Veðráttan - 01.03.1983, Blaðsíða 1
VEÐRÁTTAN 1983
MÁNAUARVFIRLIT samið A veðvrstufvnni
Mars
TÍOarfar var óhagstætt vestan- og norðvestanlands, en í öðrum landshlutum var
sæmileg tíð.
Aðfaranótt 1. mars var sunnan hvassviðri eða stormur, og mjög mikil rigning, frá
sunnanverðum Austfjörðum um allt sunnan- og vestanvert landið, til Vestfjarða. Á
3 stöðvum fór sólarhringsúrkoman yfir 100 mm. Hámarkshiti fór víða yfir 10°. Kröpp
lægð var á Grænlandshafi. Undir kvöld komu kuldaskil inn yfir landið úr vestri, vindur
snerist til vesturs með slydduéljum, og það kólnaði til muna. Þ. 2. var 9° kaldara en
þ. 1. og siðan var hiti 3°—6° undir meðaltali sömu daga 1971—1980, fram til þ. 6.
Þ. 2. og 3. var vindur milli suðurs og vesturs, og él, nema norðaustantil á landinu.
Þessa tvo daga var viða hvasst, en þ. 4. lægði og úrkoma var lítil. Þ. 5. og 6. var
nokkur úrkoma um allt land. Fyrri daginn var lægðardrag yfir landinu, en síðari dag-
inn fór smálægð til austurs sunnan við land, og vindur snerist til norðurs.
Þ. 7. komu hitaskil úr suðvestri inn yfir landið, á undan þeim snjóaði í austanátt,
en á eftir þeim rigndi í sunnan- og suðvestanátt. Orkoma var víða allmikil. Hiti hækk-
aði um 6° frá þ. 6. til þ. 7. Skilin komust ekki norður af landinu, og frostið hélst á
Vestfjörðum og við norðurströndina. Daginn eftir snerist vindur til norðurs en var
yfirleitt hægur, heldur kólnaði og um sunnanvert landið stytti upp.
Þ. 9. og 10. var vaxandi frost á landinu, og varð sá 10. kaldasti dagur mánaðarins,
10° kaldari en sami dagur að meðaltali 1971—1980. Vindur var hægur, norðanlands
og austan voru él fyrri daginn en annars var að mestu úrkomulaust.
Þ. 11. urðu snögg umskipti í hita, og var 10° hlýrra en daginn áður. Mikið lægðasvæði
var suðvestur í hafi, og hitaskil komu inn yfir landið úr suðri. Skilunum fylgdi mikil
úrkoma á Austur- og Suðurlandi, og einnig sums staðar vestanlands. Daginn eftir var
norðan strengur yfir Vestfjörðum og lægðardrag yfir landinu. Norðanlands snjóaði,
en sunnanlands rigndi. Hitinn á landinu öllu hækkaði enn um 2°. Þ. 13. þokaðist lægð-
ardragið suður á við, vindátt var austlæg eða norðaustlæg, og snjókoma eða slydda
um mest allt landið, en þó var hiti enn yfir frostmarki og rigning víðast hvar, frá
Hornafirði að Faxaflóa. Þ. 14. og 15. var hæg breytileg átt og víðast úrkomulítið. Þessa
þrjá daga var hiti jafn meðaltalinu 1971-1980.
Aðfaranótt 16. tók að rigna á ný sunnan lands og vestan, og síðar um landið allt,
vindátt var suðlæg í fyrstu en snerist til vesturs. Hiti hækkaði um 4°.
Þ. 17. og 18. var aftur mun kaldara, 3°—4° kaldara en að meðaltali 1971—’80. Vindur var
vestlægur og hvasst með köflum, víða voru él. Síðdegis þ. 18. var vindur suðvestlægari.
Þ. 19. hlýnaði í svip með hvassri sunnanátt fyrri hluta dags. Siðdegis fór mjög kröpp
lægð norður yfir landið, og var þá vindur af öllum áttum, og víða stormur. Daginn eftir
var lægðin vestanvert við landið, og sunnan- eða suðvestanátt, en síðan fór hún til
austurs sunnan við land, og vindur var norðanstæður þ. 21.—23. Þessa 4 daga var 4°—6°
kaldara en að meðaltali 1971—1980. Þ. 19. var víðast mikil úrkoma, nema á Norðaustur-
landi, og í norðanáttinni var þurrt að mestu sunnanlands, en annars voru él þessa daga.
Dagana 24.-26. var áfram fremur kalt. Fyrsta daginn fór smálægð austur yfir landið,
og víða snjóaði, en suðaustanlands var úrkomulaust. Þ. 25. var fyrst norðanátt með
snjókomu norðanlands, en síðan breytileg átt og úrkomulítið. Þ. 26. snerist vindur
til austurs með snjókomu og slyddu um mest allt landið. Suðvestan til á landinu komst
hiti yfir frostmark með kvöldinu og úrkoman breyttist i rigningu.
Þ. 27.—31. var fremur milt. Fyrstu tvo dagana var breytileg átt og víðast úrkoma.
Þ. 29. hvessti af norðaustri með snjókomu á Vestfjörðum. Smálægð fór austur yfir
landið, og norðanáttin fylgdi í kjölfarið með snjókomu norðanlands og vestan. Daginn
eftir herti norðanáttina, en þ. 31. lygndi.
Loftvægi var 8.7 mb undir meðallagi, frá 7.3 mb í Vestmannaeyjum að 10.0 á Dala-
tanga. Hæst stóð loftvog 1026.1 mb á Akureyri þ. 10. kl. 13, en lægst 955.9 mb á Bergs-
stöðum þ. 19. kl. 21.
Vindar milli austurs og suðurs voru fátíðari en árin 1971—80, en vindar frá vestri
til norðausturs tíðari.
(17)