Veðráttan

Árgangur

Veðráttan - 02.12.1983, Blaðsíða 1

Veðráttan - 02.12.1983, Blaðsíða 1
VEÐRÁTTAN 1983 ÁRSYFIRLIT SAMIÐ Á VEÐURSTOFUNNT Tíðarf arsyf irlit. TíOarfar var óhagstætt sunnanlands og vestan nema síSustu 4 mánuðina. Annars staðar var sæmileg tíð nema í apríl og maí. Loftvægi var 0.6 mb undir meðallagi, frá 0.7 mb yfir meðallagi í Vestmannaeyjum að 1.7 mb undir því á Dalatanga. Hæst stóð loftvoig á Eyvindará 1043.8 mb 19. febrúar kl. 15, en lægst 5. janúar kl. 18—19 929.4 mib í Vestmannaeyjum, og er það lægsta loftvægi sem mælst hefur á landinu frá 1933, en þá mældust 923.9 mb í Vestmannaeyjum. Hiti var 1.5° undir meðallagi. Þetta er eitt af köldustu árum aldarinnar. Kaldara var 1979, hiti 2.1° undir meðallagi, en ámóta kalt 1981, 1969, 1918 og 1917. Árssveifla hitans, þ.e. munurinn á heitasta og kaldasta mánuði, var minnst 8° í Vestmannaeyjum. Með ströndum fram var ihún víðast 9°—11° nema á Norðausturlandi þar var hún um 12°. Um meginhluta landsins var árssveiflan 12°—14° en mest 15.6°—15.7° í Reykjahlíð, Gríms- stöðum, Brú og Möðrudal. Hámarkshiti fór hvergi yfir 25.0° nema í Vopnafirði 24. ágúst, en þar komst hámarkið í 25.3°. Lágmark fór aldrei niður fyrir —25.0°, en kaldast varð —24.9° í Möðrudal 17. janúar. Úrkoma var meiri en í meðalári nema á 8 stöðvum (sjá kort bls. 98). Mest var úrkoman á Kviskerjum 3168 mm, á 4 stöðvum var hún milli 2000 og 2500 mm og á 13 stöðvum milli 1600 og 2000 mm. Minnst var úrkoman í Möðrudal 390 mm, og á 9 stöðvum var hún milli 400 og 600 mm. Mesta sólarhringsúrkoma var 200.0 mm á Dalatanga 3. október og daginn eftir mældust þar 128.6 mm. 1 Neskaupstað fór úrkoma yfir 100 mm þ. 2., 3. og 4. október. Alls mældist sólarhringsúrkoma meira en 100 mm í 11 skipti og milli 50 og 100 mm i 132 skipti. Sólskinsstundir voru 75—79% af meðaltali áranna 1971—80 í Reykjavík, á Reykhólum, Akureyri, Höskuldarnesi og Sámsstöðum. Fæstar að tiltölu í Reykjavík og á Sámsstöðum. Flestar voru sólskinsstundir að tiltölu á Hólum 88% og á Hallormsstað og Hveravöllum voru þær 83—86% af meðaltalinu fyrir 1971—80. Sólskinsstundir voru mest 30—31% af þeim tíma sem sól er á lofti á Hallormsstað og Hólum, en 21—25% á hinum stöðvunum. Veturinn (desember 1982—mars 1983) var lengst af talinn óhagstæður um mikinn hluta landsins. Hiti var 0.9° undir meðallagi. Meðalhiti vetrarins á einstökum stöðvum var frá 1.1° í Vík að —6.4° á Hveravöllum, —5.4° í Möðrudal og —5.1° á Grímsstöðum. Á 5 stöðvum var vetrarhitinn frá frostmarki að 0.9° yfir því. Á 3 stöðvum var frostið 4.0°—4.5° og á 2 stöðvum milli 3.0° og 4.0°. tJrkoma var meiri en í meðalári nema á nokkrum stöðvum austanlands, 3 stöðvum við suðurströndina og 3 stöðvum norðvestan- lands. Á 3 stöðvum norðaustanlands mældist meira en tvöföld meðalúrkoma. Mesta vetrarúrkoma var 1422 mm á Kviskerjum og 984 mm á Snæbýli, en minnst 90 mm i Möðrudal. Vorið (apríl—mai) var mjög kalt og óhagstætt gróðri. Hiti var 2.4” undir meðallagi. Vorið 1979 var mun kaldara, en hiti var þá 3.3° undir meðallagi. Vik vorhita frá meðallagi 1931—60 hefur verið reiknað frá 1963 og eru þessi tvö vor langköldust frá þeim tíma. Kaldast var á Hveravöllum —3.7° og í Möðrudal —3.3°. Hitinn var undir frostmarki á 20 öðrum stöðvum og á 5 stöðvum var frostið meira en —1.0°. Mildast var í Vík, á Vatns- skarðshólum og Sámsstöðum 4.0°—4.2°. Á 8 stöðvum var hitinn 3.0°—3.9°. Úrkoma var ,ninni en í meðalári nema norðaustantil á landinu. Víða var hún helmingur af meðalúr- komu eða minni, en á 3 stöðvum norðaustanlands mældist þreföld meðalúrkoma. Mest var úrkoman 326 mm á Dalatanga, en minnst 6 mm á Þóroddsstöðum. Sólskinsstundir voru flestar 343 á Miðfelli og 340 á Hveravöllum, sem er 6% umfram meðaltal áranna 1971—80 og 36% af þeim tíma sem sól er á lofti. 1 Reykjavík, á Reykhólum, Hólum og Sámsstöðum voru sólskinsstundir 92—101% af meðaltali 1971—80 og 31—35% af þeim tíma sem sól er á lofti. Á Akureyri, Höskuldarnesi og Hallormsstað voru sólskinsstundir 56—68% af meðaltali 1971—80 og 18—27% af þeim tíma sem sól er á lofti. (97)

x

Veðráttan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veðráttan
https://timarit.is/publication/278

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.