Veðráttan

Árgangur

Veðráttan - 01.02.1983, Blaðsíða 1

Veðráttan - 01.02.1983, Blaðsíða 1
VEÐRÁTTAIV 1983 mánaðakyfirlit samid A veðurstofunni Febrúar TíöarfariO var milt en nokkuð umhleypingasamt. Viðast hvar var snjólétt og greið- fært. Hagar voru góðir. Fyrstu 3 dagana var mjög kalt um allt land og varð frostið 15—20° í innsveitum norðaustanlands. Þ. 1. var norðaustanátt á landinu og éljagangur norðanlands. Daginn eftir fór að snjóa í suðaustanátt á Suðvesturlandi en hvessti mjög af norðvestri með éljum á Norðausturlandi. Þ. 3. létti til og lægði um stund þegar hæðarhryggur fór austur um landið. Að kvöldi þessa dags hvessti af suðaustri vestanlands, en allmikil lægð nálgaðist hratt úr suðvestri. Fór hún austur yfir land þ. 4. og hlýnaði mikið. Víða varð mjög hvasst og úrkoman mikil en vindátt snérist skjótt aftur til norðausturs og kólnaði. Þ. 5. var allhvöss norðaustanátt og snjókoma norðanlands en gekk niður með kvöldinu. Dagana 6.-8. hlýnaði smám saman í vest- og suðvestlægum áttum og þ. 8. fór hámarks- hiti víða yfir 10° austanlands. Þokuloft eða rigning var yfirleitt vestanlands en öllu bjartara veður austanlands. Þ. 9. kólnaði aftur er lægðardrag fór suðaustur yfir landið og hvessa tók af norðri. Þ. 10. varð vindátt aftur suðvestlæg og snjóaði víða þessa 2 daga. Þ. 11. hlýnaði mikið og var mjög hlýtt á landinu fram til þ. 18. Þ. 11. og 12. var vindur einkum vestlægur, vestanlands var suðvestanátt og rigning eða súld en austan- lands norðvestlæg átt og þurrt. Dagana 13,—17. var vindátt oftast suð- og suðvestlæg og oft hvasst vestanlands. Þ. 13. fór grunnt lægðardrag austur yfir land og annað lægðardrag fór norður yfir þ. 15. og rigndi, einkum um sunnan- og vestanvert landið. Þ. 18.—19. kólnaði veður snöggt og varð frostið meira en 10° víða á Norðausturlandi. Lægðardrag fór austur yfir landið þ. 18. og vindur snerist til norðurs. Ftigndi um allt land og víða mikið vestanlands. Þ. 19. létti til og lægði nokkuð þegar hæðarhryggur fór austur um landið. Dagana 20.—26. var tiltölulega milt í veðri. Þ. 20.—24. var oftast suðvestanátt með skúra- eða éljaveðri. Lægðardrag fór austur yfir land þ. 22. og rigndi viða mikið sunnanlands. Þ. 25. var viðáttumikil lægð suðvestur í hafi á leið norður og fór norður Grænlandshaf næstu 2 daga. Var því suðaustanátt og rigning eða súld þ. 25. en daginn eftir snerist vindur til suðvesturs þegar lægðardrag fór austur yfir land. Féll víða mikil úrkoma og sumsstaðar mjög mikil sunnanlands. Á Kvískerjum mældust t.d. 114 mm þ. 26. Þ. 27. kólnaði talsvert, vindátt var vestlæg, milli suðvesturs og norðvesturs og él voru á Vesturlandi. Síðdegis þ. 28. hlýnaði og hvessti verulega af suðri, en víðáttu- mikið lágþrýstisvæði nálgaðist úr suðvestri. Loftvægi var 8.1 mb yfir meðallagi, frá 4.1 mb yfir meðallagi á Hornbjargsvita að 11.5 mb yfir því í Vestmannaeyjum. Hæst stóð loftvog 1044.5 mb á Vopnafirði þ. 19. kl. 12. ,en lægst 967.4 mb á Höfn þ. 19. kl. 21. Vindar: Suðvestan- og sunnanáttir voru tíðastar miðað við meðallag mánaðarins en austan- og norðaustanáttir fátíðastar. VeOurliæÖ 11 og 12 vindstig: Þ. 3. voru 11 vindstig í Vm., þ. 4 í Æð. og í Mðrd., þ. 5. á Kmb. og Fghm., þ. 9. á Tgh. og Vm, þ. 24. á Sd., þ. 28. í Kvgd., Brgs. og á Hvrv. Á Hbv. voru 11 vindstig þ. 7., 8., 11., 13., 15., 16. og 17. 12 vindstig voru þ. 4. í Vm. (37 m/s, mesta hviða 53 m/s) og á Hvrv. (34 m/s, mesta hviða 43 m/s), þ. 5. í Vm. (33 m/s, mesta hviða 41 m/s) og þ. 28. á Gfsk. Þrumur heyrðust í Reykjavík þ. 4. og á Hólmi þ. 27. Glitský sáust frá Kvískerjum þ. 2., Reykjavík og Skógum þ. 5. og Höfn þ. 17. Snjódýpt var mæld á 72 stöðvum þegar jörð var talin alhvít. Mesta snjódýpt mæidist 142 cm á Þórustöðum en þar var meðalsnjódýptin 71 cm sem er einnig sú mesta á landinu. Þar var jörð talin alhvít í 23 daga. 1 Æðey mældist mesta snjódýpt 123 cm og meðalsnjódýptin 68 cm. í Lerkihlíð var meðalsnjódýptin 61 cm, á Raufarhöfn 59 cm, í Garði 56 cm og á Búrfelli 52 cm. Á 3 stöðvum var meðalsnjódýptin 41—48 cm, á 7 stöðvum 21—31 cm, á 17 stöðvum 11—20 cm og 39 stöðvum undir 10 cm. SnjóflóÖ: Skráð snjóflóð í mánuðinum voru 1 á Vesturlandi, 16 á Vestfjörðum og 5 á Mið-Norðurlandi. SkaOar: Þ. 4. skemmdust gróðurhús í Reykholtsdal, þök skemmdust á íbúðarhúsi á (9)

x

Veðráttan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veðráttan
https://timarit.is/publication/278

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.