Veðráttan - 01.07.1983, Blaðsíða 1
VEÐRÁTTAN 1983
MÁNAÐARYFIRLIT SAMIÐ Á YEÐVRSTOFIINNl
Júlí
TíÖarfar var mjög slæmt á Suðvestur- og Vesturlandi, úrkomusamt og með afbrigðum
kalt og sólarlítið. Heyskapur gekk illa. I Reykjavík var meðalhitinn í mánuðinum 1°
lægri en það sem áður hefur kaldast orðið á öldinni, og sólskinsstundir aðeins 50% af
meðaltalinu fyrir 1931—1960. Norðanlands og austan var tíðarfar sæmilega hagstætt og
gróðri fór vel fram. Sláttur hófst þar ekki almennt fyrr en seinni hluta mánaðarins, en
gekk sæmilega. Víða á landinu sá á gróðri i hreti þ. 17.—18. Fjallvegir voru allir orðnir
færir um miðjan mánuðinn.
Fyrstu 10 dagana var hiti jafn meðaltalinu fyrir árin 1971—1980 nema þ. 2., þá var
meðalhiti allra stöðva 7%°, sem er 1° kaldara en var að jafnaði sama dag 1971—80.
Þ. 1. og 2. var lægðardrag á hreyfingu austur yfir land. Vindátt var breytileg og úr-
koma um allt land, en þó meiri fyrri daginn. Þ. 3. var allmikil lægð á Grænlandshafi,
hitaskil komu inn yfir land úr suðvestri, og á undan þeim var allhvöss suðaustanátt, en
sunnan- og suðvestanátt á eftir. Úrkoma var mikil um allt land. Nýtt úrkomusvæði kom
úr vestri aðfaranótt 4. og aftur rigndi mikið, en á Norður- og Austurlandi stytti víðast
upp með morgninum. Á Suðausturlandi var áfram mjög mikil rigning þ. 5. og á Suður- og
Vesturlandi rigndi einnig, en yfirleitt ekki mikið. Þ. 6. og 7. var hægviðri og víða þokuloft
við strendur norðanlands og austan. Úrkoma var yfirleitt ekki teljandi, og sums staðar
var bjartviðri.
Aðfaranótt þ. 8. kom úrkomusvæði inn yfir landið úr vestri, og vindur varð suðlægur
og síðan suðvestlægur og sumsstaðar allhvass. Úrkoma færðist austur yfir landið, en
var lítil norðaustanlands. Þ. 9. var hæg suðvestlæg átt, en breytileg átt þ. 10. Aðfaranótt
9. rigndi á Suður- og Suðvesturlandi, en annars var úrkoma yfirleitt ekki teljandi.
Þ. 11,—18. var hiti 1°— 5° undir meðaltali sömu daga 1971—80. Köldustu dagar mánaðar-
ins voru 17. og 18., meðalhiti allra stöðva 6°—6%°. Þ. 11. og fram eftir degi þ. 12. var
vindur hægur og þurrt veður að mestu, en síðdegis kom úrkomusvæði inn yfir vestan-
vert landið, og fór austur yfir um nóttina. Úrkoma var þó ekki teljandi austanlands.
Hæð sem var vestan og^sunnan við land þ. 11., þokaðist suðaustur næsta dag. Lægð
var á hreyfingu norður með Grænlandi þ. 12. og eyddist hún norðan við land daginn
eftir. Um skamma stund var sunnanátt vestanlands, en siðan gekk vindur til suðvesturs
og vesturs.
Þ. 14. fór smálægð austur yfir landið og vindur snerist til norðurs, en þ. 15. var
hæg breytileg átt. Þessa tvo daga var að mestu þurrt og víða bjart seinni daginn.
Þ. 16. var smálægð á hreyfingu austur yfir landið og breytileg átt lengst af, en
allhvöss norðan- og norðaustanátt undir kvöld og daginn eftir. Úrkoma var mest norð-
anlands, slydda til fjalla og jafnvel í byggð. Sunnanlands var bjart veður þ. 17. Þ. 18.
gekk norðanáttin niður og birti þá einnig til norðanlands. Næturfrost voru á nokkrum
stöðvum þ. 17. og 18.
Þ. 19. og 20. hlýnaði til muna, og var 3° hlýrra en að jafnaði sama dag 1971—80. þ. 20.
Hlýjast var á Norðaustur- og Austurlandi. Þetta var hlýjasti dagur mánaðarins, meðal-
hiti allra stöðva 12°. Þ. 25. var hiti 2° yfir meðaltalinu 1971—80, en aðra daga til 29.
var frá 1° undir að 1° yfir því.
Þ. 19. nálguðust hitaskil Suðvestur- og Vesturland, og suðvestanlands var allhvöss
austan- og suðaustanátt. Úrkomusvæði færðist austur yfir landið og rigndi víða mjög
mikið sunnanlands og vestan þ. 19., en þ. 20. dró úr úrkomunni og vindur snerist til
suðurs. Þ. 21,—24. var vindur yfirleitt hægur, úrkomulítið en skýjað.
Þ. 25. var lægð á Grænlandshafi og vindátt milli austurs og suðurs. Sunnan- og
vestanlands tók að rigna, og úrkomusvæðið færðist síðan yfir landið um nóttina. Þ. 26.
var lægðardrag yfir landinu og víðast skúrir, en daginn eftir var víða bjartviðri norðan-
lands og austan.
Þ. 28. var lægð á Grænlandshafi, lægðardrag yfir landinu, og úrkoma um allt land.
Daginn eftir var vestlæg átt, minni úrkoma og sums staðar þurrt norðan- og austantil
á landinu. Smálægð var á hreyfingu austur yfir landið þ. 30., og úrkoma um allt land,
en síðasta dag mánaðarins gerði norðanátt. Talsverð úrkoma var norðan- og austantil
(49)