Veðráttan - 01.01.1983, Blaðsíða 1
VEÐRÁTTAN 1983
MÁNAÐAItYFIKLIT SAMID Á VEDURSTOFUNNl
Janúar
TíOarfar var óhagstætt nema norðaustantil á landinu. Þar var talið snjólétt, en annars-
staðar var óvenju snjóþungt fram um þ. 20. Hvassviðri voru tíð.
Fyrstu tvo daga mánaðarins komst hiti yfirleitt ekki yfir frostmark nema við austur-
og suðurströndina. Norðaustantil á landinu var úrkomulaust, en annarsstaðar voru él.
Vindur var suðvestanstæður og víða allhvass. Þ. 3. hlýnaði í svip með sunnanátt og
mikilli úrkomu sunnan- og vestantil á landinu, snjókomu eða slyddu. Daginn eftir gekk
í vestanátt með hvössum éljum um meginhluta landsins og frosti um allt land.
Þ. 5. kom óvenju djúp lægð sunnan úr hafi inn yfir landið. Lægðin olli fárviðri með
snjókomu. Vindur var fyrst austanstæður, en gekk siðan til norðurs um meginhluta
landsins, en suðaustanlands var sunnanátt. Daginn eftir hreyfðist lægðin norðaustur
fyrir land og norðanáttin náði um landið allt. Víða var stormur og mikil snjókoma
norðanlands en sunnan til á landinu birti upp. Þ. 7. gekk veðrið niður, víða snjóaði,
einkum við strendurnar og frost herti.
Þ. 8. kom kröpp lægð inn yfir Suðurland. Á undan hitaskilum lægðarinnar var austan-
stormur og snjókoma, en á eftir þeim var slydda eða rigning, og hiti yfir frostmarki.
Eftir miðnætti var vestan og suðvestan stórviðri sunnan til á landinu, en skilin þokuðust
norður yfir landið þ. 9. Viða mældist mjög mikil úrkoma þ. 9. Daginn eftir fór enn kröpp
lægð norðaustur yfir landið. Á undan skilum lægðarinnar var allhvöss suðaustanátt og
snjókoma en á eftir þeim suðvestlæg átt og él. Um kvöldið gerði allhvassa norðaustanátt
með snjókomu á Vestfjörðum. Þar hélst sama átt þ. 11. en annars var vindur milli
suðurs og vesturs, og él, nema á Austfjörðum. Daginn eftir var komin norðanátt um
allt land með snjókomu norðantil á landinu.
Þ. 13. og 14. hlýnaði aftur og hiti fór víðast yfir frostmark. Skil fóru austur yfir
landið. Fyrri daginn var snjókoma, slydda eða rigning en síðari daginn þurrt að mestu.
Vindur snerist fyrst til austurs og suðurs og varð hvasst vestantil á landinu en síðan
gekk í suðvestan- og vestanátt.
Næstu 4 daga var vindur hægari og frost um allt land, kaldast þ. 16. og 17. 7°—8°
kaldara en að meðaltali 1971—1980. Vindátt var yfirleitt milli vesturs og norðurs og
él um norðan- og vestanvert landið. Á Vestfjörðum var þó hvöss norðaustanátt þ. 17.
Á Austfjörðum snjóaði þ. 17.—18.
Þ. 19. var lægð á hreyfingu norður Grænlandshaf og hitaskil komu úr suðvestri og
fóru austur yfir landið. Hiti hækkaði um 5° og var þetta upphaf mikillar hláku, sem
stóð til þ. 24. Norðvestanlands fór hiti þó ekki yfir frostmark þ. 21. Hlýjast var þ. 22.,
hiti 9° yfir meðaltali sama dags 1971—1980. Aðra daga hlákukaflans var hiti 2°—6°
yfir meðaltali sömu ára. Mjög mikil úrkoma mældist þessa daga.
Þ. 19. gekk fyrst í suðaustan- og sunnanátt með snjókomu eða slyddu, en á eftir hita-
skilunum rigndi og vindur varð vestlægari. Daginn eftir fór kröpp lægð austur yfir
landið norðanvert og var um tíma austanátt með frosti og snjókomu nyrst á landinu,
en um meginhluta landsins var áfram hláka og vestanátt fram á kvöld. Þ. 21. komu
hitaskil úr suðri og fóru norður yfir land. Á undan þeim var fyrst snjókoma, en síðan
rigning. Á eftir skilunum var mjög hlý sunnan- og suðvestanátt með rigningu og hélst
það veðurlag framundir kvöld þ. 23., en þá nálgaðist lægð úr suðvestri og sneri vindi
til suðausturs. Víða var hvasst. Lægðin fór norður yfir land þ. 24. og vindur snerist til
suðvesturs.
Þ. 25. kólnaði í veðri og var síðan allhart frost til mánaðamóta, kaldast þ. 28. og 31.
Fyrsta daginn voru Jægðir vestan og norðan við land, vindur milli suðurs og vesturs
og víða él. Næstu 3 daga var vindur hægur og úrkomulaust að mestu, nema á annesjum
norðanlands. Þ. 29—31. voru lægðir austan og sunnan við land og allhvöss austan- eða
norðaustanátt norðanlands tvo fyrstu dagana. Þar snjóaði talsvert og einnig á Austur-
iandi. Þ. 31. var sumsstaðar hvöss austanátt sunnanlands og vestan, en úrkoma lítil.
Loftvægi var 14.5 mb undir meðallagi frá 11.8 mb i Vestmannaeyjum að 16.7 mb á
Raufarhöfn. Hæst stóð loftvog 1029.4 mb í Vestmannaeyjum þ. 18. kl. 24 til þ. 19. kl. 03
(1)