Veðráttan

Árgangur

Veðráttan - 01.05.1983, Blaðsíða 1

Veðráttan - 01.05.1983, Blaðsíða 1
VEDRÁTTAN 1983 MÁNAÐARYFIRLIT SAMID Á VKDIIRSTOFUNKI Maí Tíðarfar var óhagstætt gróðri. Tún voru þó víðast orðin græn í mánaðarlok, og sauð- gróður kominn syðst á landinu, en um megin hluta landsins var úthagi lítið sem ekki tekinn að lifna. Kartöflur voru settar niður í lok mánaðar, víðast hvar á Suðurlandi. Sauðburður gekk vel, en lambfé var yfirleitt á fullri gjöf, og sumsstaðar allt fé. Á Akureyri hafa sólskinsstundir aldrei verið jafnfáar i maí, frá upphafi mælinga i septem- ber 1927. Veður var hæglátt fyrstu 5 dagana og fór heldur hlýnandi. Þ. 4. og 5. var 2° hlýrra en að meðaltali sömu daga 1971-80, og voru það tiltölulega hlýjustu dagar mánaðar- ins ásamt þ. 28. Norðanlands og austan var úrkomulaust, en nokkur úrkoma var á Suðurlandi og við Faxaflóa, og þ. 4.-5. einnig á Vesturlandi. Aðfaranótt þ. 6. kom úrkomusvæði inn yfir suðaustanvert landið, og næsta sólar- hring rigndi á Austfjörðum. Vindur var norðlægur og veður kólnandi. Síðan var hiti frá meðallagi áranna 1971—80, að 2° undir því alla daga fram til þ. 20. Þ. 7. var hægviðri og þurrt að mestu. Þ. 8. var lægð suðvestur af landinu, og suð- austan- eða austanátt með rigningu sunnanlands og norður á Snæfellsnes. Næstu 3 daga var austan- og síðan norðaustanátt, allhvasst og rigning eða slydda aust- antil á landinu. Siðari tvo dagana snjóaði norðanlands og hiti var þar nálægt frostmarki. tJrkoma var víða mikil á Norðaustur- og Austurlandi. Vindur var áfram norðlægur þ. 12. og 13., en hægari og viða allmikil snjókoma eða slydda á Norðausturlandi og Austfjörðum, og einnig á Ströndum. Þ. 14,—16. var breyti- leg vindátt, þokuloft, en minni úrkoma norðaustan og austantil á landinu, og rigning sunnanlands. Þ. 17. voru skúrir á Suðurlandi en annars ekki teljandi úrkoma. Frá 18. til mánaðamóta var úrkomulaust að heita má frá Suðvesturlandi til Norður- lands vestra. Þ. 23.-24. var þó úrkoma við Faxaflóa, og á Suðvesturlandi voru lítilsháttar skúrir á stöku stað suma dagana. Þ. 18. og 19. var hægviðri og úrkomulaust að mestu um allt land, en þ. 20.—21. var norðanátt austast á landinu, og lítilsháttar snjókoma eða slydda á Norðausturlandi og Austfjörðum, en þ. 22.-23. var dálítil rigning frá Norðausturlandi til Suðurlands. Eftir 24. var þurrt að mestu um allt land til þ. 30. Aðfaranótt þ. 31. var slydda eða rigning norðanlands, og náði slyddan suður um Austfirði er á daginn leið, og sunnan- lands voru sums staðar skúrir. Frá 21,—26. var hiti 1°— 3° undir meðallaginu fyrir 1971—80, síðan var heldur hlýrra þ. 27.-28., en kólnandi úr því, og var kaldast að tiltölu í mánuðinum þ. 31., hiti 4° undir meðaltali sama dags 1971-80. Dagana 23.-26. var austan- eða suðaustanhvassviðri eða rok I Vestmannaeyjum, og stundum var strekkingur sunnanlands, en vindur annars hægur. Lægðir voru suður og suðvestur í hafi. Þ. 27.—30. var hæg breytileg átt en þ. 31. var norðanátt norðanlands. Loftvægi var 0.6 mb yfir meðallagi, frá 0.9 mb undir þvi á Höfn aö 1.9 mb yfir þvi á Hornbjargsvita. Hæst stóð loftvog 1034.8 mb á Dalatanga þ. 26. kl. 12, en lægst 990.1 mb í Vestmannaeyjum þ. 8. kl. 21. Vindar: Norðan- og norðaustanáttir voru tíðari en venja er til, en suðaustan-, sunnan- og suðvestanáttir tiltölulega fátíðar. Veðurhœð náði hvergi 11 vindstigum. Þrumur heyrðust þ. 16. i Bjólu og á Hellu. Snjódýpt var mæld á 32 stöðvum þá daga sem jörð var alhvít. Á Hveravöllum var jörð alhvit í 27 daga, meðaldýpt 81 cm og mesta dýpt 94 cm þ. 1., 2. og 14. Á Siglufirði var alhvítt í 8 daga og meðaldýpt 105 cm, mest 129 cm þ. 13. Á Gjögri var meðaldýpt 63 cm í 15 daga, en mest 80 cm þ. 1. og 2. Á Dratthalastöðum var meðaldýpt 54 cm í 10 daga mest 77 cm þ. 1. Á 7 stöðvum var meðaldýpt 30-49 cm og á einni þeirra, Sand- haugum var alhvítt í 25 daga. Á 10 stöðvum var meðaldýpt 10-29 cm og á 11 stöðvum innan við 10 cm. (33)

x

Veðráttan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veðráttan
https://timarit.is/publication/278

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.