Veðráttan

Árgangur

Veðráttan - 01.08.1983, Blaðsíða 1

Veðráttan - 01.08.1983, Blaðsíða 1
VEBRATTAN 1983 MÁIVADARYFIRLIT SAMID A VEDURSTOFUNIYM TÍÖarfar var slæmt sunnanlands og vestan en yfirleitt hagstætt norðaustantil á land- inu. I Eyjafirði lauk heyskap að mestu snemma í mánuðinum, og á öllu Norður- og Austurlandi var honum viðast lokið fyrir mánaðamót. Á Suður- og Vesturlandi var afleit heyskapartíð, úrkomusamt, sólarlítið og kalt. I Reykjavik er þetta kaldasti ágúst frá 1886, en frá þeim tíma hefur ágústhitinn þar aðeins einu sinni verið minni en 9°, en það var 1921. Sólskinsstundir hafa aldrei verið jafnfáar i Reykjavík frá þvi mælingar hófust 1923. Að morgni þ. 1. mældist víða mikil úrkoma frá Skagafirði til Vopnafjarðar, en um daginn var að mestu þurrt um allt land og hægur norðanvindur. Kalt var i veðri, hiti 2° undir meðaltali sama dags 1971—80. Næstu daga var heldur hlýrra, hiti frá meðallagi áranna 1971—80 að 2° yfir því þ. 2.-9. Meðalhiti allra stöðva var 10%° þ. 4.-6. og 8.-9. ÍJrkomusvæði kom inn yfir landið úr vestri þ. 2., og rigndi víða mikið á Suður- og Vesturlandi. Vindátt var breytileg þ. 2. og 3. Aðfaranótt 4. fór úrkomusvæði austur yfir land, og um daginn var vindur milli suðurs og vesturs. Úrkoma var yfirleitt óveruleg nema á Vestfjörðum og fáeinum stöðum suðvestanlands. Þ. 5. var lægð á Grænlandshafi og allhvöss suðaustanátt um hríð suðvestanlands, en daginn eftir var lægð yfir landinu og breytileg átt. Úrkoma var mest á Suðurlandi, en á Norðurlandi og Austfjörðum var að mestu þurrt fyrri daginn. Síðari daginn rigndi um allt land að heita má. Dagana 7.-9. var mjög mikil úrkoma á Suður- og Suðvesturlandi. Á Norðaustur- og Austurlandi var úrkoma yfirleitt óveruleg nema síðasta daginn, en á Vestur- og Norð- vesturlandi mældist sums staðar talsverð úrkoma. Úrkomusvæði bárust inn yfir land úr suðvestri, og sunnan- og suðvestanátt var ríkjandi. Vindur var hvass með köflum, eink- um þ. 8. Þ. 10. var breytileg átt og lítil úrkoma en víða þoka. Heldur kólnaði í veðri, og fram til 23. var hiti oftast undir meðaltali sömu daga 1971—80. Kaldast var þ. 15.—16. og þ. 22.-23., meðaltal allra stöðva 7°. Næturfrost voru á nokkrum stöðvum þ. 22. og 23. Smálægð fór norðaustur yfir land þ. 11.. en þ. 12. var úrkomusvæði suður af landinu, og tvo næstu daga voru smálægðir yfir því. Þ. 11. var að mestu þurrt á Suðausturlandi, og þ. 12. á Austfjörðum. Annars var lengst af rigning um allt land, víða allmikil sunnan- lands og vestan þ. 12., og á Vestfjörðum þ. 13., en mest varð úrkoman þ. 14. og aðfara- nótt 15. á Norðurlandi. Vindur var vestlægur um tíma þ. 11. á Vestur- og Suðurlandi og þ. 12. var austanátt sunnanlands, en annars var vindur mjög breytilegur. Þ. 14. fór vindur að ganga til norðausturs og norðurs, fyrst norðvestanlands. Þ. 15. var norðanátt og víða allhvasst. Sunnanlands var þurrt veður, en úrkoma norð- anlands. Daginn eftir var hægviðri og þurrt fram undir kvöld, en þá kom úrkomusvæði inn yfir Suðvesturland, og rigndi víða mikið sunnanlands og vestan um nóttina. Þ. 17. fóru lægðarbylgjur norður yfir land, og rigndi þá mjög mikið um miðbik Suðurlands, en einhver úrkoma var um allt land. Þ. 18. var hægviðri og úrkomulítið. Þ. 19. og 20. var lægð á Grænlandssundi og lægðardrag norðan við land þ. 21. Vindur var milli suðurs og vesturs. Úrkoma var sunnanlands og vestan tvo fyrri dagana, en síðasta daginn var úrkoma óveruleg. Þ. 22. var hæðarhryggur yfir landinu og þurrt veður um allt land. Þ. 23. var hæð austan við land en djúp lægð á Grænlandshafi. Daginn eftir fóru hita- skil lægðarinnar austur yfir landið. Lægðin olli suðaustan og sunnan hvassviðri á Suð- vestur- og Vesturlandi. Hiti hækkaði um rösklega 5° á öllu landinu, og var að meðaltali 12%°. Síðan kólnaði nokkuð, en fram til 28. var þó ámóta hlýtt og að meðaltali sömu daga 1971—80, en síðustu 3 daga mánaðarins var hitinn 2°—3° undir meðaltali þeirra ára. Mjög mikil úrkoma mældist víða á Suður- og Vesturlandi að morgni þ. 24., og mikil úr- koma var einnig á Norðurlandi, en mun minni á Austfjörðum. Þ. 25. var hægviðri og úrkomulitið fram eftir degi, en með kvöldinu kom úrkomu- svæði inn yfir land úr vestri, víðast rigndi um nóttina en ekki mjög mikið nema á Suð- urlandi. Á Suðausturlandi voru stórrigningar næstu tvo sólarhringa. Þ. 26. kom smálægð að suðausturströndinni og fór síðan norðnorðaustur. Þennan dag rigndi mest austan til á landinu. Þ. 27. komu úrkomusvæði úr suðvestri og fóru yfir landið, og daginn eftir (57)

x

Veðráttan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veðráttan
https://timarit.is/publication/278

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.