Veðráttan - 01.06.1983, Blaðsíða 1
VEBRATTAN 1983
MÁNAUARYFIRLIT SAMID A VEDIIRSTOFUNNI
Júní
TíOarfar: Mánuðurinn var kaldur framan af og gróðri fór hægt fram. Snjóa leysti
seint, og í Fljótum var snjór á túnum fram eftir mánuðinum. Mjög mikill snjór var á
hálendi á Norður- og Norðausturlandi. Vorverk töfðust norðantil á landinu vegna klaka
og bleytu í jörð. Þar var lambfé yfirleitt ekki sleppt fyrr en eftir miðjan mánuð og þá
fyrst lokið við að setja niður kartöflur. Kýr voru látnar út um svipað leyti. Flytja þurfti
hey úr Landeyjum norður í Þingeyjarsýslur. Eftir miðjan mánuðinn var góð gróðrartið
og víðast kominn góður gróður í mánaðarlok. Sláttur hófst fyrir mánaðamót á nokkrum
bæjum undir Eyjafjöllum og í Öræfum. Norðaustanlands var sums staðar kal í túnum.
Kalt var um allt land þ. 1,—3., og víða næturfrost frá Faxaflóa til Norðausturlands.
Á Suðausturlandi var mildara, og þar rigndi alla dagana en mest þ. 2., og þá rigndi um
allt Suðurland. Einnig voru slydduél eða skúrir á norðurströndinni aðfaranótt þ. 1., en
annars að mestu þurrt. Vindátt var breytileg.
Þ. 4. fóru hitaskil norðaustur yfir landið og veður fór hlýnandi. Vindur varð suð-
austlægur og siðar suðlægur. Mikil úrkoma var á Suður- og Vesturlandi og einnig rigndi
vestan til á Norðurlandi. Daginn eftir var áfram suðlæg átt, en minni úrkoma. Aðfara-
nótt 6. færðist úrkoman í aukana á ný sunnanlands, og um daginn fóru fyrst hitaskil
og síðan kuldaskil yfir landið. Á Austfjörðum og í innsveitum á Norðausturlandi var
að mestu þurrt, en annars staðar rigndi.
Þ. 7. og 8. var áfram fremur milt, hæg suðlæg átt fyrri daginn og lítils háttar úrkoma
vestanlands. Siðari daginn fór smálægð austur með suðurströndinni, og var þá einhver
úrkoma um allt land að heita má, en mest á Suðurlandi.
Aðfaranótt 9. var norðlæg átt og kalsarigning norðanlands og einnig var úrkoma á
Suðausturlandi. Um daginn var lægð á hreyfingu norður Grænlandshaf, og síðdegis tók
vindur að snúast til austurs og suðurs. Úrkomusvæði lægðarinnar fór norðaustur yfir
landið þ. 10., og viðast rigndi talsvert, en mest á Suðausturlandi. Þ. 9. var 2° kaldara
en þ. 8. og 10.
Síðdegis þ. 10. nálgaðist kröpp lægð úr suðri, og var mjög hvöss austanátt aðfaranótt
11. og víða mikil rigning. Vindur snerist fljótlega til norðurs um mestallt landið, en
lægðin kom inn yfir það þ. 11. og fór austur yfir það daginn eftir. Norðanlands var
slydda eða snjókoma báða dagana og varð sumsstaðar alhvit jörð. Austan- og suð-
austanlands rigndi fyrri daginn. Þ. 13. var þurrt veður um allt land nema í Skafta-
fellssýslum, og aðfaranótt 14. var víða næturfrost. Þ. 12. og 13. var 4° kaldara en til
jafnaðar sömu daga 1971—1980, og svo var einnig þ. 1. og 2., og voru þetta köldustu
dagar mánaðarins að tiltölu. Þ. 14. og 15. var hæg suðvestlæg átt, hiýnandi veður
og dálítil úrkoma sunnanlands og vestan.
Víðáttumikið lægðarsvæði var suður af Grænlandi þ. 16. Vindur snerist til austurs, hita-
skil nálguðust úr suðri og fóru norður yfir landið daginn eftir. Um allt land rigndi, en
mest sunnanlands og vestan þ. 16. og aðfaranótt 17. Veður fór hlýnandi. Frá 16. til mán-
aðamóta var hiti frá þvi að vera jafn meðaltalinu fyrir 1971—80 upp í 3° yfir þvi, að und-
anskildum þ. 25., en þá var 1° kaldara en til jafnaðar sama dag 1971-80. Hlýjast var þ. 20.
og 24. Á Norðaustur- og Austurlandi var hámarkshiti oft 15°—20°.
Þ. 18. og 19. var víða þoka á Norður- og Austurlandi en lítil úrkoma, og sunnanlands
og vestan rigndi. Lægð var suðvestur í hafi og vindátt yfirleitt milli austurs og suðurs.
Næstu tvo daga var hæg breytileg átt og mikil úrkoma á Suðurlandi, en yfirleitt mun
minni vestanlands, og að mestu þurrt norðaustantil á landinu.
Lægðardrag fór austur yfir land aðfaranótt 22. Vindur snerist til vesturs og var síðan
milli vesturs og suðurs þ. 23.-24. Víða rigndi en mest á Norður- og Vesturlandi þ. 22.
og 23. Þ. 24. var úrkoman víðast mun minni.
Þ. 25. stytti upp sunnanlands og vestan en úrkomusvæði fór austur yfir Norðurland.
Daginn eftir var hvöss norðan- eða norðvestanátt norðaustanlands framan af. Hæðar-
hryggur fór austur yfir landið og viðast var bjartviðri.
Þ. 27. kom úrkomusvæði úr suðvestri inn yfir landið, og var kyrrstætt yfir norðaust-
anverðu landinu aðfaranótt 28. og þar var úrkoman mest. Þegar á daginn leið dró mjög
(41)