Veðráttan - 01.04.1983, Blaðsíða 1
VEÐRÁTTAN 19S3
MA.\A»AHVFIKUT SAMIU \ VEÐURSTOFUNNl
Apríl
Tíóarfar var víðast talið slæmt. Snjóþungt var um norðanvert landið og sunnanlands
var víða talsverður snjór með köflum. Jafnvel syðst á landinu var gróður ekki farinn
að lifna i mánaðarlok. Samgöngur voru víða erfiðar. Þetta er kaldasti apríl frá 1953.
Hitaskil fóru suður yfir landið þ. 1. og viðast snjóaði. Vindur var norðlægur, og
sunnanlands birti til síðdegis. Þ. 2. og 3. var allhvöss suðaustan- og austanátt með snjó-
komu um mest allt landið. Úrkoma var mikil sums staðar sunnanlands og vestan. Tals-
vert frost var þ. 1. og 2,, en þ. 3. hlýnaði og tók að rigna sunnanlands.
Þ. 4.-8. var kólnandi veður og þ. 8. var orðið 8° kaldara en að meðaltali sama dag
1971—80. Þ. 9. var áfram kalt, en þó 3° hlýrra en daginn áður, en aðfaranótt þ. 9. var
kaldasta nótt mánaðarins. Alla þessa daga var þurrt veður um sunnanvert landið. Þ. 4.
var vindur orðinn norðaustlægur á Vestfjörðum, og þar snjóaði, og þ. 5.-6. snjóaði víða
mikið norðanlands i hvössum norðan- og norðaustan vindi. Þ. 7. var snjókoma minni, og
siðdegis þ. 8. var komið bjartviðri um allt land. Þ. 9. var hæð yfir landinu og ekki telj-
andi úrkoma nema á Vestfjörðum og suður um Snæfellsnes, en þar var suðvestanátt
með snjókomu.
Þ. 10. hlýnaði verulega. Vindur var hægur, en hæð var sunnan við land og tiltölulega
hlýtt loft barst inn yfir land úr suðvestri. Hvergi var teljandi úrkoma nema á Snæfells-
nesi og Vestfjörðum. Næstu tvo daga hélt áfram að hlýna, og voru það einu dagamir í
mánuðinum, sem hiti var yfir meðaltali áranna 1971—80 (1°— 3°). Þ. 11. var kröpp lægð
við suðausturströnd Grænlands, og hitaskil nálguðust úr suðvestri undir kvöld, og fóru
norður yfir landið daginn eftir. Sunnanlands og vestan var allmikil úrkoma. Sunnan-
eða suðaustanátt og rigning var á undan skilunum, en viðast slydda og áttin milli suðurs
og vesturs á eftir þeim.
Þ. 13. og 14. var áfram milt veður, breytileg átt og víða él, en þ. 15. snerist vindur til
norðurs og kólnaði. Víða snjóaði talsvert, en sunnanlands birti til síðdegis.
Hart frost var dagana 16.—25., hiti 5°—9° undir meðallagi 1971—80. Syðst á landinu
fór hámarkshiti einstakra sólarhringa þó nokkrum sinnum yfir frostmark. Þ. 16. og 17.
var stórhríðarveður um norðanvert landið og suður á Austfirði, og hvöss norðanátt um
allt land. Þ. 18. lygndi, fyrst vestantil á landinu.
Aðfaranótt þ. 19. var lægð vestan við land, vindur snerist til suðurs, og tók að snjóa
vestantil á landinu. Þegar kom fram á daginn, snjóaði einnig mikið á Suður- og Suð-
austurlandi og þá var vindur orðinn austlægari. Undir kvöld gekk í norðaustanhvass-
viðri á Vestfjörðum. Lægðin þokaðist suðsuðaustur í haf, en hæð var yfir Grænlandi
og þ. 20.—22. var norðan- eða norðaustanstrengur yfir landinu, með snjókomu norðan-
lands og á Austfjörðum. Þ. 23. lygndi, og síðan voru engin hvassviðri til mánaðamóta.
Þ. 23.-25. var hæðarhryggur yfir landinu, og hvergi teljandi úrkoma nema í Mýrdal þ. 24.
Þ. 26. fór hlýnandi. Vindur var suðvestlægur vestantil á landinu, og þar var lítilsháttar
úrkoma. Siðan var hiti nálægt meðaltali sömu daga 1971—80 til mánaðamóta. Vindátt
var breytileg og vindur hægur. Þ. 27. var úrkomulaust að mestu, en þ. 28. var rigning
eða slydda vestantil á Hndinu, og færðist úrkoman austur yfir landið. Þ. 30. voru él
á Norður- og Austurlandi, en víða skúrir sunnantil á landinu.
Loftvœgi var 4.7 mb yfir meðallagi, frá 3.0 mb á Dalatanga að 6.0 mb á Galtarvita.
Hæst stóð loftvog 1031.1 mb á Hornbjargsvita þ. 1. kl. 21, og á Akureyri þ. 2. kl. 3,
en lægst 980.5 mb á Dalatanga þ. 15. kl. 21.
Vindar: Norðan- og norðaustanáttir voru óvenju tiðar en vindar milli suðurs og vest-
urs tiltölulega fátíðir.
VeÖurhæÓ náði 11 vindstigum í Vestmannaeyjum þ. 2., 3., 17. og 18. og á Teigar-
horni þ.17.
(25)