Veðráttan - 01.11.1983, Blaðsíða 1
VEÐRÁTTAN 19S3
MÁNAÐARYFIRLIT SAMID Á VEÐUKSTOFUNNI
Nóvember
Tíðarfar var fremur hagstætt. Snjólétt var og færð yfirleitt góð, nema sums staðar
norðaustanlands fyrstu vikuna.
Fyrstu 8 daga mánaðarins var kalt i veðri, hiti 2°—4° undir meðaltali sömu daga
1971—80 þ. 1.—7. og 7° undir því þ. 8. Þann dag fór lágmarkshiti víða niður fyrir 10° frost
og meðalhiti allra stöðva var —6°.
Þ. 1. var norðlæg átt norðantil á landinu, en vestlægur vindur syðst og snjókoma,
nema á Suðausturlandi, þar var úrkomulaust að mestu. Daginn eftir kom úrkomusvæði
inn yfir landið úr suðvestri, og var snjókoma eða slydda um allt land. Vindar voru
suðlægir. Að morgni þ. 3. mældist mest úrkoma á Austfjörðum og Suðurlandi, þann dag
var vindátt breytileg og víða él. Dagana 4.-7. komu lægðir úr suðri og fóru norðaustur
með Suðausturlandi og Austfjörðum. Alla dagana var talsverð snjókoma um norðanvert
landið, en á Suður- og Suðvesturlandi var að mestu þurrt þ. 5.-7. Þ. 4. og 5. var allhvass
norðan og norðaustanvindur á Vestfjörðum og Norðurlandi, en breytilegri vindátt
sunnantil á landinu. Þ. 6. var vindur austlægari um hríð, en snerist síðan til norðurs og
var norðlægur þ. 7. Þ. 8. var hæð yfir landinu, stillt og víða bjart veður. Síðdegis var
þó komin suðvestanátt norðvestantil á landinu með slyddu, og hiti fór þar upp fyrir
frostmark.
Þ. 9. hækkaði hiti á landinu öllu um 4%° og næstu daga hélt áfram að hlýna. Þ. 12.—18.
var meðalhiti allra stöðva 4%°— 6%° en það er 5°—8° yfir meðaltali sömu daga 1971—80.
Hámarkshiti fór víða yfir 10°, hlýjast varð þ. 13. Frá Isafjarðardjúpi til Austfjarða var
úrkomulaust þ. 9.—18.
Þ. 9. var úrkomulaust um allt land, vestlæg átt norðanlands, en hægviðri syðra.
Næstu 2 daga var austanátt við suðurströndina og lítils háttar úrkoma á stöku stað.
Þ. 12.—13. fór lægð norðaustur með austurströnd Grænlands. Fyrri daginn brá fyrst til
austanáttar sunnanlands, en síðar var vindátt milli suðurs og suðvesturs. Báða dagana
rigndi á Suður- og Suðvesturlandi, en meira fyrri daginn, og þá rigndi allt norður á
Vestfirði. Þ. 14,—16. var hægviðri um mikinn hluta landsins, en vestan eða suðvestanátt
við norðurströndina. Úrkoma var lítil en viða þoka. Þ. 17. var lægð á Grænlandshafi og
úrkomusvæði kom inn yfir Vesturland. Daginn eftir var vindur milli suðurs og vesturs
og rigning sunnanlands og vestan. Aðfaranótt 19. var vindur að ganga til norðurs
norðantil á landinu, og þar fór að snjóa.
Þ. 19. og 20. kólnaði verulega, og síðari daginn var 6° frost að meðaltali á öllum
stöðvum. Hitinn féll um 10%° frá 18. til 20. Þ. 19. var hvöss norðvestanátt við suðvestur-
ströndina framan af, en siðan var norðanátt um allt land með snjókomu frá Vestfjörðum
til Austfjarða, en bjartviðri syðra. Daginn eftir var hæð yfir landinu, hægviðri og
úrkomulaust að mestu.
Aðfaranótt 21. gekk í sunnan og suðvestanátt með talsverðri úrkomu á Vestfjörðum.
Um daginn fór smálægð austur yfir landið, talsverð úrkoma var nema á Suðausturlandi
og hiti hækkaði um 5°. Næstu 3 daga var meðalhiti allra stöðva yfir frostmarki, hlýjast
4° þ. 23. Þ. 22.-23. var smálægð á Grænlandssundi og úrkomusvæði yfir landinu. Vindur
var yfirleitt hægur og áttin suðlæg, og viða mikil rigning, einkum sunnanlands. Þ. 24.
var norðan- eða norðaustanátt og snjókoma norðanlands. Úrkomusvæði var einnig
sunnan við land og á Suðurlandi hæg austanátt, rigning eða slydda.
Þ. 25.-29. var hiti undir frostmarki, og var kominn niður i —7° þ. 28. og 29., samkvæmt
meðaltali allra stöðva, og voru það köldustu dagar mánaðarins. Þ. 25.-27. var hæð
yfir Grænlandi, en mikið lægðasvæði suður í hafi hreyfðist austur. Vindur var milli
austurs og norðurs og sums staðar hvass. Snjókoma var um allt land tvo fyrri dagana,
en síðasta daginn var hún óveruleg, nema á Norðurlandi. Þ. 28. voru él á stöku stað,
en yfirleitt úrkomulaust og stillt veður. Hæðarhryggur fór austur yfir landið þ. 28.-29.,
en síðari daginn var mikil lægð suðvestur í hafi. Hitaskil nálguðust þ. 29. og á undan
þeim var hvöss austanátt. Aðfaranótt 30. var mikil úrkoma á Suðausturlandi og einnig
viða um vestanvert landið. Hitaskilin fóru yfir landið þ. 30. og þann dag hækkaði hitinn
um 8%°. Á eftir skilunum var vindur sunnanstæður og áfram rigndi um sunnanvert
landið.
Loftvægi var 7.7 mb yfir meðallagi frá 5.6 mb á Dalatanga að 9.2 mb í Vestmannaeyj-
um og á Reykjanesi. Hæst stóð loftvog 1035.9 mb á Reykjanesi þ. 14. kl. 21, en lægst
þ. 1. 975.0 mb á Vopnafirði kl. 2 og á Raufarhöfn kl. 1.
Vindar milli suðurs og vesturs voru heldur tíðari en á árunum 1971-80, en vindar
frá norðri til suðausturs lítið eitt undir meðaltali þeirra ára.
(81)