Veðráttan

Árgangur

Veðráttan - 01.12.1983, Blaðsíða 1

Veðráttan - 01.12.1983, Blaðsíða 1
VEÐRÁTTAN 1983 MÁNAUAKVFIIIUT SAMID Á VEÐVnSTOFVNNl Desember Tíöarfar var talið hagstætt til jóla, en þá tók víðast að snjóa og færð spilltist. Fyrstu 3 daga mánaðarins var hiti yfir frostmarki. Þ. 1. og 2. var hiti 3°—4° yfir meðaltali sömu daga 1971—80 en þ. 3. kólnaði um 3°. Næstu 2 daga hélt áfram að kólna, og þ. 5. var orðið 4° kaldara en sama dag 1971—80. Að morgni þ. 1. mældist mikil úrkoma á Austfjörðum og Suðurlandi, og um daginn rigndi viða á Suður- og Vesturlandi. Vindátt var milli suðurs og suðvesturs. Aðfaranótt 2. snerist vindur til austurs og suðausturs með talsverðri rigningu suðvestantil á landinu. Kröpp lægð var á Grænlandshafi, og hitaskil fóru yfir landið um daginn, og á eftir þeim varð vindur suðlægur. Þ. 3. var suðvestlæg átt en hægviðri þ. 4.-5., nema við norður- og norðausturströndina, þar var skammvinn norðvestanátt. Þessa þrjá daga voru víða él. Úrkoma var þó yfirleitt ekki veruleg. Þ. 3. var þurrt að mestu, nema suðvestantil á landinu, og þ. 5. var bjartviðri sunnanlands. Þ. 6.-7. gerði skammvinna hláku. Mikil lægð var suðvestur í hafi þ. 6., en hæð yfir Bretlandseyjum, og hlýtt loft barst inn yfir landið með sunnanátt. Mikil úrkoma, víðast rigning eða slydda, var frá Austfjörðum um Suðurland til Norðurlands vestra, en norðaustantil á landinu var hún minni. Daginn eftir var lægðardrag yfir landinu og þokaðist það suður fyrir land. Vindur gekk til norðausturs og austurs, fyrst á Vest- fjörðum og við norðurströndina, og þar var viða hvasst og mikil snjókoma, en úrkoma var um allt land. Þ. 8. og 9. kólnaði verulega, og var 8° kaldara þ. 9. en þ. 7. Fyrri daginn var vindátt milli norðurs og austurs, en síðari daginn var vindur yfirleitt hægur. Sums staðar voru él, og úrkomusvæði náði inn á suðvesturströndina þ. 8. Þ. 10. dró úr frosti, og síðan var hiti á öllu landinu lengst af litið eitt undir frostmarki fram til þ. 18. Lægð var á Grænlandshafi þ. 10. Hitaskil komu inn yfir land úr suðvestri, og þeim fylgdi hvöss austanátt sunnanlands. Úrkoma var um allt land, víðast snjókoma. Þ. 11. var úrkoman mun minni og þurrt frá Norðausturlandi og suður i öræfi. Þ. 12. var aftur lægð á Grænlandshafi, og olli hún hvassri suðaustanátt með snjókomu suð- vestanlands með kvöldinu, en um daginn voru él i norðlægri átt á Vestfjörðum. Úrkomu- svæðið fór yfir landið um nóttina. Þ. 13. var hvöss norðanátt og snjókoma á Vestfjörðum, en annars staðar var hægari vindur og viða él. Þ. 14. var smálægð við Suðurland, og allmikil úrkoma víða austantil á landinu, og einnig á Vestfjörðum, en þar var áfram hvöss norðan og norðaustanátt. Frá 15. til 23. var svo til úrkomulaust um allt Suður- og Vesturland. Þ. 15.—16. var norðlæg átt rikjandi, en þ. 17. var vindur austlægur. Fyrsta daginn var hvasst norðan til á landinu og snjókoma á norðanverðum Vestfjörðum og Norðurlandi, en slydda eða rigning á Austfjörðum. Síðari tvo dagana voru él á Norðausturlandi og Austfjörðum. Þ. 18. barst hlýrra loft úr austri inn yfir landið, og var hiti 3°—4° yfir meðaltali áranna 1971—80 fram til 20. Úrkomubelti var við sunnanvert landið og rigning á Austur- og Suðausturlandi, og einnig var úrkoma á stöku stað við strendur í öðrum landshlutum. Þ. 19.—20. var áfram austlæg átt og dálitil úrkoma á Austfjörðum, og síðari daginn einnig él sums staðar norðan til á landinu. Þ. 21. var vindur heldur norðlægari en dagana á undan, og veður kólnandi. Næstu 3 dagar urðu köldustu dagar mánaðarins, 6°—9%° frost að meðaltali á öllum stöðvum. Þ. 21. og fyrri hluta dags þ. 22. voru él norðanlands og austan, en síðan víðast þurrt og hægur vindur fram á aðfangadag, en þá fór að snjóa í austanátt vestast á landinu. Á jóladag var lægðardrag yfir landinu, breytileg átt og viða snjókoma, en minna frost en áður. Þ. 26. var kröpp lægð við Suður-Grænland, og þ. 27.-28. var lægðardrag norðan við land. Fyrsta daginn hvessti af suðri og suðaustri með mikilli úrkomu, slyddu eða rign- ingu, síðdegis gekk í suðvestan og vestan átt með skúrum eða éljum, og hélst það veðurlag næstu tvo daga. Þ. 27.-28. var að mestu þurrt á Norðaustur- og Austurlandi. Þ. 29. var vindur suðlægari um sinn, en áfram él, og siðdegis hafði aftur gengið i vestanátt. Þ. 30.—31. fór djúp lægð norður milli Islands og Grænlands. Síðdegis þ. 30. komu skil úr suðvestri inn yfir landið, og á undan þeim var hvöss suðaustanátt með snjókomu, en á eftir suðvestanátt og él. Á gamlársdag var vindur hægari, en áfram suðvestan eða vestanátt og él. Tvo síðustu daga ársins var frostið að jafnaði 2°—3%°. Loftvœgi var 1.0 mb undir meðallagi, frá 0.2 mb i Vestmannaeyjum að 1.6 mb á Dalatanga. Hæst stóð loftvog 1033.5 mb í Grímsey þ. 9. kl. 12, en lægst 956.6 mb á Gufuskálum þ. 31. kl. 18. (89)

x

Veðráttan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veðráttan
https://timarit.is/publication/278

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.