. Mest að tiltölu var
úrkoman á Húsavík, rúmlega fjórföld, og á Vöglum, rúmlega þreföld, miðað við meðal-
ár. Á Raufarhöfn og Húsavík voru úrkomudagar 15 og 13 fleiri en venja er til.
(33)