Veðráttan

Árgangur

Veðráttan - 01.09.1983, Blaðsíða 1

Veðráttan - 01.09.1983, Blaðsíða 1
VEBRÁTTAN 1983 MÁNADARYFIRLIT SAMID Á VEDURSTOFUNNI September TíOarfar var hagstætt. Veður oft stillt og bjart, en mun kaldara en rmeðalári. Hey- skap á óþurrkasvæðunum lauk víðast á fyrstu 10 dögunum, og urðu hey yfirleitt all- mikil. Kartöfluuppskera var mjög rýr víðast hvar og berjaspretta léleg. Gróður stóð vel langt fram eftir mánuðinum, ekki síst á heiðum og í fjalllendi, og annars staðar þar sem seinsprottið var. Fyrstu 10 dagana var meðalhiti allra stöðva 5°—6° og var frá meðaltali áranna 1971—80 að 3° undir því. Að morgni þ. 1. mældist víða allmikil úrkoma á Norðaustur- og Austurlandi, og um daginn rigndi norðanlands. Vindur var norðlægur, stöku skúrir á Suðausturlandi, en annars þurrt og víða bjart sunnanlands. Daginn eftir náðu smáskúrir til norðaustur- strandarinnar, en annars var þurrt. Aðfaranótt þ. 3. byrjaði að rigna suðvestanlands og þar rigndi áfram fram að morgni þ. 4. Vestantil á landinu var nokkur úrkoma þ. 4., og þ. 5. voru skúrir á Suðurlandi, en þ. 6. var úrkomulaust um allt land. Vindátt var breyti- leg og vindur hægur þ. 2.-6., en undir kvöld síðasta daginn var komin austanátt syðst á landinu. Þ. 7.-9. var lægð á hreyfingu austur á bóginn, sunnan við land. Tvo fyrri dagana var hvöss austanátt við suðurströndina og þar rigndi nokkuð. Á Vestfjörðum og annesjum norðanlands hvessti einnig um hríð. Þ. 8. og 9. var lítilsháttar úrkoma norðaustantil á landinu, en annars var þurrt þessa daga, og einnig þ. 10. Þ. 9. og 10. var vindur hægur. Þ. 11. lá hæðarhryggur vestan við Bretlandseyjar og norður milli Islands og Noregs. Hlýrra loft tók að berast inn yfir landið. Vindur var hægur fram á kvöld þ. 11. og úrkomulítið, en þá hvessti af suðaustri suðvestanlands, og þar var allhvasst næstu 2 daga. Vestantil á landinu rigndi talsvert um nóttina. Þ. 12. og 13. voru lægðir suðvestur í hafi, og úrkomusvæði komu inn yfir Suður- ogVest- urland, en frá Eyjafirði til öræfa var þurrt. Þ. 12. og 13. var meðalhiti allra stöðva 9° og voru það hlýjustu dagar mánaðarins, hiti 2°-3° yfir meðaltali sömu daga áranna 1971—80. Næstu daga var heldur kaldara, en hiti þó frá meðltali áranna 1971—80 að 1° yfir því til þ. 18. Síðan hélt áfram að kólna og hitinn var kominn niður í 3° þ. 23., sem er 4° undir meðalhita sama dags 1971—80. Þ. 14. og 15. var rigning um allt land, og næstu tvo daga var áfram úrkoma norðantil á landinu. Þ. 14,—16. var vindur hægur og vindátt breytileg. Þ. 16. var þó norðanátt á Vestfjörðum og Norðurlandi. Þ. 17. og 18. var mjög kröpp lægð á hreyfingu austnorð- austur suður i hafi. og þ. 19. var hún komin norður milli íslands og Noregs. Þ. 17. var vindátt milli norðurs og austurs, og vaxandi vindur og úrkoma með kvöldinu. Þ. 18,—20. var norðan- og norðaustanátt, sums staðar allhvasst og mikil rigning víða á Norður- og Austurlandi, en þurrt veður sunnanlands. Þ. 21. var hægur vindur og úrkomulaust um meginhluta landsins, en norðanátt og úrkoma var þó enn norðaustantil á landinu. Þ. 22. og 23. var stillt veður en skúrir eða slydduél á stöku stað norðanlands, og talsverð úrkoma mældist að morgni þ. 23. á Austfjörðum og Suðausturlandi. Lægð var á hreyfingu norður með austurströnd Grænlands þ. 24., og daginn eftir var lægðardrag norðan við land. Hitaskil lægðarinnar fóru norður yfir land þ. 24., og þeim fylgdi sunnan hvassviðri og mikil rigning nema á Norðausturlandi og Austfjörðum. Að- faranótt 25. fóru kuldaskil lægðarinnar austur yfir landið, og gekk þá í vestanátt, og þann dag var víðast úrkomulaust. Þ. 24. hlýnaði um 5°, og hiti var 1° yfir meðaltalinu fyrir 1971—80 þessa 2 daga. Síðustu 5 daga mánaðarins var hiti 1°— 5° undir meðaltalinu fyrir 1971—80, kaldast var þ. 28. og 29., meðalhiti allra stöðva 1°. Þ. 26. var norðlæg átt norðantil á landinu og skúrir eða él, en sunnanlands var breyti- leg átt og úrkomulaust. Daginn eftir var norðanátt og él á Norðausturlandi og Aust- fjörðum, en annars staðar breytileg átt og þurrt veður. Þ. 28—29. þokaðist hæð austur yfir landið, og var stillt og bjart veður nema syðst á landinu. Þar gekk í austanátt (65)

x

Veðráttan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veðráttan
https://timarit.is/publication/278

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.